Fréttablaðið - 30.04.2012, Blaðsíða 6
30. apríl 2012 MÁNUDAGUR6
Grand Hótel – Reykjavík
Þriðjudaginn 15. maí kl. 17:00
Dagskrá fundarins:
Tillögur til breytinga á samþykktum verða sendar með
fundarboði til sjóðfélaga og verða auk þess aðgengilegar
sjóðfélögum á heimasíðu og skrifstofu sjóðsins.
Kosið verður um 2 stjórnarmenn og 1 varamann í stjórn
sjóðsins. Þeim sjóðfélögum sem hafa hug á að bjóða sig
fram er boðið að kynna sig stuttlega á heimasíðu sjóðsins
og eru þeir beðnir um að hafa samband við starfsmenn
sjóðsins.
Í sjóðnum er virkt sjóðfélagalýðræði og hafa allir
sjóðfélagar sem mæta á aðalfund atkvæðisrétt.
Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga.
Engjateigi 9, 105 Reykjavík
www.lifsverk.is
LÍFEYRISSJÓÐUR
VERKFRÆÐINGA
Hefðbundin aðalfundarstörf
Tillögur til breytinga á samþykktum
Önnur mál, löglega upp borin
Lífeyrissjóðs verkfræðinga
Aðalfundur
SJÁVARÚTVEGUR Netarall Hafrann-
sóknastofnunar sýnir líkt og stofn-
matið vöxt í hrygningarstofni
þorsks á undanförnum árum. Neta-
rallinu lauk 22. apríl síðastliðinn.
Úrvinnsla gagna er á frumstigi og
niðurstöður liggja ekki fyrir, en
mjög góð veiði var á flestum svæð-
um og var þorskaflinn um þúsund
tonn hjá þeim sex bátum sem stund-
uðu veiðarnar í þrjár vikur.
Markmið verkefnisins er að safna
upplýsingum um aldur, lengd og
þyngdarsamsetningu hrygnandi
þorsks og vöxt á helstu hrygning-
arsvæðum. Einnig að meta árlega
magn kynþroska þorsks er fæst í
þorskanet á hrygningarstöðvum og
breytingar í fiskgengd á mismun-
andi svæðum.
Um 300 netatrossur voru lagðar
og er þeim dreift á helstu hrygning-
arsvæði. Metafli fékkst í Breiðafirði
og einnig var talsverð aflaaukning
á svæðinu frá Meðallandsbugt að
Hvítingum. Á öðrum svæðum var
afli svipaður eða aðeins betri en
í fyrra. Eina undantekningin var
kanturinn austur af Vestmannaeyj-
um en þetta er fjórða árið í röð sem
afli hefur verið lélegur þar.
Gagnasöfnun í netaralli skilar
mikilvægum upplýsingum en nið-
urstöður netaralls hafa hins vegar
ekki verið notaðar beint til samstill-
ingar í stofnmati, en eru hafðar til-
hliðsjónar við fiskveiðiráðgjöf. - shá
Sex netabátar fengu þúsund tonn á þremur vikum í netaralli Hafró:
Besti afli í netarallinu til þessa
TVEGGJA HANDA FISKUR Rígvænn
hrygningarfiskur mokveiddist í netarall-
inu þetta árið.
HEILBRIGÐISMÁL „Ég man að ég
þurfti alltaf að hafa gluggana
lokaða á herberginu svo ég heyrði
ekki barnagrátinn yfir til mín.
Það var mjög erfitt,“ segir Krist-
ín Guðmundsdóttir handboltakona
sem var gengin 19 vikur þegar
hún missti tvíburadrengi sína.
Hún er að hefja söfnun fyrir
styrktarfélag kvennadeildar
Landspítalans, Líf, en markmið
söfnunarinnar er að bæta aðbún-
að kvenna sem missa börn sín á
meðgöngu eða í fæðingu.
Tíu mánuðir eru síðan Krist-
ín þurfti að dvelja í tólf daga á
Kvennadeildinni og var hún þá
innan um konur sem voru ann-
aðhvort barnshafandi eða með
nýfædd börn. Það hafi gert erfiða
lífsreynslu verri. „Mér finnst það
ekki vera miklar kröfur að hafa
til dæmis hljóðeinangruð her-
bergi afsíðis fyrir þennan hóp. Ég
fékk að tala við prest og félags-
ráðgjafa en annars fannst mér ég
þurfa að sækja allar upplýsingar
sjálf.“
Kristín greinir frá því að það
hafi verið erfiðast fyrir hana að
fara í skoðun aðeins fimm vikum
eftir að hún missti drengina.
Skoðunin fór fram á sama stað og
barnshafandi konur fara í sónar.
„Það var alveg hræðilegt. Ég sat
á lítilli biðstofu innan um óléttar
konur sem voru spenntar að fara
í sónar á meðan ég var að syrgja
mín börn. Ég man að ég var
óvinnufær þennan dag og titraði
öll og skalf þegar ég kom heim.“
Kristín segir viðbrögð við söfn-
unarátakinu hafa verið mjög góð
og draumurinn sé að stofna sam-
tök, innan Lífs, sem annist þennan
hóp kvenna.
