Fréttablaðið - 09.06.2012, Síða 72
9. júní 2012 LAUGARDAGUR36
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞURÍÐUR GÍSLADÓTTIR
frá Hnappavöllum í Öræfum,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 30. maí
sl. Útförin verður gerð frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði þann 11. júní nk. kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á FAAS, Félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga.
Jónína G. Elíasdóttir Hamré Bengt Hamré
Gísli Þ. Elíasson A. Þórey Ólafsdóttir
Ingibjörg H. Elíasdóttir Árni G. Sigurðsson
Guðni K. Elíasson Valgerður Sveinbjörnsdóttir
Sigurbjörn Elíasson Brynja Jónsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
24 tíma vakt
Sími 551 3485
Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947
ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og vinar,
HÁKONAR KRISTINSSONAR
vélsmiðs,
Innri-Njarðvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Hjúkrunarheimilisins Garðvangs, Garði,
fyrir góða umönnun.
Þorsteinn Hákonarson Kristín Tryggvadóttir
Stefanía Hákonardóttir Sigurbjörn Júlíus Hallsson
Bryndís Hákonardóttir
Steinunn Hákonardóttir Elvar Ágústsson
Guðfinna Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Flókagötu 4, Reykjavík,
verður jarðsungin mánudaginn 11. júní
kl. 11.00 frá Dómkirkjunni í Reykjavík.
Valborg Sigurðardóttir Svavar Sölvason
Gestur Þór Sigurðsson Vilborg Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
GUNNARS B. HÁKONARSONAR
Strikinu 4, Garðabæ.
Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir
Hákon Gunnarsson Guðný Helgadóttir
Helga Gunnarsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir Unnar Reynisson
Hrefna Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við
andlát og útför ástkærs föður, tengdaföður
og afa,
MÁS HALLGRÍMSSONAR.
Sigríður Másdóttir Gunnar Auðólfsson
Auðólfur Már Gunnarsson
Árni Karl Gunnarsson
Ásgeir Hrafn Gunnarsson
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
REYNIS ÍSFELDS KJARTANSSONAR
Klapparstíg 1, Reykjavík.
Kristín Hauksdóttir
Pálína Reynisdóttir Helgi Pálsson
Kristbjörn Ísfeld Reynisson Ásbjörg Þórhallsdóttir
Petrína Erla Reynisdóttir Hilmar Hafsteinn Gunnarsson
Guðrún Sigríður Reynisdóttir Sigurður Þorvaldsson
Jóhann Ísfeld Reynisson Steinunn Snorradóttir
Bryndís Reynisdóttir Halldór Jörgensson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar og vinur,
BJÖRGVIN HERMANNSSON
húsgagnasmíðameistari,
Boðahlein 22, Garðabæ,
lést á Landspítala við Hringbraut
fimmtudaginn 24. maí. Útför hans verður
gerð frá Háteigskirkju mánudaginn 11. júní
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Landssamtök hjartasjúklinga.
Vilhjálmur Pétur Björgvinsson
Hermann Björgvinsson
Sigríður Jóhannsdóttir
Ástkær móðir okkar,
ANNA SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR
Hvammi, Heimili aldraðra á Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
þriðjudaginn 5. júní.
Elín Sigtryggsdóttir
Guðrún Sigtryggsdóttir
Albert Sigtryggsson
Bjarni Sveinsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍN JÓNA JÓHANNSDÓTTIR
Boðahlein 8, Garðabæ,
sem lést sunnudaginn 3. júní, verður
jarðsungin frá Vídalínskirkju
mánudaginn 11. júní kl. 13.00.
Símon Þór Waagfjörð
Kristín Sigríður Vogfjörð
Jónína Waagfjörð Gunnar S. Sigurðsson
Jóhanna Waagfjörð Páll K. Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir
og afi,
SIGURJÓN ÁRDAL ANTONSSON
frá Ytri-Á, Sléttuvegi 13,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þann
4. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 11. júní kl. 13.00.
Sesselja Friðriksdóttir
Friðrik Örn Egilsson Helga Björk Bragadóttir
Þráinn Vigfússon Svava Liv Edgarsdóttir
Hannes Hlífar Stefánsson
og barnabörn.
