Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 23
5MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012 Ferðamenn um Leifsstöð eftir löndum Breyting á milli ára Bandaríkin .......... 26.395 ........ 278 Bretland ...................7.282 ........ 1.034 Danmörk ................2.566 ........ 500 Finnland ..................1.019 ........ 296 Frakkland ................ 6.702 ........ 52 Holland ....................2.716 ........ 61 Ítalía .........................2.654 ........ 78 Japan ........................1.322 ........ 209 Kanada ...................4.482 ........ 220 Kína ..........................3.590 ........ 375 Noregur .................. 6.140 ........ 162 Önnur þjóðerni ....4.836 ........ 733 Pólland ....................... 986 ........ 138 Rússland ....................827 Spánn ...................... 1.734 ........ 90 Sviss .............................992 ........ 93 Svíþjóð .................... 4.891 ........ 228 Þýskaland ...............2.438 ........ 157 ÞRÓUN Í FERÐAÞJÓNUSTU Á ÍSLANDI Bandaríkin Bretland Danmörk Finnland Frakkland Holland Ítalía Japan Kanada Kína Noregur Pólland Rússland Spánn Sviss Svíþjóð Þýskaland 0 10 20 30 40 50 60 70 Erlendir gestir um Leifsstöð eftir árum og þjóðernum 2003-2011 (nóv-okt) maí - okt nóv - apr Þúsund gestir Brottfarir erlendra farþega í Leifsstöð (Ferðamálastofa) Erlend greiðslukort, innanlands, millj. kr. (Hagstofa Íslands) Kortavelta pr. erlendan ferðamann (breytilegt verðlag) Kortavelta pr. erlendan ferðamann (fast verðlag, maí 2012) Þú su nd k ró nu r Þú su nd g es ti r 160 120 80 40 0 35 30 25 20 15 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 Erlend Kortavelta - Mánaðargögn 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 Fjöldi erlendra gesta um Leifsstöð HEIMILD: DATAMARKET FRÉTTASKÝRING Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is Hver einstakur erlendur ferða- maður eyddi jafn miklu hér- lendis í fyrra og hann gerði árið 2009. Eyðsla á hvern ferðamann dróst saman um rúm sex prósent frá árinu 2010 ef miðað er við fast verðlag. Eyðsla ferðamanna hefur minnkað frá árinu 2007 ef tekið er tillit til falls krónunn- ar gagnvart helstu gjaldmiðl- um. Þetta kemur fram í tölum um árlega kortaveltu erlendra ferðamanna sem DataMarket tók saman fyrir Markaðinn. Ferðamönnum sem koma til Ís- lands hefur fjölgað mjög hratt á undanförnum árum. Í fyrra komu samtals 565.600 slíkir til Íslands samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu Íslands. Þar af komu rúmlega 540 þúsund manns um Leifsstöð. Þeim fjölg- aði um 15,7 prósent á síðasta ári og hefur fjölgað að meðaltali um 6,1 prósent á ári frá aldamótum, þegar 303 þúsund manns heim- sóttu landið. Tæplega 96 prósent þeirra, alls 541 þúsund manns, koma til landsins um Leifsstöð. Restin kemur með Norrænu eða með flugi um Reykjavíkur-, Akureyr- ar- eða Egilsstaðaflugvöll. Samkvæmt tölum sem DataMar- ket tók saman, og ná til þeirra sem koma hingað um Leifsstöð, komu flestir erlendir ferðamenn til landsins í ágúst í fyrra. Mesta athygli vekur þó mikil aukning ferðamanna í septembermánuði, en þeim fjölgaði um 20,7 prósent á milli ára. Sú aukning gefur sterklega til kynna að háanna- tími íslenskrar ferðaþjónustu sé að lengjast. Til viðbótar við ofangreint hefur fjöldi þeirra sem koma við á Ís- landi og ferðast með skemmti- ferðaskipum aukist mjög hratt. Farþegar þeirra voru um 27 þúsund árið 2000 en mældust 66 þúsund alls í fyrra. Fjöldi ferða- manna sem sækja Ísland heim með þessari leið hefur aukist um 9,3 prósent á ári á tímabilinu. Þrátt fyrir að ferðamönnum hafi fjölgað gríðarlega mikið þá virð- ist meðaleyðsla þeirra ekki vera að aukast mikið. Á föstu verðlagi eyddi hver ferðamaður rúmlega 120 þúsund krónum hérlendis í fyrra. Inni í þeirri tölu er allur gisti- og ferðakostnaður innan- lands. Það er nánast sama upp- hæð og hver ferðamaður var að eyða að meðaltali árið 2009 og um átta þúsund krónum minna á hvern ferðamann en árið 2010. Þessi þróun hefur átt sér stað þrátt fyrir að Ísland hafi farið úr því að vera mjög dýrt land heim að sækja í það að vera mjög ódýrt vegna falls íslensku krónunnar. Virði hennar féll til dæmis um 43 prósent gagnvart evru frá árslok- um 2007 fram til síðustu áramóta. Á sama tíma hefur eyðsla ferða- manna í krónum talið einungis aukist um 39,3 prósent þegar búið er að leiðrétta fyrir verðbólgu. Ferðamenn eyða minna en árið 2007 Meðaleyðsla hvers einstaks ferðmanns hefur dregist saman á síðustu fimm árum ef tekið er tillit til veikingar