Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 2
6. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR2 Eva María, er þetta ekki svo- lítið hinsegin ferðaþjónusta? „Jú, því við erum svo hýr á brá.“ Eva María Þórarinsdóttir og kærastan hennar Birna Hrönn Björnsdóttir eru eigendur Pink Iceland sem býður upp á brúðkaupsþjónustu fyrir samkynhneigða ferðamenn. SPURNING DAGSINS SAMFÉLAGSMÁL Nýr gervigrasvöll- ur var vígður í fangelsisgarðin- um við Litla-Hraun á mánudag. Við tilefnið var leikinn fótbolta- leikur milli FC Betri, fótboltaliðs fanga, og úrvalsliðs úr fótbolta- heiminum. „Ég held að leikurinn hafi farið 12-2 fyrir úrvalsliðið,“ segir Hermann Gunnarsson, útvarps- maður, sem stýrði úrvalsliðinu. „Þarna var valinn maður í hverju rúmi, Tommy Nielsen, Bjarnólf- ur Lárusson, Sigurvin Ólafsson, Pétur Marteinsson og fleiri.“ „Þetta var alveg stórkostlegur dagur. Aðstaðan þarna er alveg meiriháttar og ekki veitir af eins og ástandið er þarna núna.“ Gunnar Svavarsson, fyrrver- andi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, stóð fyrir fjáröflun og því að völlurinn væri lagður. Evrópska knattspyrnusambandið styrkti Knattspyrnusamband Íslands um þrjár milljónir til kaupa á vellin- um. Knattspyrnuvinafélag Litla- Hrauns safnaði sjö milljónum til viðbótar svo hægt væri að kaupa efni í völlinn. Fjölmörg fyrirtæki styrktu söfnunina. „Þetta var mikil viðhöfn. Sóli Hólm og Eyjólfur Kristjánsson komu og skemmtu fyrir leik- inn. Svo fengum við Halldór Einarsson í Henson viðurkenn- ingu. Gunnar Svavarsson fékk líka viðurkenningu enda er hann maðurinn sem dreif í þessu,“ segir Hemmi Gunn. Eftir leik- inn gæddu fótboltamennirnir sér á grillmat og ís. Hemmi hefur lengi staðið fyrir skemmtunum á Litla-Hrauni og efnt til fótboltaleikja. „Ég og Halldór sátum í stjórn Verndar og sáum ekki ástæðu til annars en að láta gott af okkur leiða. Við byrj- uðum því að fara með fótboltalið og skemmtikrafta austur að Litla- Hrauni árið 1984. Þá var bara spilað á grjóthörðum malarvelli og Ómar Ragnarsson og Halli og Laddi skemmtu í kjölfarið.“ Spurður hvort hann hafi ekki tekið þátt í ár og sparkað í knött- inn segist hann bara hafa sparkað boltanum til þeirra í þetta skipt- ið. „Ég setti bara upp leikskipu- lag, það fóru allir eftir því og ég var mjög ánægður með það. Ég á örugglega framtíð fyrir mér í þjálfun!“ birgirh@frettabladid.is Lið Hemma rassskellti fangana á nýjum velli Hemmi Gunn stýrði úrvalsliði fótboltamanna til sigurs gegn liði fanga í fyrsta leik á nýjum fótboltavelli við fangelsið á Litla-Hrauni. Nýi völlurinn var vígður við mikla athöfn á mánudag. Þetta var alveg stórkostlegur dagur, segir Hemmi. STÓRSIGUR Úrvalslið Hemma Gunn gekk vasklega til leiks og sigraði FC Betri, lið fanga á Litla-Hrauni, 12-2 á nýja fótboltavellinum í garði fangelsisins. MYND/WWW.DFS.IS HAGSTOFA Íslendingar gætu orðið allt að 498 þúsund talsins árið 2061 ef mannfjöldaspá Hagstofu gengur eftir. Útreikningar Hagstofu fyrir árabilið 2012 til 2061 gera ráð fyrir fjórum þáttum, núverandi fólksfjölda, áætlun um búferla- flutninga á tímabilinu, áætl- uðum dánarlíkum og áætluðu frjósemishlutfalli. Mannfjöldaspáin gerir ráð fyrir vissum frávikum og setur fram lágspá, miðspá og háspá. Samkvæmt lágspánni yrði mannfjöldinn 393 þúsund árið 2061, samkvæmt miðspá yrðu Íslendingar 436 þúsund, en 498 þúsund samkvæmt háspánni. Aldurskipting landsmanna mun breytast mjög á tímabilinu. Hlut- fallslega fjölgar í hópi 65 ára og eldri en yngra fólki fækkar. - þj Hagstofa Íslands gefur út mannfjöldaspá til ársins 2061: Íslendingar gætu náð 500.000 MANNFJÖLDI Samkvæmt spá Hagstofu gætu Íslendingar orðið allt að 498 þúsund talsins árið 2061. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Í byrjun árs voru íbúar landsins 319.575 og hafði fjölgað um 0,4 prósent frá sama tíma árið áður. Árið 2011 fæddust 4.496 börn en 1.985 manns létust. Þá fluttust 6.982 utan en 5.578 fluttust til landsins. Fjölmennasta sveitar- félagið var Reykjavík með 118.814 íbúa, fámennasta var hins vegar Árnes- hreppur á Ströndum þar sem 52 bjuggu. (Heimild: Hagstofa Íslands) Fjölgun um 0,4% REYKJAVÍK Einar Örn Benedikts- son, borgarfulltrúi Besta flokks- ins, þáði boð í jómfrúarferð flugfélagsins WOW air til Parísar fyrir helgi. Lagt er bann við því í siða- reglum borg- arinnar að borgarfulltrú- ar þiggi gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskiptamönnum eða þeim sem leita eftir þjónustu Reykjavík- urborgar, nema um sé að ræða óverulegar gjafir. Einar segir í samtali við Vísi að hann telji sig ekki hafa brotið siðareglurnar enda hafi hann farið í ferðina sem æskuvinur Skúla Mogensen, eiganda WOW air, en ekki sem borgarfulltrúi. Auk þess hafi hann borgað 5.900 krónur fyrir farið. - sh Borgarfulltrúi Besta flokksins: Þáði boð í ferð með WOW air EINAR ÖRN BENEDIKTSSON MANNRÉTTINDI Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að loka máli gegn íslenskum stjórn- völdum, þar sem stjórnvöld hafi brugðist við tilmælum nefndarinn- ar með ásættanlegum hætti að hluta til. Áður hafði nefndin gert ríkinu að greiða tveimur íslenskum sjó- mönnum bætur og endurskoða fisk- veiðistjórnarkerfið hér á landi. Þetta kemur fram í orðsendingu sem mannréttindafulltrúi SÞ sendi stjórnvöldum á mánudag og utan- ríkisráðuneytið greindi frá í gær. Sjómennirnir Erlingur Sveinn Haraldsson og Örn Snævar Sveins- son óskuðu eftir því við nefndina árið 2003 að hún kannaði hvort íslensk stjórnvöld hefðu gerst brot- leg við alþjóðasamning um borgara- leg og stjórnmálaleg réttindi. Í 26. grein samningsins er kveðið á um að allir skuli vera jafnir fyrir lög- unum og lög skuli banna hvers kyns mismunun. Þeir sögðust lagalega skyldir til að greiða fé til forrétt- indahóps samborgara sinna til að geta starfað sem sjómenn, því þeir fengju ekki úthlutað kvóta. Íslensk stjórnvöld töldu sig ekki vera í stöðu til að greiða bætur né heldur breyta fiskveiðistjórnunar- kerfinu umsvifalaust, en sögðust myndu hafa tilmæli nefndarinnar til hliðsjónar við endurskoðun fisk- veiðikerfisins. - þeb Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna vegna máls tveggja sjómanna sem kvörtuðu: Lokar máli gegn íslenskum stjórnvöldum LANDAÐ Stjórnvöld hafa brugðist við ábendingum mannréttindanefndar SÞ með viðeigandi hætti að hluta, segir nefndin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ALÞINGI Innanríkisráðherra skal undirbúa aðgerðaáætlun gegn skipulagðri glæpastarfsemi fyrir þann 1. desember næstkomandi. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendi frá sér álit um þingsályktunartillögu þess efnis í gær. Fjármálaráðherra skal tryggja 50 milljóna króna fjárveitingu til lögreglunnar í fjáraukalög- um þessa árs til að lögreglan geti starfrækt rannsóknar- og aðgerðateymi gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Brýn þörf er talin vera á sérstökum aðgerð- um gegn skipulagðri glæpastarf- semi sem og að stemma stigu við vændi og mansali. - sv 50 milljónir gegn glæpum: Ráðherra hefur til 1. desember PAKISTAN, AP Bandaríkjamenn full- yrtu í gær að Abu Yahya al-Libi, næstæðsti yfirmaður al-Kaída, hafi fallið í árás bandarísks flyg- ildis á lítið þorp í ættbálkahér- aðinu Norður-Waziristan í Pak- istan. Pakistönsk stjórnvöld hafa kraf- ist þess að Bandaríkjamenn hætti að nota svonefnd flygildi, lítil ómönnuð flugtæki, til árása í land- inu vegna þess hve slíkar árásir hafa oft kostað almenna borgara eða pakistanska hermenn lífið. - gb Bandarísk árás í Pakistan: Einn leiðtogi al- Kaída féll í árás ABU YAYHA AL-LIBI Næstæðsti yfir- maður al-Kaída sagður drepinn. NORDICPHOTOS/AFP NOREGUR Að öllum líkindum verð- ur dæmt í máli norska hryðju- verkamannsins Anders Behring Breivik þann 20. júlí eða 24. ágúst næstkomandi. Aðrar dag- setningar á þessu tímabili koma þó einnig til greina. Þetta kemur fram á heima- síðu dómstólsins í Ósló, þar sem réttarhöldin yfir honum fara nú fram. Þar stendur að ekki verði kveðinn upp dómur fyrir 20. júlí, en búist er við því að réttarhöldin standi til 22. júní. Hingað til hefur verið talið lík- legt að dómur yrði kveðinn upp 20. júlí, tveimur dögum áður en ár verður liðið frá árásum Brei- viks. - þeb Dómstóll í Ósló: Breivik líklega dæmdur 20. júlí Ég setti bara upp leikskipulag, það fóru allir eftir því og ég var mjög ánægður með það. Ég á örugglega framtíð fyrir mér í þjálfun!“ HERMANN GUNNARSSON KNATTSPYRNUSTJÓRI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.