Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 26
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Magnús Þorlákur
Lúðvíksson
BANKAHÓLFIÐ
Gunnlaugur Jónsson
fjárfestir
ERLENT MYNDBAND
Erfi ð staða
í Bandaríkjunum
Það er kunnara en frá þurfi að segja
að gjaldeyrishöftin valda hagkerfinu
margs konar skaða. Það þýðir ekki
að óskynsamlegt hafi verið að taka
þau upp, það er mun flóknara
reikningsdæmi, en það þýðir að það
er mikilvægt að vinna að skipulögðu
afnámi þeirra eins fljótt og auðið
er. Það verkefni verður brýnna með
hverjum mánuði sem líður því eftir
því sem samfélagið venst höftunum
lærir það betur að búa með þeim.
Hljómar kannski ágætlega en er í
raun neikvætt því erfiðara verður að
afnema höftin því fastari sem þau
eru í sessi. Með öðrum orðum má
segja að höftin valdi því að íslenskt
og erlent efnahagslíf reki í sundur
og því lengra sem bilið verður því
erfiðara verður fyrir efnahagslífið að
aðlagast á ný frjálsu flæði fjármagns.
Ein afleiðing gjaldeyrishaftanna
er sú að ríkissjóður hefur getað
fjármagnað sig mjög ódýrt á síðustu
misserum. Er það annars vegar
vegna þeirra miklu fjármuna sem
lokuðust inni í hagkerfinu þegar
höftunum var komið á og hins
vegar þess að Seðlabankinn gat eftir
bankahrun haldið vöxtum mun lægri
en ella þar sem höftin stöðvuðu
hrun krónunnar. Hið opinbera býr
sem sagt við nokkru lægri vexti
af lánum sínum en skuldsetning
þess gefur tilefni til. Fyrir vikið eru
gríðarhá vaxtagjöld ríkissjóðs, rúmir
77 milljarðar króna árið 2012 sam-
kvæmt fjárlögum, þó viðráðanlegri
en ella.
Ríkissjóður greiðir sem sagt ríflega
sjöföld árleg framlög til Háskóla
Íslands í vaxtagjöld þrátt fyrir að njóta
góðs af skjóli haftanna. Í ljósi þess-
arar stöðu ætti það augljóslega að
vera forgangsatriði hjá stjórnvöldum
að greiða niður skuldir og gera hinu
opinbera þannig auðveldara fyrir að
búa við dýrari fjármögnun þegar höft-
in hafa verið afnumin. Ekki síst þegar
haft er í huga að útlit er fyrir nokkurn
hagvöxt og minnkandi atvinnuleysi
á næstunni. Bæði Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn og Seðlabankinn hafa
enda kallað eftir því að í engu verði
brugðið frá markmiðum um aðhalds-
sama ríkisfjármálastefnu sem hafi
það að aðalmarkmiði að greiða niður
skuldir. Því miður virðast hins vegar
ýmis teikn á lofti um að einmitt það
hafi gerst.
Það þarf kannski ekki að koma á
óvart enda kosningar í nánd og aug-
ljós freisting til staðar fyrir óvinsæla
ríkisstjórn að reyna að kaupa sér vin-
sældir með auknum ríkisútgjöldum.
Þá munu stjórnarandstöðuflokkarnir
sennilega lofa ýmsum framkvæmdum
og útgjöldum komist þeir til valda
en þar á bæ hefur áherslan heldur
verið á að lofa lægri sköttum og
minni niðurskurði fremur en að tala
um þörfina á að greiða niður skuldir.
Það eru augljósir hagsmunir ríkis-
sjóðs, og þar með okkar allra, að lögð
verði áhersla á niðurgreiðslu skulda.
Kjósendur verða því að vera á varð-
bergi fyrir útgjaldaloforðum stjórn-
málamanna sem ómögulegt eða
óskynsamlegt verður að standa við.
Höft, vextir og
kosningar
HHS
Viðskiptafræði
Viðskiptafræði
Viðskiptalögfræði
VELKOMIN Á BIFRÖST
Opið fyrir
umsóknir
Háskólasamfélagið á Bifröst er einstakt samfélag sem sameinar vandað nám og frábært
umhverfi fyrir börn og fullorðna. Við leggjum áherslu á að undirbúa nemendur fyrir
atvinnulífið með markvissri kennslu, símati og raunhæfum verkefnum.
Markmið okkar er að veita nám sem nýtist.
Frumgreinanám MA
MA
ML
MS
Frumgreinanám Grunnnám Meistaranám
Opið fyrir umsóknir til 15. júní á bifrost.is
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
J
L
.I
S
•
S
ÍA