Fréttablaðið - 30.04.2012, Blaðsíða 50
30. apríl 2012 MÁNUDAGUR26
SKYLMINGAR „Ég er alveg tóm og
í lausu lofti, búin að gráta úr mér
augun enda vonbrigðin og spennu-
fallið mikið. Ég er alveg ónýt,“ segir
skylmingakonan Þorbjörg Ágústs-
dóttir en draumur hennar um sæti
á Ólympíuleikunum í Lundúnum er
úr sögunni.
Þorbjörg keppti á úrtökumóti í
Slóvakíu um síðustu helgi sem var
hennar möguleiki á sæti á Ólymp-
íuleikunum.
„Það var ekkert annað tæki-
færi. Það er gríðarlega erfitt að
tryggja sér sæti í skylmingakeppni
leikanna. Aðeins 30 konur í öllum
heiminum komast í höggsverðs-
keppnina,“ segir Þorbjörg sem segir
hlutina ekki hafa gengið upp hjá sér
í Slóvakíu.
Þorbjörg vann einn af fimm
bardögum sínum og komst ekki
í útsláttarkeppnina. Fjögur efstu
sætin á mótinu gáfu sæti á Ólymp-
íuleikunum.
„Ég hefði þurft að vinna tvo bar-
daga með góðum stigamun til þess
að komast í útsláttinn. Þar hefði ég
þurft að leggja tvo andstæðinga að
velli til að tryggja mér sæti,“ segir
Þorbjörg.
Skylmingakonan var aldrei þessu
vant sofandi þegar undirritaður sló
á þráðinn til hennar á ellefta tíman-
um á laugardagsmorgun.
Að öllu eðlilegu hefði Þorbjörg
verið á æfingu á laugardaginn en
sverðið hefur fengið að liggja á hill-
unni síðastliðna viku.
„Það er erfitt að halda áfram
því vonbrigðin eru svo mikil. Hver
íþróttamaður á sinn Ólympíudraum
og ég hef stefnt að þessu lengi. Við
þjálfarinn minn höfum lagt allt
undir,“ segir Þorbjörg.
Engin uppgjöf
Þorbjörg hefur æfingar að nýju í
dag en framundan eru stór verkefni
hér á landi. Fyrst Norðurlandamótið
í lok maí og svo árlegt B-heimsbik-
armót í skylmingum helgina á eftir.
Þorbjörg hefur sjö sinnum orðið
Norðurlandameistari og einnig
verið sigursæl á heimsbikarmótinu.
„Ég lenti reyndar í öðru sæti á
síðasta ári en argentínsk stelpa sem
sigraði tryggði sér um leið sæti á
Ólympíuleikunum,“ segir Þorbjörg.
Sú staðreynd gefur til kynna hve
miklu auðveldara er fyrir skylm-
ingafólk í Ameríku að tryggja sér
sæti á Ólympíuleikunum en Evr-
ópubúa.
„Skylmingahefðin er langmest í
Evrópu og af þeim sökum er lang-
erfiðast fyrir Evrópubúa að tryggja
sér sæti í Lundúnum,“ segir Þor-
björg sem er þó hvergi bangin.
Auk fyrrgreindra móta keppir
hún á Evrópumótinu í júlí og vill
koma á framfæri miklu þakklæti til
allra þeirra sem hafa stutt við bakið
á henni. -ktd
Ólympíudraumur skylmingakonunnar Þorbjargar Ágústsdóttur rættist ekki á úrtökumótinu í Slóvakíu:
Þorbjörg búin að gráta úr sér augun
MIKIL VONBRIGÐI EN ENGIN UPPGJÖF Þorbjörg tók viku í að jafna sig á þeim von-
brigðum að Ólympíudraumurinn væri úti. Nú heldur ballið áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HANDBOLTI „Stemningin var svaka-
leg og afrek okkar er mikið,“ sagði
Arnór Atlason fyrirliði Kaup-
mannahafnarliðsins í samtali við
Fréttablaðið í gær. Arnór, sem
skoraði þrjú mörk í leiknum, sagði
góðan sóknarleik hafa lagt grunn-
inn að sigrinum.
„Aðalmarkmiðið var að hleypa
þeim ekki í hraðaupphlaup og
það tókst. Við spiluðum frábær-
an sóknarleik sem gerði það að
verkum að þeir komust aldrei á
neitt flug. Að skora 33 mörk á úti-
velli gegn Barcelona er magnað,“
sagði Arnór.
Barcelona átti titil að verja
en félagið hefur verið í fremstu
röð í alþjóðahandbolta í lengri
tíma. Liðið hefur átta sinnum
unnið Meistaradeildina og leikið
til úrslita síðustu tvö ár. Því var
ekkert óeðlilegt að flestir reikn-
uðu með að liðið færi áfram þrátt
fyrir sex marka tap í fyrri leikn-
um í Kaupmannahöfn.
Ósjálfrátt reynt að verja forskotið
Kaupmannahafnarliðið fór með
sex marka forskot inn í leikinn
á Spáni sem fljótlega varð að sjö
marka forskoti þegar ljóst var að
AG myndi skora fleiri mörk á úti-
velli en Barcelona gerði. Þegar
tæpur stundarfjórðungur lifði
leiks höfðu Danirnir 25-27 forskot
en á augabragði voru Spánverjarn-
ir komnir fimm mörkum yfir 30-27
og útlitið svart. Þá tók Magnus
Anderson, þjálfari AG, leikhlé og
minnti leikmenn sína á upphaflega
markiðið. Að vinna leikinn.
