Fréttablaðið - 09.06.2012, Side 16
9. júní 2012 LAUGARDAGUR16
Þ
ið lofuðuð því þegar þið tókuð
við að þið ætluðuð að gera
Reykjavík skemmtilegri. Hvern-
ig hafið þið gert það?
„Við höfum gert það á marg-
víslegan hátt. Við höfum lagt
mikla áherslu á blómlegt mannlíf í mið-
borginni. Ég get til dæmis nefnt sumar-
lokanir á götum, sem er búið að vera mjög
flókið verkefni í alla staði. Rekstraraðilar
hafa margir verið á móti þessu en reynsl-
an hefur verið gríðarlega góð og íbúar eru
ofsalega ánægðir. Síðasta vor gengu svo í
gildi reglur sem höfðu ekki verið til áður
sem gefa fólki kost á að stunda torg- og götu-
sölu. Ég er mjög stoltur af því, og líka bara
almennri ásýnd mið bæjarins, ekki síst utan
háannatíma. Ég var til dæmis ofboðslega
ánægður með Jóla borgina núna í desember
þar sem við vörpuðum myndum af hinum
ýmsu jóla vættum á veggi.“
Þú talar mikið um miðbæinn, hefur afgang-
urinn af borginni líka orðið skemmtilegri?
„Okkur er svolítið legið á hálsi fyrir að
leggja of mikla áherslu á miðborgina en það
er ekki að ástæðulausu. Það er vegna þess
að fyrir borgina er miðborgin svolítið eins
og stássstofa og þangað bjóðum við gestum.
Núna, þegar ferðamannaiðnaðurinn er að
verða einn helsti atvinnuvegur þjóðarinnar,
er mjög mikilvægt að hlúa sérstaklega vel
að henni. Við höfum vissulega staðið fyrir
ýmsum litlum og stórum málum hér og þar
í borginni, til dæmis það „stönt“ að velja
Reykvíking ársins og gefa alþýðuhetjum
tækifæri til að veiða í Elliðaánum. Svo að
já, ég tel að við höfum náð að innleiða gleði
og skemmtun inn í hverfin.“
Önnur sveitarfélög þvo hendur sínar
Hvernig hefur þín sýn á stjórnmál breyst á
þessum tíma? Þú komst alveg ósnortinn inn
í þessa pólitík. Finnst þér þú hafa á einhvern
hátt hafa orðið hluti af því sem þú lofaðir að
breyta?
„Nei, mér finnst það ekki. Ég hef mikið
velt því fyrir mér hvort þetta sé smitandi
ástand. Ég hef verið spurður að þessu alveg
frá því að ég byrjaði en ég hef ekki upplifað
þennan ótta hjá mér. Sýn mín á stjórn málin
almennt hefur hins vegar dýpkað mjög og
þroskast af samskiptum mínum við fólk í
þessum menningarkima. Þau hafa orðið til
þess að ég hef þurft að gera upp hug minn
í ýmsum málum. Ég hef í raun verið svo-
lítið „lost“ í stjórnmála skoðunum og þær
hafa þroskast og skýrst. Ég verð alltaf meiri
og meiri sósíalisti, sem er hugtak sem fólk
leggur misjafna merkingu í. Ég átta mig
sífellt betur á því hvernig við erum leik-
soppar kapítalismans – og ég er sem sagt
orðinn sósíalisti.
Ég trúi því að við eigum að reyna að skapa
hér samfélag jafnræðis og forðast misskipt-
ingu. Ég tel að auðlindir þjóðarinnar eigi að
vera í eigu þjóðarinnar og nýtast þjóðinni –
og það er sósíalismi. En um leið eigum við að
leggja áherslu á frelsi einstaklingsins. Það er
þessi tegund sósíalisma sem hefur verið nefnd
líbertarían sósíalismi – sem er fansý orð yfir
anarkisma – sem ég er svo staðfastur í.“
Munum við fá að sjá það birtast með skýrari
hætti í borgarmálunum á næstunni?
„Ég trúi á mikilvægi beins lýðræðis, þátt-
tökulýðræðis og bind miklar vonir við að sem
flestir muni nota vefinn Betri Reykjavík. Mér
finnst líka ekki að sveitarstjórnarstig eigi að
vera pólitískur átakavettvangur. Það er úrelt
aðferðafræði og meiri tækifæri í beinu lýð-
ræði og fagmennsku sem er þó ekki teknó-
kratísk.
Svo hef ég talað mjög fyrir samvinnu og
sameiningu sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu. Tekjur eru farnar að hafa áhrif á
búsetu fólks og það finnst mér grafalvarleg
þróun. Ég mun reyna að sporna gegn henni.
Mér finnst Reykjavík líka oft fá ósanngjarna
útreið í umræðunni. Hún tekur við gríðar-
lega flóknum málum sem hin sveitarfélögin í
kringum okkur þvo hendur sínar af.“
Eins og hvaða málum?
