Fréttablaðið - 09.06.2012, Qupperneq 18
9. júní 2012 LAUGARDAGUR18
E
rla Björk heilsar okkur
á skrifstofu sinni
á þriðju hæð í hinu
virðulega skólahúsi á
Hólum. Hillurnar eru
tómlegar enn, enda er
þetta annar dagur hennar í emb-
ætti rektors, þeim fyrsta varði hún
í fundahöld í höfuðborginni. Hún
er snaggaraleg í hreyfingum þegar
hún grípur hlut af borðinu og sýnir
okkur. „Þetta er veldissprotinn,
tákn fyrir embætti Hólarektors og
mér finnst það yndislegt, enda er ég
uppalin við kindur,“ segir hún kank-
vís og lyftir brennijárni sem notað
var til að merkja sauðfé staðarins
á hornunum, meðan þar var búnað-
arskóli. Erla kveðst hafa tekið við
járninu úr hendi Skúla Skúlasonar,
fyrrverandi rektors, er hann lét af
embætti eftir 13 ára skólastjórn, og
ætla að varðveita það vel.
Einstök upplifun að flytja að Hólum
Við Erla Björk ákveðum að ganga
út í góða veðrið og spjalla saman.
Skammt frá skólahúsinu er bú staður
hennar, að Prestssæti númer 12,
sem heitir eftir litlum hól sem sagan
segir að prestur staðarins hafi notað
sem sæti til íhugunar. Þaðan er góð
yfirsýn yfir sveitina. Nú er flagg-
stöng á hólnum og þar mun Erla
Björk draga íslenska fánann að húni
þegar tilefni gefast.
Leið okkar liggur með fram veit-
ingastaðnum Undir byrðunni og
niður í blómskrýdda brekku ofan
við kirkjuna. Innt í byrjun eftir
tengslum sínum við Hóla svarar
Erla Björk. „Ég hafði engin tengsl
við Hóla en þau mynduðust um
leið og ég flutti á staðinn. Áður en
ég sótti um hafði ég aðeins komið
hingað einu sinni og áður en ég tók
starfinu hafði ég komið tvisvar, þar
sem ég kom í atvinnuviðtal.“
Erla Björk kveðst ekki einu sinni
eiga ættir að rekja í Skagafjörðinn
heldur vera Borgfirðingur, fædd og
uppalin á Sigmundarstöðum í Þver-
árhlíð. „Ég gekk á grasi í uppvext-
inum og það var mögnuð upplifun
að flytja aftur í sveit. Ég hefði ekki
trúað því að óreyndu hversu jákvæð
hún var. Þó fer ég oft að Sigmundar-
stöðum því einn bræðra minna er
þar bóndi,“ segir hún og bætir við:
„En hingað kem ég af Snæfellsnesi
og þar er einnig fögur náttúra.“
Áhuginn er brennandi
Erla Björk er sjávarlíffræðingur
að mennt og hefur frá árinu 2006
verið forstöðumaður Varar – Sjávar-
rannsóknarseturs við Breiðafjörð.
Hún lauk doktorsnámi við Texas
A&M University árið 2002 og á
ferilskránni eru rannsóknarstörf
í Bandaríkjunum, við Háskóla
Íslands og á Keldum. En hvað hefur
sjávarlíffræðingur að gera svona
langt inni í dal?
Starf mitt sem rektor snýst ekki
um sjávarlíffræði en áhugi minn
á starfinu tengist henni samt því
við skólann eru fiskeldis- og fiska-
líffræðideild. Verið á Sauðárkróki
er frábært rannsóknarumhverfi
í fiskifræði, vatna- og sjávarlíf-
fræði og tengist Hólaskóla. En ég
hef líka átt hest og mér þykir hesta-
fræðin sem hér er kennd spenn-
andi fag og ferðamálafræðin sem
boðið er upp á er fræðigrein sem á
eftir að skipta verulega miklu máli
næstu áratugi fyrir íslenskt sam-
félag. Ég hef sem sagt brennandi
áhuga á þeim greinum sem hér
eru kenndar og sú stjórnunar-og
rekstrarreynsla sem ég hef úr Vör
er veganesti sem á eftir að nýtast
mér. Hlutverk rektors er að skapa
umgjörð fyrir aðra í því sem þeir
geta gert best, eða þannig lít ég á
það. Hér er sterkt teymi einstak-
linga sem hefur starfað að kennslu
og stjórnun, ég er nýgræðingurinn,
blaut á bak við eyrun og samstarfs-
fólkið er reynsluboltarnir. Ég þarf
því að læra hjá öðrum en eitt af því
sem hjálpar mér í því er að ég hef
eldmóð og held að þetta verði mjög
skemmtilegt.“
Stolt af að vera kona
Sjálf gerir Erla Björk ekkert mikið
úr því að vera fyrsta konan til að
taka að sér stjórn Hólaskóla, sem
er 130 ára og byggir á 906 ára sögu
skóla- og menningarstarfs á Hólum.
„Jú, ég er sjálfsagt fyrst kvenna til
að stýra hér skóla, öðrum en grunn-
og leikskóla, en vonandi fer það að
hætta að vera frétt þó kona taki við
einhverju embætti. Skúli Skúla-
son, forveri minn, var fyrsti rektor
Háskólans á Hólum og ég er annar
svo það er 1/1. Ef ég man rétt eru
þrír af sjö rektorum nú konur. Það
er jákvætt og sýnir að við getum
gert það sem við viljum. Ef mín
ráðning verður til þess að ein hverjir
sjá það í nýju ljósi þá er það gott.