„Þegar stundarfjórðungur er
eftir og forystan orðin níu mörk þá
fer maður ósjálfrátt í að reyna að
verja forskotið,“ sagði Arnór. Liðin
skoruðu sex mörk hvort það sem
eftir lifði leiks og þriggja marka
tapi tóku gestirnir fagnandi.
Svakaleg stemning
Heimamenn nutu stuðnings rúm-
lega 5.000 áhorfenda en athygli
vakti hversu mikið leikmenn
Barcelona lögðu upp úr því að fá
áhorfendur á sitt band.
„Þeir þurftu á einhverju auka-
lega að halda og nýttu hvert ein-
asta tækifæri til að skapa stemn-
ingu og kveikja í leiknum,“ sagði
Arnór sem hefur spilað marga
stórleiki með íslenska landslið-
inu. Leikir með félagsliðum eru
þó öðruvísi.
„Ég hef persónulega ekki spilað
mikilvægari leik með félagsliði.
Þetta er risaskref í því að gera AG
að virtu félagi í handboltaheimin-
um,“ sagði Arnór.
Fáir standa Ólafi snúning
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
átta mörk og Ólafur Stefánsson
sjö en landsliðsfyrirliðinn hefur
mikla reynslu úr stórleikjum sem
þessum. Þjálfari AG líkti Ólafi við
rauðvín sem verður aðeins betra
með aldrinum en Ólafur verður 39
ára í júlí.
„Óli hefur unnið Meistaradeild-
ina fjórum sinnum og sex sinnum
leikið í undanúrslitum. Hann átti
frábæran leik í gær eins og Guð-
jón Valur og fáir standast honum
snúning. Það er bara heiður að
spila í liði með svona leikmönnum
og um að gera að njóta þess. Það
eru tveir titlar í boði í maímánuði
sem við ætlum að vinna,“ sagði
Arnór.
Öllum er ljóst að afrek AG er
mikið og Arnór tekur undir það.
„Að slá Evrópumeistarana út á
okkar fyrsta ári í Meistaradeild-
inni er frábært og við hlökkum til
framhaldsins,“ sagði Arnór.
Afrekum AG engin takmörk sett
Undanúrslitin og úrslitin verða
spiluð helgina 26.-27. maí í Köln í
Þýskalandi þar sem Arnór reikn-
ar með góðum stuðningi.
„Félagið er orðið risastórt, það
voru 250 stuðningsmenn með
okkur í Barcelona og við eigum
orðið góðan fjölda af stuðn-
ingsmönnum. Ég reikna ekki
með öðru en að það fari fullt af
Dönum með okkur til Kölnar,“
sagði Arnór og markmiðið er
ljóst.
„Það er klárt að við ætlum ekki
til Kölnar með það hugarfar að
það sé æðislegt að vera komnir í
undanúrslitin. Við viljum meina
að það séu engin takmörk fyrir
því hvað við getum afrekað.“
kolbeinntumi@365.is
Evrópumeisturunum rutt úr vegi
Íslendingaliðið AG Kaupmannahöfn er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta. AG tapaði
síðari leiknum gegn Barcelona á Spáni með þremur mörkum en vann þann fyrri með sex og fer áfram með
þriggja marka sigur samanlagt. Frábært afrek hjá liðinu á fyrsta tímabili þess í Meistaradeildinni.
STÓRT FRAMLAG ÍSLENDINGANNA Íslensku leikmennirnir skoruðu 22 af 33 mörkum Kaupmannahafnarliðsins. Þá komu sex
síðustu mörkin, þegar pressan var mikil á danska liðinu, úr smiðju Íslendinganna. Auk framlags Guðjóns Vals og Ólafs skoraði
Snorri Steinn Guðjónsson fjögur mörk og Arnór þrjú. MYND/SPORT.DK
HANDBOLTI Füchse Berlin vann
ævintýralegan ellefu marka sigur
29-18 í síðari viðureign sinni
gegn Ademar Leon og tryggði sér
sæti í undanúrslitunum. Füchse
tapaði fyrri leiknum með ellefu
mörkum en fer áfram á fleiri
mörkum skoruðum á útivelli.
Lærisveinar Dags Sigurðsson-
ar komu gestunum frá Spáni í
opna skjöldu með því að spila á
sjö sóknarmönnum framan af
leik á meðan markvörðurinn sat
á bekknum. Gestirnir skoruðu
aðeins sex mörk í fyrri hálfleik
á meðan heimamenn juku smám
saman forskot sitt.
Silvio Heinevetter lokaði marki
Berlínarliðsins og Alexander
Petersson dró vagninn í sókn-
inni og skoraði níu mörk. Hreint
ótrúlegur viðsnúningur í tveimur
leikjum.
Kiel á kunnulegum stað
Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk
fyrir Kiel sem vann 33-27 sigur á
Croatia Zagreb í síðari viðureign
liðanna í Þýskalandi. Fyrri leik
liðanna í Þýskalandi lauk með
jafntefli.
Liðsmenn Alfreðs Gíslasonar
hjá Kiel eru margreyndir í
keppni þeirra bestu en liðið varð
Evrópumeistari árið 2007 og
2010. Árin á milli hafnaði liðið í
öðru sæti.
Dregið verður í undanúrslit
keppninnar á miðvikudaginn. -ktd
Füchse og Kiel í undanúrslit:
Füchse tókst hið
ómögulega
ÓSIGRANDI Aron og félagar í Kiel hafa
einnig unnið alla leiki sína í þýsku
deildinni í vetur. MYND/BONGARTS
ÓSIGRANDI Aron og félagar í Kiel hafa
einnig unnið alla leiki sína í þýsku
deildinni í vetur. MYND/BONGARTS