Fréttablaðið - 09.06.2012, Page 65
KYNNING − AUGLÝSING Suðurland9. JÚNÍ 2012 LAUGARDAGUR 3
Bílar og fólk ehf. er ungt og öflugt fyrirtæki á sviði hóp-ferða, sérleyfisaksturs og
fólksflutninga. Fyrirtækið hefur
starfsstöðvar bæði í Reykjavík og
á Akureyri og býður upp á úrval
spennandi ferða fyrir erlenda og
innlenda ferðamenn hér lendis
undir nafninu Sterna. Drengur
Óli Þorsteinsson, markaðs- og
kynningarfulltrúi, og Óskar Stef-
ánsson framkvæmdastjóri segja
fyrir tækið bjóða upp á flesta vin-
sælustu áfangastaði landsins.
„Við bjóðum upp á áætlunar-
ferðir og hópferðir til flestra vin-
sælustu áfangastaða landsins en
fyrst og fremst er Hringmiðinn
okkar vinsælastur. Hring miðinn
gefur ferða mönnum kost á að
ferðast hringinn um landið eða
taka smærri svæði, til dæmis Snæ-
fellsnesið og Snæfellsþjóðgarð,
Vesturland og Vestfirði og Gullna
hringinn. Þeir eru ekki bundnir
farartækinu heldur geta stokkið úr
og inn í bílinn þegar þeim hentar.“
Hringmiðinn gildir yfir sumar-
mánuðina þrjá og gefur því ferða-
mönnum mikið frelsi varðandi
skipulag ferðalags innan lands.
Kjölur og Kerlingarfjöll vinsæl
Vinsælasta ferð Sterna er Austur-
hringur um Kjöl. Um er að ræða
hringmiða yfir Kjöl og austur
fyrir landið. Þessi ferð býður upp
á mikla möguleika á að heimsækja
vinsæla áfangastaði á há lendinu,
t i l dæmis Kerlingarf jöl l en
Drengur segir mikinn vöxt vera á
ferðum um Kjöl. „Þar skipta miklu
máli auknar vinsældir Kerlingar-
fjalla sem eru að verða gríðar-
lega vinsæll áfangastaður. Hann
er ekkert síðri en aðrir frægir og
meira markaðssettir áfangastaðir
hérlendis, til dæmis Landmanna-
laugar.“ Að öðru leyti segir hann
vinsælustu áfangastaðina vera
þessa hefðbundnu ferðamanna-
staði. Þar segir hann Suður landið
vega þungt enda mestur fjölda
ferða í þeim landsfjórðungi og
skoðunarferðir um Suðurlandið
vera almennt gríðarlega vinsælar.
Nær allir viðskiptavinir Sterna
eru erlendir ferðamenn. Þjóð verjar
eru fjölmennastir og hafa verið það
frá árinu 2006. Ferðamönnum frá
öðrum þjóðum fjölgar einnig að
sögn Óskars og má þar helst nefna
Frakkland, Bandaríkin og Norður-
löndin. „Frakkar eru duglegir að
nýta sér Hringmiðana og koma
hér tugir saman enda vanir lestar-
miðum frá heimalandinu. Síðan
sjáum við aukningu ferðamanna
frá Suðaustur-Asíu, til dæmis frá
Singapúr, Taívan, Japan og Hong
Kong. Asíubúar nýta sér mikið
pantanir á netinu.“
Hótað lögbanni
Bílar og fólk hefur vaxið hratt og
örugglega undanfarin ár. Í upp-
hafi átti fyrirtækið tvær rútur en
í dag ræður fyrirtækið yfir þrjá-
tíu rútum af öllum stærðum og
gerðum. Fyrirtækið er einnig með
fjölda samstarfsaðila í ferðum
sínum, til dæmis á Vestfjörðum,
Breiðafirði og í ferðum milli Akur-
eyrar og Egilsstaða. Sterna hefur
um árabil keyrt gömlu sér leyfin
á Suðurlandi. Árið 2011 missti
fyrirtækið þó sérleyfi sitt þar til
Strætó bs. Óskar og Drengur
segja ákvæði hafa verið í fyrri
samningi þess efnis að hægt
væri að framlengja sérleyfinu
til þeirra en Sambönd sveitar-
félaga hafi kosið að semja frekar
við Strætó bs. Nú situr Sterna
Travel, sem fyrirtækið Bílar og
fólk keyrir fyrir, undir hótunum
um lögbann að sögn Óskars og
Drengs. „Margir viðskiptasamn-
ingar eru í húfi, meðal annars
við ferðaþjónustuaðila á Suður-
landinu verði lögbannið sam-
þykkt. Þó það beinist ekki gegn
Bílum og fólki ehf. beint þá lætur
það fá fyrirtæki ósnortin sem
veita þjónustu í sambandi við til
dæmis hringmiðana.“
Frjáls og óbundinn með
langferðabílum Sternu
Vinsælustu áfangastaðir landsins eru í boði hjá Sternu. Hringmiðinn gerir ferðalöngum kleift að stjórna ferðalagi sínu sjálfir.
Drengur Óla Þorsteinsson markaðs- og kynningarfulltrúi og Óskar Stefánsson fram-
kvæmdastjóri. MYND/ANTON BRINK
Kerlingarfjöll eru að verða gríðarlega vinsæll áfangastaður að sögn Drengs Óla Þorsteinssonar, markaðs- og kynningarfulltrúa Bíla og fólks ehf. MYND/ÚR EINKASAFNI
Bílar og fólk ehf. ræður yfir 30 rútum
af öllum stærðum og gerðum.
Fyrirtækið keyrir á flesta vinsælustu
ferðamannastaði landsins.
MYNDIR/ÚR EINKASAFNI
Margir viðskipta-
samningar eru í
húfi, meðal annars við
ferðaþjónustuaðila á
Suðurlandinu