Fréttablaðið - 09.06.2012, Qupperneq 32
KYNNING − AUGLÝSINGSuðurland LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, s. 512 5411 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Suðurlandið er helsti viðkomustaður ferðamanna hér lendis.
Möguleikar fyrir ferðamenn á svæðinu, sem nær frá Selvogi í
vestri til Hafnar í Hornafirði í austri, eru óþrjótandi. Davíð Samú-
elsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands, segir mikla
uppbyggingu hafa átt sér stað undanfarin ár víða um Suður landið
hvað snertir aðgengi að landsfjórðungnum, afþreyingu og gisti-
möguleika. „Aðgengi ferðamanna inn á Suðurlandið hefur batnað
mikið undanfarin ár og núna í sumar verður nýr Suðurlands-
vegur formlega opnaður. Margs konar afþreying er í boði fyrir alla
aldurs hópa og hefur úrval hennar aukist mikið. Þar má meðal
annars nefna göngu- og hjólaferðir, hestaferðir, fjallgöngur, báts-
ferðir og veiðiferðir. Auk þess er mikið úrval stórskemmtilegra
bæjarhátíða allt sumarið á Suðurlandinu sem flestar stíla inn á
fjölskyldufólk. Þar má meðal annars nefna Kótelettuna á Selfossi,
Tour de Hvolsvöllur, Landnámsdaginn, Blóm í bæ í Hveragerði og
Humarhátíðina á Höfn.“
Davíð bendir einnig á að gistimöguleikum hafi fjölgað mikið
og aðstaða almennt fyrir ferðamenn sé stöðugt að batna. Í dag
sé hægt að velja úr fjölbreyttum gistimöguleikum í öllum verð-
flokkum. „Síðan má ekki gleyma þeim fjölda góðra veitingastaða
sem finna má í þessum landsfjórðungi. Við eigum gott úrval veit-
ingastaða sem sérhæfa sig í sjávarfangi og hráefni af Suðurlandi
auk allra þeirra staða sem bjóða upp á hefðbundnari veitingar.“
Auk alls þess sem talið hefur verið hér upp býður Suðurlandið upp
á mikinn fjölda sundlauga og golfvalla sem eru sívinsælir við-
komustaðir ferðamanna yfir sumartímann.
Mikill fjöldi innlendra og erlendra ferða-
manna heimsækir Suðurland ár hvert
og á Davíð von á áframhaldandi aukn-
ingu. „Við finnum fyrir því að hækk-
andi bensínverð eykur enn frekar
áhuga ferðamanna á Suðurlandinu
enda stutt að fara í fallega náttúru og
skemmtilega afþreyingu.“ Davíð segir
hlutverk Markaðsstofu Suðurlands
að vera samstarfsvettvang fyrir fyrir-
tæki og sveitarfélög á Suðuralandi.
„Við vinnum að því að koma Suður-
landi á framfæri hérlendis sem erlendis.
Við tökum meðal annars á móti fjölda er-
lendra og innlendra blaðamanna og
ferðakaupenda ár hvert og kynnum
fyrir þeim kosti fjórðungsins.“
Suðurland í sókn
Ferðaþjónustan er í mikilli sókn á Suðurlandi.
Fjölmargir möguleikar eru í boði þegar kemur
að gistinu, afþreyingu og veitingum.
LANDNÁMSDAGURINN
Íbúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps bjóða landsmönnum í heimsókn
í dag, laugardaginn 9. júní, þegar Landsnámsdagurinn verður haldinn í
fjórða sinn. Dagskráin er fjölbreytt og ætluð öllum aldurshópum. Opin hús
verða vítt og breitt um sveitina og fjölbreyttar uppákomur í boði. Íbúar
bæja á Skeiðum bjóða gesti velkomna í heimsókn til að kynnast störfum
fólksins í sveitinni. Grænahlíð býður upp á skemmtilegt skrautfiskasafn og
hestabúgarðurinn Blesastaðir er í næsta nágrenni. Margmiðlunarsýning
verður opin í Þjórsárstofu á Árnesi, gagnvirk sýning verður í boði í Búrfelli
og Þjóðveldisbærinn verður opinn en hann er eftirlíking af bænum hans
Gauks á Stöng. Réttirnar í sveitinni eru nýupphlaðnar og fallegar. Þar
verður boðið upp á ýmis skemmtiatriði frá kl. 15 og meðal annars boðið
upp á ljúffenga súpu. Þjórsárdalsskógur er auðvitað útivistarparadís fyrir
alla aldurshópa og mikil upplifun að fá sér kaffi og pönnukökur þar yfir
opnum eldi. Allir eru velkomnir og ókeypis er á alla viðburði.
Nánari upplýsingar má finna á vef Skeiða- og Gnúpverjahrepps:
Skeidgnup.is.
Davíð Samúelsson, framkvæmda-
stjóri Markaðsstofu Suðurlands.
TREX – Hópferðamiðstöðin er eitt af öflugustu hópferða-fyrir tækjum landsins, með
sjötíu rútur á sínum snærum.
„Fyrirtækið var stofnað undir
na f n i nu Hópferða m iðstöði n
árið 1977 og því fögnum við nú
öruggum og samfelldum hópferða-
akstri í 35 ár,“ segir framkvæmda-
stjórinn Kristján M. Baldursson.
Nafnið TREX var tekið upp 2006,
en fjórum árum fyrr hafði fyrir-
tækið sameinast Vestfjarðaleið
undir nafninu Hópferðamið stöðin
– Vestfjarðaleið.
