Fréttablaðið - 09.06.2012, Síða 45
LAUGARDAGUR 9. júní 2012 9
TÆKNIMAÐUR ÓSKAST
Umsækjendur þurfa að:
Hafa brennandi áhuga á tölvum og tækni
Vinna vel bæði í hóp og sjálfstætt
Tala bæði og skrifa íslensku reiprennandi
TÖLVUVERKSTÆÐIÐ ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA ÖFLUGAN TÆKNIMANN
Í starfinu felst að bilanagreina og gera við tölvur og allan tengdan
búnað. Samskipti við viðskipavini og starfsmenn innan fyrirtækisins.
Umsóknir ásamt ferilskrá með mynd sendist á tölvupósti: starf@tvs.is
Tölvuverkstæðið sinnir ábyrgðarviðgerðum fyrir marga af þekktustu framleiðendum heims eins og Acer, Asus, MSI og Toshiba.
Driver/Administrative support
The Delegation of the European Union to Iceland
(www.esb.is) is seeking to recruit a Driver/Administra-
tive Aid with the following qualifications and qualities:
• Driver’s licence and at least 5 years of driving
experience
• Secretarial and/or administrative experience
or corresponding skills
• Fluent in Icelandic and English
• Flexible, pro-active, punctual, team player
and organised
• Computer skills
Please e-mail a CV and a cover letter of motivation
before 28 June (English only) to:
delegation-iceland@eeas.europa.eu
Krikaskóli auglýsir eftir
leikskólakennum
Krikaskóli er leik- og grunnskóli fyrir börn á aldrinum 1-9 ára og
starfsemin tekur mið af skólastefnu Mosfellsbæjar um heildstætt
uppeldis- og skólastarf í leik- og grunnskólum. Skólaárið 2012-2013
verða börn á aldrinum 2ja-9 ára í skólanum. Umsækjendur eru hvattir til
að kynna sér skólastefnu skólans á heimasíðu hans áður en þeir sækja
um starf.
Skilyrði fyrir ráðningu í Krikaskóla er að viðkomandi hafi ánægju af
börnum í öllum sínum fjölbreytileika, hafi ríka samskiptahæfni í hröðu
og lifandi umhverfi skólastarfsins og eigi auðvelt með að taka ábyrgð á
sjálfum sér.
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
• Deildarstjóri með 2 ára börnum. Um afleysingu er að ræða til
eins árs frá vori 2012 vegna leyfis.
• Deildarstjóri með 2 og 3 ára börnum. Um framtíðarráðningu er
að ræða.
Leikskólakennarar eða annað uppeldismenntað fólk verður ráðið til
starfanna. Skilyrði fyrir ráðningu er leyfisbréf leikskólakennara.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Við hvetjum fólk af báðum
kynjum til að sækja um störfin.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2012.
Áhugasömum er bent á að kynna sér heimasíðu skólans
www.krikaskoli.is.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið
krikaskoli[hjá]krikaskoli.is.
Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri Krikaskóla, Þrúður Hjelm
thrudur[hjá]krikaskoli.is eða Ágústa Óladóttir sviðstjóri Krikaskóla
agusta[hjá]krikaskoli.is í síma 578-3400.
Vegna mikilla anna fjölgum við starfsfólki
og þurfum því að ráða í eftirfarandi stöður:
Vaktstóri í sal. Leitum að glaðlegum einstakling sem hefur ríka þjónustu-
lund, góða samstarfshæfni og getur sýnt frumkvæði og sjálfstæði í
starfi. Reynsla af þjónustustörfum og ensku kunnátta skilyrði, önnur
tungumálakunnátta æskileg. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Aðstoð í sal. Leitum að brosmildum og hressum einstaklingum með
góða þjónustulund til að vinna á breytilegum vöktum. Góð ensku
kunnátta skilyrði, reynsla af þjónustustörfum æskileg sem og önnur
tungumálakunnátta. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Pizzabakari. Leitum að brosmildum og snyrtilegum einstakling með
reynslu af pizzabakstri. Góð þjónustulund, samstarfshæfni og ensku
kunnátta skilyrði, önnur tungumála kunnátta æskileg. Þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Einnig vantar okkar hressa einstaklinga til að gang um bæinn
í sumar og kynna PISA fyrir erlendum ferðmönnum.
Góðir tekjumöguleikar fyrir rétta aðila.
Vinsamlegast sendið umsóknir á pisa@pisa.is fyrir 16. júní.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur í síma 824 2784.
PISA veitingahús • Lækjargötu 6b • 101 Reykjavík
FR
U
M
ÁSTAND: APPELSÍNUGULT
KOMDU AÐ VINNA MEÐ OKKUR
MINNA BULL. MEIRA TAL.
Tal leitar að hressum manneskjum sem vilja ná árangri á sölusviði.
Umhverfið er krefjandi og spennandi og við erum skemmtileg.
Umsóknarfrestur fyrir áhugasama er til og með 14. júní 2012.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda umsókn í tölvupósti á atvinna@tal.is með ferilskrá og nánari upplýsingum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Arthúr Vilhelm Jóhannesson - Forstöðumaður sölusviðs – arthur@tal.is - sími: 823 0066
Hvað þarftu að hafa?
Brennandi áhuga á sölu
Farsæla reynslu af sölu
Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraft
Áhuga á fjarskiptum
Góða almenna tölvukunnáttu
Hugsun sem miðar að því að leysa málin og klára þau
Gleði og jákvæðni
Skipulagshæfni og nákvæmni