„Ég get nefnt útigangsfólk og framboð á
félagslegum úrræðum. Þar stendur Reykja-
víkurborg sig gríðarlega vel en fær mjög lítið
kredit fyrir. Ég hef oft tekið góðgerðarfélög
sem dæmi. Skoðum bara Fjölskylduhjálp
Íslands. Reykjavíkurborg er eina sveitarfé-
lagið sem styrkir hana, en fólkið sem leitar til
hennar er ekki allt með lögheimili í Reykjavík.
Annað dæmi, sem mér finnst lýsandi, er Katt-
holt – dýraverndunarúrræði fyrir týnda ketti.
Reykjavík er eina sveitarfélagið sem styrkir
það með einhverjum hætti, en kettirnir koma
hvaðanæva að. Ég hef hvatt hin sveitarfélögin
til þess að taka ríkari þátt í þessu og finnst
þetta mikið sanngirnismál.“
Skólamál snerta tilfinningar og öryggi
Sameining skóla hefur ekki skilað eins
miklum sparnaði og stefnt var að og víða er
fólk enn mjög reitt. Er ekki ljóst að þið hafið
farið rangt að?
„Nei, ég tel það ekki. Þarna er bara um
rosalega viðkvæmt mál að ræða sem snertir
tilfinningar fólks og öryggi þess. Við þurftum
að spara og hagræða í skólakerfinu en helst
án þess að skerða þjónustuna eða þannig að
það bitnaði á kennslunni eða fag mennskunni.
Nágrannaþjóðir okkar hafa verið í sömu
sporum og víða, til dæmis í Danmörku,
hefur þurft að loka skólum. Þar hefur ferlið
verið nákvæmlega eins; fólk er reitt, segir að
þetta sé óþarfi og heldur kertafleytingar. Við
náðum að fara mildari leið með sameiningum
og við vissum frá upphafi að það yrði alveg
gríðarlega erfitt. Fólk vill helst ekki að þú sért
að hræra í skólanum eða leikskólanum. En við
hefðum aldrei farið út í þetta að vanhugsuðu
máli eða vegna þess að við værum ekki viss
um hvað við værum að gera – og hefðum þá
heldur aldrei náð að fylgja þessu svona eftir.
Samráðið, og hvernig hefur verið staðið að
þessari vinnu, hefur verið algjörlega til fyrir-
myndar.“
Nasa er ekki á fasteignavefnum
Fólk furðar sig á málefnum Nasa við Austur-
völl. Innan Besta flokksins starfar fólk sem
hefur hreinlega verið andlit íslenskrar menn-
ingar og lista, jafnvel í áratugi. Þið lögðuð
upp með að gera þeim málaflokki hátt undir
höfði og voruð meðal annars kosin út á það, en
svo kemur einhver hótelbyggjandi á vettvang
og þið segið: Sorrí, við getum ekkert gert. Er
þetta ekkert skrítið?
„Hann náttúrulega kemur ekki, þessi hótel-
byggjandi – hann er löngu kominn. Þessi
samningu var löngu frágenginn fyrir okkar
tíma. Mjög gjarnan er sagt: Þetta er ekkert
mál, Reykjavíkurborg á bara að kaupa þetta.
Það er mjög sérstakt, vegna þess að mér vitan-
lega er þetta ekki til sölu. Þetta er ekki inni á
fasteignavefnum. Svo er hitt, að ef það væri
bara tónlistarfólk og listamenn sem hefði
kosið Besta flokkinn þá væri ég ekki borgar-
stjóri. Ég er borgarstjóri allra Reykvíkinga,
ekki bara afmarkaðs hóps af fólki sem er
einhvers konar vinir mínir og kunningjar.
Í rauninni er eins og það sé verið að biðja
um fyrirgreiðslu á þeirri forsendu, sem mér
finnst ekki sanngjarnt.
Málsmeðferðin sem við á endanum
sættumst á var að hafa um þetta samkeppni
og reyna að fá heildstæða lausn á þessu svæði,
sem er náttúrulega hjarta borgarinnar. Ég hef
beðið fólk að slaka aðeins á og bíða eftir því
hvað kemur út þeirri samkeppni og „den tid
den sorg“. Við bara skoðum það þegar það
liggur fyrir.“
Eðlilegt og mikilvægt að fara í boðsferðir
Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta
flokksins, flaug til útlanda í boði WOW Air.
Maður spyr sig hvort þú og þið hefðuð verið
hrifin af þessu ef þetta hefði verið fulltrúi
einhvers annars flokks í aðdraganda síðustu
kosninga, til dæmis. Finnst þér þetta eðlilegt?
„Ég fellst algjörlega á skýringar Einars á
þessu og sé ekki að hann hafi gert neitt ljótt
eða óeðlilegt. Í siðareglum borgarfulltrúa
er okkur gert að skýra frá öllum hagsmuna-
tengslum á heimasíðu og Einar hefur gert það.
Ég hef séð myndir úr þessari ferð og hann
er mjög sýnilegur á þeim, þarna voru líka
margir fjölmiðlamenn þannig að þetta var
ekkert leynimakk eða feluferð.