„TREX er skammstöfun fyrir
Travel Experiences og vann sér
strax sess enda grípandi og hentugt
heiti fyrir erlendan ferða markað,“
útskýrir Kristján.
TREX státar af öllum gerðum og
stærðum hópferðabíla og einnig
fjallabílum fyrir hálendisferðir.
„Í fyrra hófum við daglegar skoð-
unarferðir í Þórsmörk og Land-
mannalaugar. Þeim höldum við
áfram og bætum við nýrri dagsferð
um Suðurstrandarveg,“ segir Krist-
ján um dagsferðirnar sem verða
farnar frá 15. júní til 20. ágúst.
Í Þórsmerkurferðum er ekið að
skála Ferðafélags Íslands í Langa-
dal og skála Útivistar í Básum. Í
Landmannalaugum er ekið beint
að skála Ferðafélagsins.
„Hægt er að dvelja fáeina
k luk kut íma á hverjum stað
eða gista eina eða f leiri nætur.
Margir nýta ferðirnar í tengslum
við gönguferðir um Laugaveg og
Fimmvörðuháls og TREX hefur
vakið athygli á nýrri gönguleið sem
liggur sem framlenging af Lauga-
vegi frá Rjúpnavöllum í Landssveit
yfir í Landmannalaugar.“
Í dagferðum um Suðurstrandar-
veg er lagt upp frá Reykjavík, ekið
að Hellisheiðarvirkjun, þaðan
um Þrengsli, Þorlákshöfn, Selvog,
Krýsuvík og Grindavík með við-
komu í Bláa lóninu.
Nánari upplýsingar á www.trex.is.
Dagsferð í óbyggðir
Í sumar býður TREX – Hópferðamiðstöðin upp á daglegar skoðunarferðir í
náttúruperlurnar Þórsmörk, Landmannalaugar og um Suðurstrandarveg.
Kristján M. Baldursson, framkvæmdastjóri TREX – Hópferðamiðstöðvarinnar ehf., við eina af
glæsilegum rútum fyrirtækisins þar sem vel fer um alla á ferðalögum um landið. MYND/ANTON
Árstíðirnar í garðinum er nýlega komin út í annarri prentun, endurbætt og í
stærri útgáfu. „Það eru töluverðar
viðbætur í þessari útgáfu eða sextán
nýjar blaðsíður. Mikið er af nýjum
myndum og einnig var eitthvað
smálegt leiðrétt frá fyrri útgáfu.
Þetta er fimmta bókin í þessum
flokki sem við gefum út,“ segir Páll
Jökull Pétursson, einn þriggja útgef-
enda og ljósmyndari bókarinnar.
Bókin er til sölu í öllum helstu
bókaverslunum og í flestum garð-
vöruverslunum. Einnig er hægt að
kaupa bókina á vefsíðu útgáfunnar,
Rit.is. Þar fá áskrifendur blaðsins
Sumarhúsið og garðurinn af-
slátt af bókinni en út-
gefendur bókarinnar
gefa samnefnt tímarit
einnig út.
Páll Jökull og kona
hans, Auður I. Ottesen,
standa saman að út-
gáfunni. „Við lifum og
hrærumst í öllu sem snýr
að garðrækt. Við höfum
skapað okkur ákveðna sér-
stöðu með útgáfu tímaritsins
og bókanna en markhópur-
inn er fólk sem hefur áhuga á
plöntum, garðrækt og útiveru.
Mér finnst ég vera heppinn að vinna
við það sem ég hef áhuga á, að taka
myndir og búa til þetta fallega les-
efni. Áhuginn á garðræktinni fylgir
svo í leiðinni.“
Í endurútgáfu Árstíðanna er
mikið af nýjum myndum sem Páll
Jökull tók. „Það þarf að fylgjast
vel með öl lu
nýju. Ég gat sett í bók-
ina nokkur betri eintök af plöntu-
myndum og svo er bætt við kafla
um bambus sem vert er að prófa að
rækta hér á landi. Einnig eru taldar
upp nokkrar tegundir plantna sem
ættu að þrífast hér miðað við veðr-
áttu og breiddargráðu,“ segir hann.
Tímaritið Sumarhúsið og garður-
inn fagnar tuttugu ára afmæli sínu á
þessu ári og í tilefni þess ætlar Páll
Jökull að setja upp ljósmyndasýn-
ingu fyrir utan fyrirtæki og heim-
ili þeirra hjóna að Fossheiði 1 á Sel-
fossi. „Þetta verður gróðurtengd
sýning en hún verður ekki alveg
hefðbundin þar sem hún verður í
einkagarði en ég held að þetta sé
í fyrsta sinn hér á landi sem ljós-
myndasýning verður sett upp á
þann hátt,“ segir Páll Jökull.
Árstíðirnar í garð-
inum komin út á ný
Fimmta bókin í þessum vinsæla bókaflokki er komin út í annarri prentun en
hún hefur verið ófáanleg í nokkurn tíma. Páll Jökull Pétursson, ljósmyndari
bókarinnar, hyggst opna ljósmyndasýningu í garðinum heima hjá sér.
Páll Jökull, ljósmyndari bókarinnar Árstíðirnar í garðinum, hyggst
opna ljósmyndasýningu í garðinum sínum á næstunni. Í Árs-
tíðunum í garðinum má meðal annars finna fjölda mynda af
plöntum og ýmis góð ráð varðandi garðrækt. MYND/ÚR EINKASAFNI