Söfnuninni verður hrint af stað
á upphafsleik úrslitaeinvígisins
í N1-deildinni í handbolta á mið-
vikudagskvöld. Þá mætast Valur
og Fram en Kristín leikur með
síðarnefnda liðinu. Hún hefur
fengið styrki frá fyrirtækjum
sem gerir það að verkum að frítt
verður á leikinn.
„Ég vil fá sem flesta á leikinn
og fulltrúar frá Lífi verða á staðn-
um að selja pylsur og hamborg-
ara. Það er því tilvalið að gera
sér glaðan dag með fjölskyldunni
og styrkja gott málefni í leiðinni.“
Hildur Harðardóttir, yfirlækn-
ir kvenlækninga á Landspítalan-
um, er sammála Kristínu um að
það þurfi að hlúa betur að þessum
hópi. „Það er ekki spurning að það
þarf að bæta verulega aðstöðuna
fyrir þessar konur til að gera erf-
iða upplifun bærilegri. Ég kann
henni bestu þakkir fyrir framtak-
ið enda þarf mikinn kjark og kraft
til að opna sig og standa í þessu.“
Styrktarreikningur hefur verið
stofnaður þar sem tekið er á móti
frjálsum framlögum. Reiknings-
númer 0345-13-202244 og kenni-
tala 180778-3819.
alfrun@frettabladid.is
Mæður sem missa
börn fái betri aðstöðu
Kristín Guðmundsdóttir lenti í þeirri erfiðu reynslu að missa tvíbura á með-
göngu. Hún er að hefja söfnun svo bæta megi aðstöðu kvenna í þessum sporum
á kvennadeild Landspítala. Söfnunin hefst á leik Fram og Vals í handbolta.
GERA ERFIÐA REYNSLU BÆRILEGRI Handboltakonan Kristín Guðmundsdóttir er að
fara af stað með söfnun til styrktar Lífi með það markmið að bæta aðstöðu þeirra
sem missa barn á meðgöngu eða í fæðingu. Hér er hún ásamt tviburadætrum
sínum, Telmu og Emblu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Finnst þér að gera eigi saksókn
vegna hatursáróðurs á netinu
auðveldari?
JÁ 75,5%
NEI 24,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér að lögreglan ætti að
fá skammbyssur?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
VINNUMARKAÐUR Átta af tíu samevrópskum skoð-
anakönnunum sýna að fólk hefur áhyggjur af vinnu-
tengdri streitu.
Að könnuninnni stóð Ipsos MORI fyrir hönd Vinnu-
verndarstofnunar Evrópu. Könnuð voru viðhorf 35
þúsund manns í 36 Evrópulöndum til málefna sem
tengjast vinnuvernd.
Í fréttatilkynningu um niðurstöðurnar kemur fram
að 80 prósent vinnandi fólks í Evrópu telji að fjöldi
þeirra sem þjáist af vinnutengdri streitu muni aukast
næstu fimm árin og rúmur helmingur telur að aukn-
ingin verði umtalsverð. „Hlutfallið er þó talsvert
lægra hér á landi þar sem aðeins 47 prósent telja að
vinnutengd streita muni aukast á næstu árum,“ segir
í tilkynningunni.
Niðurstöðurnar eru sagðar í takt við niðurstöður
ESENER könnunar Vinnuverndarstofnunarinnar
um nýjar og aðsteðjandi áhættur á vinnustað. Hún
leiddi í ljós að 79 prósent stjórnenda telja að streita
sé vandamál í fyrirtæki þeirra. „En það þýðir að
vinnustreita er jafnmikilvægt úrlausnarefni fyrir
fyrirtæki og vinnuslys.“ Þá kemur fram að Íslend-
ingar eru heldur bjartsýnni en meðalevrópubúinn á
að stjórnendur fyrirtækja komi til með að taka mark
á kvörtunum varðandi öryggi og heilbrigði á vinnu-
stað. Alls telja 74 prósent aðspurðra í Evrópu að svo
muni vera, en 86 prósent Íslendinga. - óká
Íslendingar eru bjartsýnni á að stjórnendur hlusti á umkvartanir starfsfólks:
Kannanir benda til aukinnar streitu
HALDINN STREITU Auknar kröfur eftir hrun auka vinnutengda
streitu, segir framkvæmdastjórn Vinnuverndarstofnunar
Evrópu. NORDICPHOTOS/GETTY
SVÍÞJÓÐ Frá því að hjálparlína
fyrir afbrotamenn var opnuð í
Stokkhólmi fyrir fjórum vikum
hafa fimm háttsettir félagar í
glæpaklíkum í undirheimum
borgarinnar hringt og fengið
aðstoð. Afbrotamönnum sem hafa
samband við lögregluna hefur
fjölgað. Þeir hafa viljað hefja
nýtt líf en ekki trúað að það væri
hægt.
Lögreglustjórinn, Carin Götblad,
segir þá sem leita aðstoðar glíma
við vímuefnavanda, vera atvinnu-
lausa og vinalausa. - ibs
Stuðningur lögreglunnar:
Hjálparlína fyr-
ir glæpamenn
KJÖRKASSINN
Ég sat á lítilli biðstofu
innan um óléttar kon-
ur sem voru spenntar að fara
í sónar á meðan ég var að
syrgja mín börn.
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR