Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 4
6. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR4 GENGIÐ 05.06.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 223,0451 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 129,49 130,11 198,79 199,75 160,96 161,86 21,657 21,783 21,204 21,328 17,948 18,054 1,6538 1,6634 195,55 196,71 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Ranglega var sagt í Fréttablaði gærdagsins að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefði orðið fyrir von- brigðum með málshraða hjá embætti Umboðsmanns Alþingis. Þar var átt við embætti Umboðsmanns skuldara. LEIÐRÉTT Bretar eru að meðaltali 8,4 kílóum þyngri en þeir voru árið 1980. 8,4 kg STJÓRNSÝSLA Þrjár tillögur af átján hlutu verðlaun í hönnunarsam- keppni innanríkisráðuneytisins um nýtt fangelsi á Hólmsheiði í Reykjavík. Fyrstu verðlaun, fimm milljónir króna, hlaut til- laga Arkís arkitekta. Að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, sérfræðings í inn- anríkisráðuneytinu og formanns dómnefndar, taka nú við samn- ingar um endanlega hönnun fang- elsisins. „Vonandi verður hægt að ljúka því og hefja framkvæmdir í upphafi næsta árs,“ segir hún, en stefnt er að því að taka fangelsið í notkun fyrir mitt ár 2015. Í öðru sæti í samkeppninni var tillaga frá Arkitektur.is, sem fékk fjórar milljónir í verðlaun, og í því þriðja var tillaga Teikni- stofunnar Traðar, sem fékk eina milljón króna í verðlaun. Steinunn segir verkefnið ekki hafa verið einfalt því fangels- ið eigi bæði að vera kvenna- fangelsi og gæsluvarðhalds- og öryggisfangelsi með 56 fanga- rýmum. Flókið geti verið að tryggja nauðsynlegan aðskilnað fanga og fangadeilda og sveigj- anleika í rekstri. „Þessi hræði- legi atburður sem nýverið varð á Litla Hrauni sýnir hins vegar vel þörfina á því að reisa fang- elsi af þessu tagi þar sem hægt er að skilja að hættulega fanga,“ segir hún og vísar til þess að and- lát fanga á Litla-Hrauni er talið til komið vegna áverka sem sam- fangar hans veittu honum. Tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna þess máls. Í niðurstöðu dómnefndar um vinningstillöguna er hún sögð svara einstaklega vel áherslum í samkeppnislýsingu. „Einkum eru gæsluvarðhaldsþættinum gerð frábær skil, sem og aðalvarðstofu og miðlægum rýmum,“ segir þar. Aðalvarðstofan er miðlægur sívalningur umlukinn dagsbirtu sem fellur niður um ofanljós, segir þar jafnframt, og inngarð- ar sagðir mynda hjarta hverrar fangadeildar. Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra sagði við kynn- ingu á niðurstöðum dómnefndar í gær að um merk tímamót væri að ræða, enda hefði í rúma hálfa öld verið stefnt að því að reisa nýtt fangelsi í Reykjavík. „Síðan hefur þetta gengið afar skrykkj- ótt þar til nú að við erum klár- lega komin á beinu brautina og sjáum fyrir að fangelsið verði risið og komið í notkun áður en árið 2015 verður runnið á enda,“ sagði hann. olikr@frettabladid.is Fangelsið á beinu brautina Arkís arkitektar urðu hlutskarpastir í samkeppni um hönnun á nýju fangelsi á Hólmsheiði. Taka á nýtt fangelsi í notkun árið 2015. Hætt verður að nota Kópavogsfangelsi og Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. Á HÓLMSHEIÐI Svona er umhorfs þar sem nýtt fangelsi á að rísa, skammt austan Rauðavatns í nágrenni borgarinnar. Til að komast að fangelsinu er ekið út af Suður- landsvegi eins og halda eigi á Nesjavelli og er þá afleggjarinn að lóðinni skammt undan. