Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 20
FÓLK|FERÐIR EINN OG ÓHÁÐUR Sumum finnst það spennandi tilhugsun að ferðast einir en svo eru aðrir sem geta einfaldlega ekki hugsað sér að gera það. Að ferðast einn er, að mati þeirra sem reynt hafa, einstæð reynsla sem getur verið mjög gefandi. Fjöldi manna ferðast einir og því auðvelt að hitta aðra einstæða ferðalanga á gistiheimilum, krám, í skipulögðum ferðum eða á öðrum stöðum þar sem ferðamenn eru vanir að halda til. Margir kostir fylgja því að ferðast einn. Ferðalangurinn sjálfur ræður hvernig hann velur stað og stund, það er auðveldara að eignast nýja vini, ferðalagið verður sveigjanlegra og ef eitthvað kemur upp á þarf hann sjálfur að taka ábyrgð á því. Það er ekki allt jákvætt við að ferðast á eigin vegum. Það getur líka haft nokkra ókosti í för með sér. Það lítur enginn eftir einstæðingnum né eftir farangri hans ef hann bregður sér frá. Það getur verið dýrara að ferðast einn en að deila kostnaði með öðrum. Einmanaleiki gæti komið upp. Ókostirnir eru þó færri en kostirnir og því um að gera að stökkva af stað ef ævintýraþráin grípur fólk. Save the Children á Íslandi FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Hugmyndin að gera Þríhnúkagíg aðgengilegan almenningi var fyrst sett fram árið 2004 af Árna B. Stefánssyni, augnlækni og hellamanni. „Við erum búin að vinna að því í mörg ár að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. Í stuttu máli er hugmyndin sú að gera göng inn í miðja gíghvelfinguna, þar sem komið verður fyrir útsýnispalli og hring- stiga þaðan niður á botn gígsins,“ segir Björn Ólafsson forsvarsmaður Þríhnúka. „Megindrifkrafturinn að baki þessum hugmyndum er annars vegar verndar- sjónarmið og hins vegar að gefa fleirum kost á að kynnast þessum einstaka stað. Í dag er það einungis á færi örfárra sem hafa búnað og þekkingu að komast niður í gíginn og upp aftur. Þríhnúkagígur er hins vegar ekki mjög viðkvæmur staður líkt og margir af okkar hraunhellum og náttúruperlum. Ef þetta verður að veruleika þá verður gengið inn í gíginn og miklu fleiri geta notið þessa merka náttúrufyrirbæris. Þá verður hægt að heimsækja gíginn allt árið um kring og þar með létta álaginu af öðrum viðkvæmum ferðamannastöðum. Gígurinn sjálfur skemmist ekki því fólki er beint áfram eftir manngerðum stígum og stigum,“ segir Björn. „Um þessar mundir er unnið að mati á umhverfisáhrifum og öðrum undir- búningi,“ segir hann en í sumar verður settur upp lyftubúnaður þar sem unnið er að rannsóknum og uppmælingu á innviðum gígsins. Jafnframt hefur verið ákveðið að bjóða upp á skipulagðar ferð- ir með ferðamenn ofan í gíginn í sumar. „Með þessu erum við að kanna viðhorf ferðamanna, hvernig þeir upplifa gíginn og hvort þeim finnist þetta vera eins magnað og við viljum vera láta. Það er í raun hvergi í heiminum hægt að fara inn í eldfjall með þessum hætti. Í ferlinu öllu er mjög ströngum örygg- iskröfum fylgt en það er að sjálfsögðu áhætta í öllu sem fólk gerir. Þetta verður í þriðja sinn sem búnaðurinn verður settur upp og því komin nokkur reynsla af framkvæmdinni og valinn maður verður í hverju rúmi,“ segir Björn. INN Í IÐUR JARÐAR ÓTRÚLEGT NÁTTÚRUFYRIRBRIGÐI Í sumar gefst ferðamönnum kostur á að fara inn í eldfjallið Þríhnúkagíg. Í framtíðinni er hugmyndin að gera gíginn aðgengilegan almenningi í gegnum göng inn í gíghvelfinguna. STÓRBROTIÐ Þrí- hnúkagígur er gígur eld- stöðvar sem gaus fyrir um 4000 árum. Inni í gígnum er stórbrotið umhverfi og er hug- myndin að gera gíginn aðgengilegan almenn- ingi með göngum. MYND/VILHELM BJÖRN ÓLAFSSON Forsvarsmaður Þríhnúka vill gefa fleirum kost á að njóta þessa merka náttúrufyrirbæris. Sólbrúnka stafar af því að sól skín á húðina. Útfjólubláir geislar hennar örva litfrumur í yfirhúðinni sem mynda litarefnið melanín. Hlutverk þess er að verja húðina fyrir sömu geislum og dekkja hana um leið. Melanín er öflugt sólarvarnarefni og því er fólk með dökka húð í mun minni hættu að fá húðkrabbamein en fólk með ljósa húð. Sólargeislun og sólbrúnka flýta fyrir öldrun húðarinnar, til dæmis hrukkumyndun, myndun brúnna bletta og þynningu húðarinnar. Alvarlegustu afleiðingar sólskaða eru þó húðkrabbamein. Tíðni húð- krabbameins hefur aukist gífurlega undanfarna áratugi sem rakið er til mikillar sóldýrkunar og sólbrúnkudýrkunar. SÓLBRÚNKA GETUR VERIÐ VARASÖM Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16, www.topphusid.is Mörkinni 6 - Sími 588 5518

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.