Íslenskir útvarpshlustendur þekkja
vel rödd Guðna Más Henningssonar og
áhuga hans á tónlist. Hitt vita færri að
hann er sjálfur í hljómsveit sem heitir
Tass sem er gefa út sinn fyrsta geisla-
disk. „Þetta getur maður á elliárunum,“
segir hann hlæjandi og vísar þar til þess
að hann er sextugur í dag. Kveðst seint
munu kalla sig tónlistarmann – líklegast
aldrei. „En ég fæ að berja trommur og
önnur ásláttarhljóðfæri með hljómsveit-
inni minni og svo fæ ég að berja saman
texta fyrir hana líka,“ segir hann glað-
lega og gerir nánari grein fyrir sveit-
inni og því sem hún er að bralla.
„Tass er sjö manna band með fólki
á aldrinum tuttugu og þriggja ára til
sextugs og tónlistin er blanda af rokki
og kassagítar og einhverju fleiru.
Geimsteinn gefur út diskinn okkar
sem nefnist Almúgamenn og allt efni
á honum er frumsamið. Tónlistin er
að mestu eftir Birgi Henningsson og
textar allir eftir mig. Svo verða útgáfu-
tónleikar í Salnum í Kópavogi í kvöld,
Hreimur Örn úr Landi og sonum og
Rúnar Þór fá að hita upp fyrir okkur.
Svona held ég upp á sextugsafmælið því
veisla er ekki alveg minn tebolli.“
Guðni Már ólst upp í Bústaðahverf-
inu, „í Víkingshverfinu,“ tekur hann
fram „og spilaði fótbolta með Víkingi
þar til ég varð tólf ára.“ Hann tekur for-
vitni um fólkið sitt með umburðarlyndi.
„Móðir mín hét Greta Sólveig Stefáns-
dóttir og faðir minn heitir Henning
Elísberg. Ég á dóttur sem er 18 ára,
Katrínu Ísafold, sem var fyrir stuttu
að gera mig að afa og svo á ég sjálfur
sjö mánaða gamla dóttur sem heitir
Steina Elína. Maður er ekki dauður úr
öllum æðum,“ segir hann stoltur, kveðst
giftur maður og búa í Vogum á Vatns-
leysuströnd.
„Ég er búinn að finna tilgang minn
í lífinu, það er að brúa kynslóðabil á
öllum stöðum. Ég er með ungabarn, er
með unglingum í hljómsveit og spila
bæði unglingarokk í útvarpinu og eldri
tónlist. Ég er tiltölulega sprækur en
ekki alveg eins fljótur upp tröppurnar í
Ríkisútvarpinu og ég var fyrir tæpum
tuttugu árum, þegar ég byrjaði.“ Í
framhaldinu rifjar hann upp ráðningu
sína hjá útvarpinu sem bar brátt að,
akkúrat sama dag og eldri dóttir hans
fæddist.
„Það var 3. maí 1994. Þegar ég var
að koma heim af fæðingardeildinni
þurfti ég að hlaupa upp stigann því
ég heyrði símann hringja, þá var það
Magnús R. Einarsson að bjóða mér
vinnu. Ég fór strax og skrifaði undir
samning og svo byrjaði ég eitthvað
seinna, þá á næturvöktum og er á þeim
enn. Ég var líka á fullu í Popplandinu í
nokkur ár en nú er ég í loftinu á sunnu-
dögum eftir hádegið og svo á föstudags
og þriðjudagskvöldum. Ég held ég sé
búinn að taka við hlutverki Jónasar
Jónassonar sem öldungurinn í húsinu,“
segir Guðni Már og kveðst þakklátur
fyrir að hafa fengið að kynnast Jónasi,
Jóni Múla, Ástu Ragnheiði og Gerði G.
Bjarklind sem hann hafi verið búinn að
hlusta á í áratugi. „Þetta voru stjörnur
í mínum huga og mér finnst ég heppn-
asti maður á jarðríki.“ gun@frettabladid.is
GUÐNI MÁR HENNINGSSON: FAGNAR SEXTUGSAFMÆLI MEÐ ÚTGÁFUTÓNLEIKUM
Réði sig á RÚV sama dag og
eldri dóttir hans fæddist
AFMÆLISBARNIÐ OG ROKKARINN Ég fæ að berja trommur og önnur ásláttarhljóðfæri með
hljómsveitinni minni og svo fæ ég að berja saman texta fyrir hana líka,“ segir Guðni Már Henn-
ingsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÞÓRIR KR. ÞÓRÐARSON prófessor (1924-1995) var fæddur þennan dag.
„Lifandi augnablik er frjálst augnablik, hvorki fyrirfram
ákvarðað af blindum örlögum né steypt í mót fortíðarinnar.“