Fréttablaðið - 09.06.2012, Side 42
9. júní 2012 LAUGARDAGUR6
Verkefnisstjóri
HS Orka, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur leita að öflugum verkefnisstjóra til að stýra sameiginlegu
verkefni sem hefur það markmið að draga úr styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti við jarðvarmavirkjanir.
Reiknað er með því að verkefnið standi til nokkurra ára. Það er kostur að viðkomandi hafi þekkingu og
reynslu af virkjanaverkefnum eða háhitarannsóknum.
Starfssvið:
Dagleg verkefnisstjórnun
Samskipti við starfsfólk, ráðgjafa
og birgja
Alþjóðlegar styrkumsóknir
Gerð kostnaðar- og tímaáætlana
Persónulegir eiginleikar:
Sjálfstæði og ögun í vinnubrögðum
Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
Traust greiningarhæfni og skilningur
á tölum
Tjáningarhæfni í ræðu, riti og
framkomu
Menntun- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði raunvísinda s.s.
verkfræði, tæknifræði, efnafræði, jarð-
efnafræði eða sambærileg menntun
s.s. MPM próf
Leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Góð tungumálakunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2012 og farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið gefur Sólrún Kristjánsdóttir,
starfsmannastjóri Orkuveitunnar, í síma 516 6825 eða Hilmar Hjaltason (hilmar.hjaltason@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir
(jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum í síma 540 7100.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga: www.capacent.is. Umsóknum eiga
að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomanda í starfið.
HS Orka, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur
Sóknarnefnd Háteigskirkju auglýsir eftir kirkjuverði
í fullt starf frá 1. september nk. Um er að ræða
krefjandi og metnaðarfullt framtíðarstarf.
Í starfinu felst dagleg umsjón með kirkju, móttaka
og símsvörun, bókanir og ýmis tölvuvinna, þátttaka í
helgihaldi og safnaðarstarfi, ýmiskonar viðhaldsvinna,
þrif o.fl. skv. nánari starfslýsingu.
Viðkomandi þarf að hafa góða almenna menntun
ásamt tölvu- og enskukunnáttu. Sérstök áhersla er lögð
á góða hæfni í mannlegum samskiptum eins og lipurð,
sveigjanleika, ríka þjónustulund auk góðrar framkomu.
Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein
fyrir persónuupplýsingum, menntun, starfsferli, sam-
skiptahæfni svo og öðru því sem þeir óska eftir að taka
fram ásamt því að senda með afrit af sakavottorði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Páll Ágúst Ólafsson
á netfanginu pall@hateigskirkja.is eða í síma 895 1747.
Umsóknarfrestur rennur út 22. júní nk.
Umsóknir sendist Háteigskirkju, b.t. sóknarnefndar.
Háteigsvegi 27-29, 105 Reykjavík eða á netfangið
hateigskirkja@hateigskirkja.is.
Kirkjuvörður
Sölumaður
Barnafataverslunin POLARN O. PYRET
leitar starfsmannni í 80-90% starf.
Leitað er að jákvæðum og skipulögðum einstaklingi
með söluhæfileika, þjónustulund og reynslu af
verslunarstörfum.
Umsækjandi þarf að geta unnið til lokunar
einhverja daga vikunnar, auk þess annan
hvorn laugardag.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í verslununum í
Kringlunni og Smáralind.
Árskógum 2, Breiðholti / Mjódd
Hjúkrunarheimilið Skógarbær
Eldhús
Matartækni/starfsmann vantar í 90% starf í eldhús/matsal Skógar-
bæjar, um er að ræða vaktavinnu. Við leitum eftir einstaklingi sem
kann að baka, elda, talar íslensku, er heilsuhraustur, jákvæður og
hefur góða framkomu og samskiptahæfileika.
Upplýsingar um Hjúkrunarheimilið Skógarbæ eru á heimsíðu okkar
skogar.is.
Ef nánari upplýsinga er óskað þá sendið tölvupóst til olga@skogar.is
Umsóknir sendist með tölvupósti til olga@skogar.is fyrir 19. júní.
Olga Gunnarsdóttir
Næringarrekstrafræðingur
Forstöðumaður eldhúss