Fréttablaðið - 30.04.2012, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 30.04.2012, Blaðsíða 16
30. apríl 2012 MÁNUDAGUR16 timamot@frettabladid.is Elskuleg sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir og amma, JENSÍNA ÞÓRARINSDÓTTIR frá Bolungarvík, lést mánudaginn 23. apríl á Landspítalanum Fossvogi. Útförin fer fram miðvikudaginn 2. maí frá Fossvogskapellu kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á Landssamtökin Þroskahjálp. Gísli Guðmundsson Kristín Guðbjörg Gísladóttir Aðalsteinn Bjarni Bjarnason Konráð Gíslason Ásrún Rós Aðalsteinsdóttir 81 EINAR BENEDIKTSSON fyrrverandi sendiherra á afmæli í dag.„Líf mitt hefur líkst óvissuferð.“ Lillukórinn í Húnaþingi vestra fagn- ar 20 ára starfsafmæli með tónleik- um í Félagsheimilinu á Hvamms- tanga á morgun, þriðjudaginn 1. maí, klukkan 14. Kórstjóri er Ingibjörg Pálsdótt- ir en Sigurður Helgi Oddsson er stjórnandi kórsins. Sigurður leikur jafnframt undir á píanó, en einnig mun Þorvaldur Pálsson leika undir á harmonikku. Sérstakur gestakór á tónleikunum verður Álafosskórinn, en stjórnandi hans er Magnús Kjartansson og und- irleikari Sigurður Helgi Oddsson. Söngskrá tónleikanna er fjöl- breytt, en að þeim loknum verður boðið upp á veglegt kaffihlaðborð að hætti kórsins. Lillukórinn var stofnaður árið 1992 að frumkvæði Ingibjargar Pálsdóttur, eða Lillu, tónlistarkenn- ara á Hvammstanga. Á þessu starfs- ári er kórinn skipaður 24 söngelsk- um konum, víðs vegar úr Húnaþingi vestra, sem koma saman á vetrar- kvöldum einu sinni í viku og syngja sér til gamans. - hhs Hafa sungið saman í 20 ár LILLUKÓRINN Í tilefni af 20 ára afmæli Lillukórsins í Húnaþingi vestra verða tónleikar í Félagsheimilinu á Hvammstanga þann 1. maí. Hótel Loftleiðir var opnað þennan mánaðardag árið 1966, 16 mánuðum eftir að framkvæmdir hófust. Þótti það mikið afrek á þeim tíma. Arkitekt að hótelinu var Gísli Halldórsson. Heil- mikil opnunarhátíð var haldin og þar lék hljómsveit Karls Liljendahls fyrir dansi. Hótelið tók 550 manns í sæti ef allir salir voru nýttir, eins og oft var raunin því aðsóknin var gífurleg í byrjun, bæði af erlendum áningarfarþegum og ferðamönnum og fólki af lands- byggðinni sem kom til að skemmta sér og skoða hótelið. Kalt borð var sett upp daglega, oft var fullt út úr dyrum og dansleikir voru haldnir sex kvöld vikunnar. Hótelstjóri var Þorvaldur Guð- mundsson, kenndur við Síld og fisk, móttökustjóri var Emil Guðmundsson og veitingastjóri Friðrik Gíslason. ÞETTA GERÐIST: 30. APRÍL 1966 Hótel Loftleiðir var opnað Merkisatburðir 1789 George Washington sver embættiseið sem fyrsti forseti Bandaríkjanna. 193 Franklin D. Roosevelt kemur fram í sjónvarpi, fyrstur banda- rískra forseta. 1945 Adolf Hitler, kanslari Þýskalands og Eva Braun eiginkona hans, fremja sjálfsmorð. 1948 Fyrsti Land Rover-jeppinn er sýndur á bílasýningu í Amster- dam. 1975 Víetnamstríðinu lýkur með falli Saígon í hendur Norður- Víetnama. 1980 Beatrix Hollandsdrottning tekur við krúnunni af móður sinni. 1991 Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks undir forsæti Davíðs Oddssonar tekur við völdum. Sundfélagið Ægir fagnar 85 ára afmæli á morgun, þann 1. maí. Af því tilefni verður slegið upp afmælisveislu í Laugardalslaug á afmælis- daginn. Haldnir verða tveir við- burðir í lauginni. Annars vegar verður í fyrsta sinn á Íslandi haldin 100x100 metra boðsundkeppni þar sem synt verður skriðsund, á milli klukkan 10 og 12. Þá tekur við Stigamót Ægis á milli klukkan 12 og 15. Að viðburðunum loknum, á milli klukkan 15 og 18, verður boðið upp á afmæl- iskaffi í veislusal Þróttar, Engjavegi 7. - hhs Sundfélagið Ægir fagnar 85 ára afmæli Vorsýning