krónunnar. Á sama tíma hefur ferðamönnum fjölgað um hátt í hundrað þúsund. Vöntun er á rannsóknum og greiningum á eyðslunni til að hægt sé að auka hana. BLÁA LÓNIÐ Ferðamönnum sem koma til landsins hefur fjölgað um 6,1 prósent á ári frá aldamótum. Rúmlega 70 prósent þeirra sem heimsóttu landið sumarið 2011 heimsóttu sundstaði eða náttúruböð á borð við Bláa lónið. MYND/GETTY IMAGES Flestir þeirra ferðamanna sem koma til Íslands koma frá Bandaríkjunum. Af þeim tæplega 541 þúsundi ferðamanna sem kom til landsins um Leifsstöð í fyrra komu tæplega 78 þúsund þaðan. Þeim fjölgaði um rúmlega 26 þús- und á milli ára, sem er aukning um 51,6 prósent. Einungis ferðamönnum frá Kína fjölgaði hlutfallslega meira, en þeim fjölgaði um 69 prósent. Alls komu tæplega 68 þúsund Bretar til landsins. Þeim fjölgaði um rúm tólf prósent á milli ára og er sá hópur sá næstfjölmennasti sem hingað kemur ef mælt er eftir þjóðerni. Í samantekt DataMarket kemur fram að tæpur helmingur þeirra kemur utan hins hefðbundna háannatíma (maí-október). Það er langhæsta hlutfall ferðamanna frá einu landi sem heimsækir Ísland utan hans. Til samanburðar má geta þess að einungis um 17 prósent þeirra 57 þúsund þýsku ferðamanna sem komu til Íslands á síðasta ári ferðuðust hingað utan háannatíma. Alls komu samtals 15.686 ferðamenn um Leifsstöð frá Kína og Japan í fyrra. Kínverskum ferðamönnum fjölgaði gríðarlega, um 69 prósent á milli ára, en samanlagt hlutfall ferðamanna frá þessum tveimur gríðarfjölmennu Asíuríkjum er samt sem áður ekki nema tæp þrjú prósent af öllum þeim ferðamönnum sem komu til Íslands á árinu 2011. Ástæður þess eru helst þær að ekki er flogið beint til Íslands frá neinu Asíulandi. BRETAR KOMA HINGAÐ ALLT ÁRIÐ Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það afleitt að rauneyðsla ferðamanna sé að dragast saman. „Markmiðið er alltaf að fá ferðamenn til að eyða meira. En það er hægara sagt en gert að stýra því nema að vera með vörur til sölu sem eru verðmætar og eftirsóknarverðar. Við megum heldur ekki gleyma því að það er kreppa í öllum heiminum, þar með talið á okkar helstu markaðssvæðum.“ Að hennar sögn vantar tilfinnanlega meiri rannsóknir og betri greiningar á ferðaþjónustugeiranum en til eru í dag. „Okkur vantar til dæmis mun betri upplýsingar um hvaðan tekjurnar koma. Það eru til upplýsingar um skiptingu milli flugtekna og annarra tekna, en það er ekki nóg. Það skiptir gríðarlega miklu máli að fá betri greiningu á hvaðan tekjurnar koma til að hjálpa við að ná því markmiði að auka tekjur á hvern ferðamann. Eitt af því sem við þurfum að gera er að framkvæma svokallaðar markaðsgreiningar. Þær kosta mikla peninga, en skoða hvaða hópar vilja hvaða vöru og eru tilbúnir að borga peninga fyrir þær. Margar þjóðir eru að framkvæma slíkar greiningar, en við höfum ekki verið að gera þær.“ Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður markaðssóknar hjá Íslandsstofu, segir markhópagreiningu hafa farið fram hjá stofunni að undanförnu. „Undanfarið höfum við verið að reyna að greina þann hóp sem hefur áhuga á Íslandi. Við höfum verið að reyna að meta hann ekki út frá landfræðilegum þáttum eða aldri heldur meira út frá áhugamálum fólks. Þetta er vinna sem við eru rétt byrjuð að tæpa á. Í þessari vinnu höfum við skilgreint markhóp sem við köllum „hinn upplýsta ferðamann“. Hann er lífsstílsmiðaður ferðamaður sem sækist eftir fleira en hinu venjulega. Hann fer ekki í týpískar verslunarferðir, er duglegur að sækja sér upplýsingar á netinu og er tilbúinn að deila upplifunum sínum. Við viljum síðan greina þennan hóp dýpra í kjölfarið.“ Hún segir Íslandsstofu nýverið hafa gert viðhorfskönnun í fjórum löndum: Þýskalandi, Frakklandi, Danmörku og Bretlandi. „Í þeim erum við að meta hverjir það eru sem eru jákvæðir gagnvart Íslandi sem áfangastað og hverjir það eru sem vilja ferðast til Íslands í framtíðinni. Í þessum könnunum erum við ekki að tala við ferðamenn sem þegar koma til landsins, heldur þá sem við eigum enn eftir að ná til.“ Að sögn Ingu Hlínar snérist „Inspired by Iceland“ átakið að sumu leyti um að reyna að fá ferðamenn til að eyða meiri peningum hérlendis en þeir gerðu áður. „Þar vorum við að láta þá vita af öllu sem hægt er að gera á Íslandi. Að láta vita af matnum, hönnuninni og svo framvegis. Þar var lögð áhersla á að það sé meira í boði á Íslandi en bara náttúran, sem verður þó alltaf númer eitt.“ ÞARF AÐ FRAMKVÆMA MARKAÐSGREININGAR INGA HLÍN PÁLSDÓTTIR ERNA HAUKSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.