Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 10
6. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR10 OLÍA Á DREKASVÆÐINU Arion banki býður til morgunverðarfundar í Borgartúni 19, fimmtudaginn 7. júní kl. 8.30. Dagskrá: Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ávarpar fundinn Is there any oil to be found in the Dreki Area? Þórarinn Sveinn Arnarsson, verkefnastjóri olíuleitar, Orkustofnun Economic impact if there is oil to be found in the Dreki Area Thina Margrethe Saltvedt, aðalgreinandi olíuiðnaðar hjá Nordea Markets How best to handle the oil wealth – Norway´s experience Per Mathis Kongsrud, aðstoðardeildarstjóri í norska fjármálaráðuneytinu Fundarstjóri er Margrét Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar Arion banka. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8.00. Áætluð fundarlok eru kl. 10.30. Fundurinn fer fram á ensku. Skráning á arionbanki.is/oliuradstefna Þú grípur einfaldlega pakka af uppáhalds Maryland kexinu þínu og gætir um leið eignast glæsilegt grill. ER VINN INGS SKÍFA Í PAK KANU M ÞÍNU M? VINNUR ÞÚ GLÆSILEGT WEBER GRILL? 2 x Weber E310 kr. 132.990 28 x Weber Smokey Joe kr. 16.950 INDLAND, AP Ný tegund stórra árás- argjarnra köngulóa hefur vald- ið ofsahræðslu í þorpi í Assam, afskekktu héraði í Norðaustur- Indlandi. Íbúarnir kölluðu á hjálp eftir að fjöldi köngulóa „réðist inn“ í þorpið. Tveir hafa látist eftir að hafa orðið fyrir köngulóarbiti, en full- trúar heilbrigðisyfirvalda segja ekki loku fyrir það skotið að frum- stæð viðbrögð við biti köngulónna kunni að hafa valdið fórnarlömb- um þeirra meiri skaða en bitið sjálft. Í tilfellum þeirra sem létust höfðu „töfralæknar“ reynt að létta á þrýstingi í bólgum og ná út eitri með því að skera í bitstaði með rakvélarblöðum. Líkin voru svo brennd áður en til krufningar kom og því ekki vitað hvort meðferðin eða eitur köngulónna varð fólkinu að aldurtila. Sjö önnur fórnarlömb köngulóa- árása hafa fengið sýklalyf, er haft eftir Anil Phapowali lækni í bænum Sadiya, en þau höfðu líka reynt að skera í bólgur til að veita úr þeim og létta á þrýstingi. Köngulærnar eru sagðar árásar- gjarnar og stökkva á fólk verði þær varar við hreyfingu. Þeirra varð fyrst vart fyrir um mánuði síðan, en L.R. Saikia, vistfræðingur við Assam Dibrugrh Háskóla segir að hér gæti verið um að ræða áður óþekkt afbrigði tarantúlu. Köngu- lærnar eru um þumalstórar. Meðan beðið er niðurstöðu grein- ingar á köngulónum og hvort þær eru í raun eitraðar eru þorpsbú- ar sagði varir um sig og reyna að gæta þess að köngulær laumist ekki inn í kofa þeirra að næturlagi. Um hundrað þúsund manns, aðallega fátækir hrísgrjónabænd- ur, búa á svæðinu þar sem köngu- lónna hefur helst orðið vart. - óká Árásargjarnar áttfætlur stökkva á fátæka Indverja: Tveir látnir eftir árás óþekktra köngulóa MEÐ EINA DAUÐA Ratul Rajkhowa, prófessor við líffræðideild Cotton College, heldur hér á dauðri könguló af tegund sem valdið hefur usla í afskekktu héraði í norð- austurhluta Indlands. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.