Klassíska list- dansskólans fer fram í Borg- arleikhúsinu í dag, þar sem nemendur skólans sýna list- ir sínar. Í skólanum er bæði kenndur klassískur dans og nútímalistdans. Má því gera ráð fyrir fjölbreyttri sýn- ingu í dag. Sýnd verða klass- ísk verk eftir skólastjóra Klassíska listdansskólans, Guðbjörgu Astrid Skúladótt- ur, en einnig tvö nútímaverk, samin af starfsfólki skólans í samstarfi við nemendur. Sýningin hefst klukkan 18. - hhs Klassísk verk og nútímaleg BALLERÍNUR Vorsýning Klassíska listdansskólans fer fram í Borgarleik- húsinu í kvöld. Náttúrufræðingurinn, ljósmyndarinn og rithöfundurinn Guðmundur Páll Ólafsson hlaut um helgina viðurkenn- ingu kennda við Náttúrúverndarann. Viðurkenningin var veitt í fyrsta sinn á Náttúruverndarþingi á laugardag, en hana hlýtur Guðmundur Páll fyrir ötula og staðfasta baráttu í þágu nátt- úruverndar og vitundarvakningar um náttúrulegar forsendur tilvistar mannsins. „Það er vissulega mjög notalegt fyrir mig persónulega að fá þessa viðurkenn- ingu. Þar fyrir utan held ég að það sé mikilvægt að veita viðurkenningar á borð við þessa, ekki síst til að minna okkur á að ýmsir sigrar hafa unn- ist. Náttúruverndarbaráttunni hefur ekki bara verið stjórnað úr opinberum ráðum og nefndum, heldur er fullt af fólki sem vinnur óeigingjarnt starf til að halda utan um verðmæti landsins,“ segir Guðmundur Páll. Hann segir náttúruverndarsjónar- mið fá alltof lítið rými í umræðunni. „Við erum alltaf að guma af því hvað við höldum vel utan um auðlindir okkar, en það er ekki rétt. Við búum á landi þar sem auðlindir vatns eru hvað mestar á mannsbarn í heiminum, en þó höfum við enga heilsteypta vatnsvernd- arlöggjöf. Þetta er allt saman tvístrað hér og þar í lögum og reglugerðum, og í mörgum ráðuneytum. Ef við lítum á aðra auðlind, sem er hafið, vill svo til að við höfum enga heildstæða stefnu um verndun þess heldur. Í dag þykir ákaflega brýnt að vernda votlendi, en við höfum enga slíka stefnu, þó að vot- lendi jarðar fari hratt dvínandi. Það er sama hvar við drepum niður fæti. Við erum stefnulaus þjóð. Það á ekki bara við um náttúruvernd, en hún er hvað grátlegast úti, meðal annars vegna þess að stór hluti þingheims er illa upplýst- ur og telur að náttúruvernd sé varasöm og hættuleg efnahag og velferð þjóðar- innar. Það eru hrein öfugmæli og þetta er hugsunarháttur sem við verðum að breyta. Við erum að ganga á hag barna okkar og afkomenda með því að halda svona heimskulegri stefnu á lofti. En það sem er brýnast er að fara að líta á náttúruvernd í stóru samhengi og taka höndum saman við fólk annars staðar í heiminum um að bjarga þessari jörð.“ Eftir Guðmund liggur fjöldi verka sem sýna ríkidæmi íslenskrar náttúru, svo sem Fuglar í náttúru Íslands, Perl- ur í Náttúru Íslands og Þjórsárver – Hernaðurinn gegn landinu. Undanfarin ár hefur hann unnið að umfangsmiklu verki um vatnsbúskap á heimsvísu. Hann vonast til þess að sú bók komi út í náinni framtíð. „Þetta verður vonandi öflugasta innlegg mitt í umræðuna. Ég byrjaði að leggja drögin að þessu verki árið 2002, en hef eingöngu unnið í því frá árinu 2007. Þessi bók verður mitt viðamesta verk, enda er vatn miðill lífsins og miðill jarðarinnar. Þegar þú fjallar um vatn, þá ertu að fjalla um allt sem er.“ holmfridur@frettabladid.is GUÐMUNDUR PÁLL ÓLAFSSON: NÁTTÚRUVERNDARINN 2012 TÖKUM SAMAN HÖNDUM OG BJÖRGUM ÞESSARI JÖRÐ NÁTTÚRUVERNDARINN 2012 Guðmundur Páll Ólafsson, náttúrufræðingur, ljósmyndari og rithöfundur, hlaut um helgina viðurkenningu kennda við Náttúruverndarann. Fáir þykja hafa unnið jafn ötullega að náttúruverndarmálum hér á landi og hann. MYND/LANDVERND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.