Ég mun viljandi draga það fram
í mínu starfi að ég er kona, því ég
er stolt af því. Það eru fleiri konur
en karlar í háskólanámi í dag. Mér
finnst gaman að velta þeirri þróun
fyrir mér. Það veitir manni innsýn
í þá gerjun sem er í samfélaginu,
hvað fólk velur sér til að hafa fyrir
stafni.“
Reksturinn í réttum farvegi
Erla Björk segir námið á Hólum
svolítið öðruvísi en í flestum öðrum
háskólum landsins, stór hluti þess
byggi á verklegum greinum og
drjúgur hluti ferðamálafræði-
nemanna sé í fjarnámi. Samt búi
fjöldi fólks á Hólum yfir veturinn.
„Hólar eru magnaður staður, sögu-
lega mikilvægur og enn í dag bæði
táknrænn og lifandi. Hér eru til
dæmis haldnir tónleikar í kirkjunni
á hverjum sunnudegi yfir sumar-
tímann. Fólki er virkilega annt um
að viðhalda menningunni hér enda
Táknrænn og lifandi staður
Skagafjörður skein við sólu þegar Gunnþóra Gunnarsdóttir og Gunnar V. Andrésson ljósmyndari brunuðu heim að Hólum til
fundar við nýjan háskólarektor, Erlu Björk Örnólfsdóttur, fyrstu konuna í embætti stjórnanda Hólaskóla í 130 ára sögu hans.
REKTORINN „Ég mun viljandi draga það fram í mínu starfi að ég er kona, því ég er stolt af því,“ segir Erla Björk Örnólfsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hólar munu hafa byggst um
miðja 11. öld úr landnámsjörð-
inni Hofi en hana byggði Hjalti
Þórðarson. Því heitir dalurinn
Hjaltadalur.
Oxi Hjaltason bjó á Hólum um
miðja 11. öld. Hann lét gera
kirkju mikla. Um 1100 átti Illugi
Bjarnason jörðina og hann gaf
Hóla til biskupsseturs.
Fyrsti biskupinn á Hólum, Jón
Ögmundsson helgi, tók vígslu
árið 1106 og hélt á staðnum skóla
fyrir prestsefni sem kallaður var
Hólaskóli. Frá tíð Jóns Ögmunds-
sonar er orðtakið „heim að
Hólum“ sem síðan hefur lifað á
vörum Íslendinga.
Skagafjarðarsýsla keypti Hóla
árið 1981 og ári síðar var stofnaður
þar búnaðarskóli en árið 2003
fékk Hólaskóli heimild til að starfa
sem háskólastofnun og vera með
fullt nám til fyrstu háskólagráðu.
Árið 2007 voru samþykkt lög sem
styrktu starf skólans og veittu
honum heimild til að útskrifa
masters- og doktorsnema. Nú eru
kenndar ferðamálafræði, fiskeldis-
og fiskalíffræði við Hólaskóla og
stundað víðtækt vísindastarf.
Heimild/www.holar.is
er þetta biskupssetur og skóli. Hér
eru bæði grunnskóli og leikskóli og
það er jákvætt fyrir barnafólk sem
kemur hingað til náms eða starfa.“
Fjárhagur Hólaskóla – Háskólans
á Hólum var á tímabili í umræðu
vegna erfiðrar stöðu. Þurfti ekki
hugrekki til að sækja um rektors-
stöðuna í ljósi þeirrar staðreyndar?
„Nei, reksturinn er erfiður eins og
víða annars staðar en í réttum far-
vegi því á undanförnum árum hefur
verið unnið gott starf,“ segir hún og
bætir við brosandi. „En ég ætla ekk-
ert að draga úr því að ég sé bjartsýn
kona. Því mótmæli ég ekki.“
Fjarbúð en samt nærbúð
Einkalífið er eitt af því sem ber á
góma í brekkunni og í ljós kemur að
Erla Björk á unnusta í Reykjavík.
Hann er starfsmaður Varar, vinnur
verkefni sitt hjá Matís og verður þar
áfram, að minnsta kosti út næsta
ár, að hennar sögn. „Við höfum
verið fjarbýlisfólk milli landa og
stundum milli heimsálfa, svo okkur
finnst bara lúxus að vera fjarbýlis-
fólk á Íslandi,“ segir hún glaðlega og
kveðst ekki ætla að fjarstýra skólan-
um því það sé hugmyndafræði sem
ekki virki að hennar mati. „Starfs-
fólk Hólaskóla er búsett á staðnum
og víða í sveitinni. Það tryggir hér
ákveðið samfélag og samheldni. Ég
tel ríkidæmi fyrir skólann að hafa
kjarna af heimafólki. Þá verður
þetta bústaður fólks en ekki ver-
stöð. Í verstöðvum kemur fólk og
fer og lætur sig síður varða orð-
spor, vöxt og viðgang staðarins,
en ef það byggi þar. Þess vegna
ætla ég að vera hér þó minn sam-
býlingur verði í Reykjavík. Ég mun
kjaga hér um, kannski verð ég ein-
hvern tímann komin upp að hnjám
og enda sem moldvarpa á Hólum,“
segir þessi knáa kona hlæjandi. Að
því sögðu stöndum við upp, röltum
upp á hlað og kveðjumst á stéttinni.
SKÓLI Í RÚM 900 ÁR