Fréttablaðið - 09.06.2012, Qupperneq 66
KYNNING − AUGLÝSINGSuðurland LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 20124
GULLFOSS
ALLRA ÍSLENDINGA
Gullfoss í Hvítá er fjölsóttasti
foss á Íslandi og hluti af Gullna
hringnum. Hann fellur í tveimur
þrepum niður í Hvítárgljúfur,
sem er tveir og hálfur kílómetri
á breidd og allt að 70 metra
djúpt. Fyrra þrepið er um 11
metrar en það seinna um 21
metri. Upp úr aldamótunum 1900
munaði minnstu að Gullfoss hefði
verið virkjaður þegar erlendir
aðilar eignuðust hann. Sigríður
Tómasdóttir, eigandi og ábúandi
í Brattholti, undi því ekki og
hótaði meðal annars að fleygja
sér í fossinn. Til þess kom þó ekki
og höfðaði hún mál gegn þeim
með aðstoð Sveins Björnssonar
lögfræðings sem endaði með
því að fossinn komst aftur í eigu
Íslendinga. Sigríður og fjölskylda
hennar lögðu fyrstu stígana við
Gullfoss og leiðsögðu ferða-
löngum um svæðið. Minnisvarði
um Sigríði eftir Ríkharð Jónsson
stendur í gljúfrinu við neðra
bílastæðið.
TOUR DE HVOLSVÖLLUR
Hjólreiðakeppnin Tour de
Hvolsvöllur verður haldin
laugardaginn 7. júlí. Sveitar-
félagið Rangárþing eystra stendur
fyrir keppninni í samstarfi við
hjólreiðanefnd ÍSÍ, LHM og fleiri
aðila. Keppnin er opin öllum 14
ára og eldri. Keppt er í þremur
vegalengdum hjá báðum kynjum;
110 kílómetra leið frá Reykjavík,
48 kílómetra leið frá Selfossi
og 14 kílómetra leið frá Hellu.
Hópnum verður sérstaklega
fylgt að tvöföldun Suðurlands-
vegar en björgunarsveitin
Dagrenning fylgir hópnum á
Hvolsvöll þar sem allar keppnis-
leiðir enda. Einnig er boðið upp á
hjólakeppni og þrautabrautir fyrir
börn og unglinga á Hvolsvelli.
Tímataka er á keppnisleiðunum
frá Reykjavík og Selfossi og eru
veitt verðlaun fyrir fyrsta til þriðja
sæti á 110 kílómetra leiðinni í
hvorum flokki fyrir báðar leiðirnar.
Skráning í keppnina hefst um
miðjan júní og verður hægt að
skrá sig til 5. júlí á vefnum Hvols-
vollur.is. Keppnin var fyrst haldin
árið 1993 og árlega lengi vel eftir
það. Hún lagðist af um tíma en
var endurvakin í fyrra. Þá tóku 120
manns þátt í keppninni sem var
framar öllum vonum skipuleggj-
enda. Keppendum verður boðið
upp á léttar veitingar að lokinni
keppni í keppnistjaldi á mið-
bæjartúninu.
Tíu kílómetra frá Stokkseyri er
Farfuglaheimilið í Gaulverja-
skóla. Eigendur þess, Oddný Guð-
mundsdóttir og Gestur Kristins-
son, bjóða upp á fjölbreytta gisti-
möguleika. „Við erum með allt frá
einstaklingsherbergjum til fjöl-
skylduherbergja með uppá búnum
rúmum kjósi fólk svo. Einnig
bjóðum við svefnpokapláss fyrir
hópa en alls er gistipláss fyrir 29
manns hjá okkur. Svo er hægt að
biðja um morgunverð eða léttan
kvöldverð. Ég á alltaf íslenska kjöt-
súpu fyrir gestina,“ segir Oddný.
Elduna raðstaða fyrir gesti er í sér-
húsi þannig að aldrei er matarlykt
í herbergjunum. Félagsheimilið
Félagslundur og Gaulverja bæjar-
kirkja eru rétt við gisti heimilið
og er farfuglaheimilið því til-
valið fyrir margs konar viðburði.
„ Hingað hafa komið gamlir skóla-
félagar og grillað saman og gist,
leshópar og fundir verið haldnir,
steggja- og gæsahópar hafa komið
og svo er nýbúið að vera brúðkaup
í kirkjunni. Þá var út búin brúðar-
svíta og veislan var hjá okkur.
Nú um helgina er svo ættar mót.“
Gríðarlega fallegt útsýni er frá
Gaulverjaskóla; Hekla, Eyjafjalla-
jökull og fjöllin úti á Reykjanesi.
Stutt er í alla þjónustu og fjöl-
breytta afþreyingu víða að finna á
svæðinu; hestaleigur, söfn, kajak-
ferðir og frábæra veitingastaði.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu gistiheimilisins www.
south–hostel.is.
Flott farfuglaheimili Farfuglaheimilið í Gaulverja-skóla er kjörið fyrir ýmiss
konar viðburði. Þar er meðal
annars að finna kirkju, félags-
heimili, matsal, fjölbreytta
afþreyingu allt í kring og
víðáttumikla náttúru.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Meiri spenna en nokkru sinni fyrr • júní 2012
FRÁBÆRIR
LEIKIR í JúNI
#BESTASÆTIÐ
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
HORFÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER.
Í bústaðnum • í snjallsímanum • á spjaldtölvunni • í tölvunni
Fjöldi magnaðra úrslitaleikja bestu liðanna
Knattspyrnustjörnur framtíðarinnar um allt land
Misstu ekki af Formúlunni í Montreal og Valencia
Beinar útsendingar og markaþáttur strax á eftir
Golf í allt sumar
Sigurður Elvar, Þorsteinn Hallgríms og Logi Bergmann
með golfþætti á þriðjudögum í allt sumar
NBA úrslitakeppnin
F1
Sumarmótin
Borgunar-bikarinn
Efsta deild hefur aldrei verið eins jöfn og spennandi.
Sjáðu leikina í beinni og Pepsi mörkin eftir hverja umferð