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VINNINGSTILLAGAN Tillögur sem sendar voru inn í samkeppni um Hólmsheiðarfangelsi héngu uppi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HEILBRIGÐISMÁL Bretar eru að með- altali 8,4 kílóum þyngri en þeir voru árið 1980. Þetta kom meðal annars fram í máli Tim Lobstein á ráð- stefnu norrænna næringarfræðinga á mánudag. Í erindi sínu fjallaði hann um gríðarlegt tekjutap matvælaiðnað- arins í Bretlandi ef allir borðuðu ráðlagða fæðu í ráðlögðum skömmt- um. Hann hefur reiknað út að ætli Bretar að ná meðallíkamsþyngd sinni fyrir 32 árum myndi það kosta matvælaiðnaðinn 8,6 millj- arða punda á ári, sem janfgildir um 1.700 milljörðum íslenskra króna. Á sunnudag flutti Matti Uusitupa erindi þar sem hann greindi frá rannsóknum á mismunandi mat- aræði. „Nýlegar rannsóknir benda til þess að norrænt mataræði tengist lægri dánartíðni og minnki hættu á hjarta og æðasjúkdómum,“ segir í inngangi að fyrirlestri hans. - bþh Matvælaframleiðendur missa spón úr aski ef allir borða ráðlagt magn af mat: Þúsundir milljarða til að létta Breta ÞYNGJAST Meðalþyngd Breta er rúmum 8 kílóum meiri í dag en hún var árið 1980. NORDICPHOTOS/AFP FULLKOMINN FERÐAFÉLAGI! www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 25° 16° 16° 21° 21° 16° 16° 25° 18° 28° 22° 32° 17° 21° 19° 17°Á MORGUN Strekkingur með SA- strönd annars hægari. FÖSTUDAGUR Hvasst með S-strönd- inni annars töluvert hægari. 13 9 9 6 89 11 11 1112 10 8 9 9 5 5 5 6 4 7 3 10 9 8 7 7 6 9 8 7 8 5 SVALT N-LANDS í dag og líklega slydda þar til fjalla. Á morgun hlýnar nokkuð en gæti kólnað heldur aftur norðaustanlands á föstudag. Það verður væta með ströndum austan og sunnan til frá og með morgundeg- inum en líklega að mestu leyti þurrt norðantil. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður ÁLANDSEYJAR Danne Sundman, stjórnmálamaður á Álandseyjum, segir að þegar finnsk yfirvöld geti ekki lengur haft samskipti við Álandseyjar á sænsku sé kominn tími til að sameinast Svíþjóð. Hann segir að tvítyngdir Finnar séu að komast á ellilífeyrisaldur og nú kunni í raun fáir finnskir embættismenn sænsku. Samskipt- in við finnska stjórnmálamenn í Helsinki fari nú fram á ensku. Árið 1921 ákvað Þjóðabanda- lagið að Finnar fengju að halda Álandseyjum svo framarlega sem tryggt yrði að þar yrði áfram töluð sænska. - ibs Krafa íbúa Álandseyja: Eyjarnar sam- einist Svíþjóð ATVINNA Rúmlega helmingur þeirra ungmenna sem sóttu um sumarstarf hjá Reykjavíkurborg fær vinnu í sumar. Öll ungmenni sem sóttu um hjá Kópavogsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesbæ fá vinnu, en ekki hefur verið ákveð- ið hvernig málunum verður hátt- að í Hafnarfirði. Reykjavíkurborg ætlar að ráða um 1.400 starfsmenn í sumar- og afleysingastörf, en rúmlega 4.000 umsóknir hafa borist. Þá fá allir fimmtán og sextán ára unglingar starf hjá Vinnuskóla Reykjavíkur en um 1.450 hafa sótt um það. Því fá samtals 2.850 ungmenni vinnu hjá borginni. - þeb Ungmenni fá sumarstörf: Helmingur fær vinnu hjá borg KOSNINGAR Ríkisútvarpið er ekki vanhæft til að fjalla um forseta- kosningarnar 2012 þótt fram- bjóðandinn Þóra Arnórsdóttir og Svavar Halldórsson, maður henn- ar, hafi starfað hjá stofnuninni og séu nú í launalausu leyfi þaðan. Þetta er niðurstaða álitsgerð- ar sem Róbert Spanó, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, og Trausti Fannar Valsson, lektor í stjórnsýslurétti, hafa unnið fyrir Ríkisútvarpið. Nánir vinir fram- bjóðenda geti talist hlutdrægir en ekki endilega samstarfsmenn. - sh Samstarfsfólk ekki vanhæft: RÚV má fjalla um forsetakjör

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.