Það fóru líka tveir starfsmenn borgarinnar í
þess ferð og fólk hefur spurt hvort það sé eðli-
legt. Mér finnst það mjög eðlilegt og beinlínis
mjög mikilvægt. Ferðamanna straumurinn til
Reykjavíkur er að aukast mjög og við erum að
markaðssetja Reykjavík fyrir þá. Kynning á
Íslandi og Reykjavík fer mikið fram í gegnum
flugfélög og það er mjög mikilvægt að okkar
fulltrúar komi þar að, þó ekki sé nema bara
til að hafa eftirlit með því hvernig er verið að
markaðssetja, hvað er verið að leggja áherslu
á, hverjir eru að sýna þessu áhuga og svo
framvegis. Það er bara hluti af nútímasam-
félagi að það er einhver vettvangur sem heitir
„social life“, sem gegnir mikilvægu hlutverki
þótt fólk hafi misjafnar skoðanir á því. Við
erum, sem þjóð, brennd eftir allar einkaþotu-
ferðirnar og almennan lúxus, en við megum
samt ekki halda að allt sem tengist svona
ferðum eða samstarfi við einkaaðila sé bara
innantómt prjál og algjörlega verðmætalaust,
því að það er það ekki.“
Slæm ára yfir Alþingi
Ertu eitthvað farinn að huga að næsta kjör-
tímabili? Ætlarðu að fara fram aftur, eða ertu
jafnvel að velta fyrir þér landsmálum?
„Nei, mér finnst Reykjavík vera alveg feiki-
nógur vettvangur fyrir mig. Það er reyndar
sorglegt að það sé ekki spennandi að fara og
skipta sér af landsmálum, en það er það bara
alls ekki. Það er slæm ára yfir því. Mér finnst
tilhugsunin um að fara á Alþingi bara „scary“.
Ég brenn fyrir þessari borg. Ég hef haft
tækifæri alla ævi til að flytja eitthvert annað
en ég hef ekki kært mig um það. Mér finnst
vænt um þessa borg – mér þykir alveg vænt
um hana á væminn hátt – og ég er stoltur af
henni. Og mig langar til þess að vinna henni
gagn. Það eru hins vegar óvissuþættir í þessu.
Nú eru alþingiskosningar að nálgast. Hvaða
áhrif mun það hafa á málin hér? Maður veit
það ekki. Við komum inn í borgina eftir hrun
á gríðarlega erfiðum tímum. Kannski verður
það allt breytt eftir ár og ný tækifæri fyrir
hendi. Það væri til dæmis freistandi að hafa
úr meiri peningum að spila. Ég hefði miklu
frekar viljað vinna að lagningu hjólreiðastíga
og léttlestakerfis heldur en að finna leiðir til
að spara í skólunum, en þannig hefur þessi
stakkur verið og við höfum þurft að sníða
okkur inn í hann. Þannig að ég lofa því ekki að
ég muni halda áfram en ég útiloka það heldur
ekki.“
Verð sífellt meiri sósíalisti
Jón Gnarr hefur setið lengst allra sem borgarstjóri síðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hætti og telur sig ekki hafa smitast af veikinni
sem hann ætlaði að lækna. Í samtali við Stíg Helgason gagnrýnir hann nágrannasveitarfélögin fyrir að víkja sér undan ábyrgð.
Ég er borgarstjóri allra Reykvíkinga, ekki
bara afmarkaðs hóps af fólki sem er einhvers
konar vinir mínir og kunningar.
EKKERT ÓEÐLILEGT „Það fóru líka tveir starfsmenn borgarinnar í þessa ferð og fólk hefur spurt hvort það sé eðlilegt. Mér finnst það mjög eðlilegt og beinlínis mjög
mikilvægt,” segir Jón um jómfrúarferð WOW Air til Parísar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Reykjavíkurborg hefur átt nokkuð erfitt með að halda fjárhagsáætlun. Jón segir gengisbreytingar hafa langmest áhrif á afkomu borgarsjóðs í gegnum lán Orkuveit-
unnar. Reynt sé að gera ráð fyrir sveiflunum en það sé hægara sagt en gert. „Svo má
reyndar líka nefna launahækkanir í kjölfar kjarasamninga. Þær höfðu gríðarleg áhrif
síðast.“
Ráðist hefur verið í harkalegar aðgerðir innan Orkuveitunnar og Jón segir árangur-
inn af þeim góðan. Meirihlutinn hafi verið heppinn með nýjan forstjóra, Bjarna Bjarna-
son, og ákvarðanirnar hafi gefist vel, þótt þær hafi ekki verið þægilegar. Þó eigi enn
eftir að ljúka nokkrum málum. „Til dæmis eignasalan. Menn vita hvernig okkur gekk
að reyna að selja Perluna,“ segir hann og skellir upp úr. „Það gekk brösuglega, en það
er hluti af aðgerðaráætluninni og við munum halda áfram að reyna að klára það.“
Um þessar mundir fer fram ítarleg úttekt á Orkuveitunni og það verði fróðlegt að sjá
hvað kemur út úr henni. „Það er mikilvægt að hafa í huga að hlutfallslega er Orkuveit-
an samsvarandi vandamál fyrir Reykjavíkurborg og bankarnir voru fyrir ríkið.“
Orkuveitan svipað vandamál
og bankarnir voru fyrir ríkið