Fréttablaðið - 30.04.2012, Blaðsíða 37
KYNNING − AUGLÝSING Hurðir & Hurðasmíði30. APRÍL 2012 MÁNUDAGUR 3
Nú í vor fagnar Glerborg 40 ára af-mæli sínu og í tilefni þess hafa söluskrifstofur verið endurnýj-
aðar og nýr og glæsilegur sýningarsal-
ur hefur verið opnaður að Dalshrauni
13 í Hafnarfirði þar sem mikið úrval
sýningarhurða er til staðar.
Glerborg býður upp á mikið úrval
hurðagerða og hefur algjöra sérstöðu
hvað varðar gæði og fjölbreytt úrval.
Jafnframt er boðið upp á þjónustu við
mælingar og uppsetningar víða um
land.
Plastútihurðir - PVC-u
Fyrirtækið selur meðal annars PVC-u
útihurðir úr plasti sem eru gríðarlega
öruggar og algjörlega vind- og vatns-
þéttar vegna tvöfaldra þéttinga og 5
punkta læsingar. Á Íslandi eru mikl-
ar hita og rakasveiflur og veður óstöð-
ugt. Það veldur því oft að hefðbundnar
timburhurðir vilja gjarnan þrútna og
skreppa saman á víxl og á endanum
bjóða þær litla vörn gegn vatni og vind-
um. Útihurðir frá Glerborg eru varan-
leg og ódýr lausn á þessum vanda-
málum og ekki þarf að skrapa og mála
þær á nokkurra ára fresti. Plasthurð-
irnar bjóða upp á ótal útfærslur í út-
liti og glergerðum og hægt er að fá þær
í hinum ýmsu litum og viðaráferðum
eins og eik, gulleik og mahoný.
Rennihurðir - PVC-u
Það er mikill kostur að geta opnað vel
út í garð eða út á svalir þegar heitt er
í veðri. Rennihurðirnar frá Glerborg
eru einstaklega þéttar og öruggar.
Tvöfaldar gúmmíþéttingar gera þær
fullkomlega vind- og vatnsþéttar því
hurðirnar eru búnar öflugum læsing-
um sem þrýsta þeim í karminn. Einn
helsti kosturinn við rennihurðir er að
opnun þeirra tekur hvorki pláss inni
né úti eins og hjá öðrum hurðum, þær
eru einstaklega liprar og þægilegar í
notkun og setja flottan svip á heimil-
ið. Húsið þarf ekki að vera í byggingu
til þess að koma megi fyrir rennihurð.
Lítið mál er að saga niður úr gamla
stofuglugganum og smella rennihurð
í gatið.
Álhurðir
Glerborg býður ótal útfærslur í álhurð-
um og búnaði í kringum þær. Álhurðir
eru fáanlegar í næstum öllum litum og
eru löngu orðnar sígildar í verslunum
og opinberum byggingum vegna styrks
og léttleika og nú færist mjög í vöxt að
nota slíkar hurðir í íbúðarglæsihýsi.
Hurðir úr hertu gleri
Glerborg býður upp á ótal útfærslur í
útliti og búnaði með innihurðum úr
hertu gleri. Þessar hurðir eru fáanlegar
sem rennihurðir og sveifluhurðir sem
dæmi og henta vel þar sem leitast er við
að hafa gott og opið rými bæði heima
fyrir og hjá fyrirtækjum. Dæmi um
notkun er í fundarherbergjum, opnum
skrifstofum með möguleika á að loka
að sér, í sturtur og í raun alls staðar þar
sem loka þarf á hljóð en ekki útsýni.
Nýr og endurbættur sýningarsalur
Glerborg býður upp á hurðir úr plasti, áli og gleri sem eru sérstaklega öruggar og algjörlega vind- og vatnsheldar. Fyrirtækið er 40 ára í ár og hefur
opnað nýjan sýningarsal af því tilefni.
Sölumenn Glerborgar í nýja sýningarsalnum. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir og hefur opnað nýjan sýningarsal af því tilefni.
Glerborg býður upp á innihurðir úr hertu gleri sem eru tilvaldar í
fundarherbergi, opnar skrifstofur með möguleika á að loka að sér, í
sturtur og alls staðar þar sem loka þarf á hljóð en ekki útsýni.
Hvað er ég að
gera, spyrðu!
Ég er að sýna
ábyrga starfshætti
Ég heiti Aron og er söluráðgjafi hjá Glerborg. Þegar ég
lofa viðskiptavinum mínum CE vottun, þá er það vegna
þess að ég framkvæmi mín eigin próf og get lagt nafn
mitt og heiður að veði.
Dalshraun 13 • 220 Hafnarfjörður • Sími 565 0000 •
Fax 555 3332 • glerborg@glerborg.is • www.glerborg.is