Fréttablaðið - 09.06.2012, Qupperneq 94
9. júní 2012 LAUGARDAGUR58
„Ég er mjög spenntur að koma með
tæknina mína og deila ástríðu minni
fyrir sportinu með íslenskum vík-
ingum,“ segir Írinn John Kavanagh,
einn þekktasti bardagaíþróttaþjálf-
ari heims, sem undirbýr flutning
sinn til Íslands í haust þar sem hann
kemur til með að kenna hjá bardaga-
íþróttaklúbbnum Mjölni.
Kavanagh hefur stundað bardaga-
íþróttir alla ævi og verið atvinnu-
maður og þjálfari síðustu tíu ár.
Hann hefur unnið fjölda verðlauna
sjálfur auk þess sem hann hefur
þjálfað heimsmethafa í karla- og
kvennaflokki frá grunni og verið
einn af helstu þjálfurum tveggja
bestu keppnismanna landsins,
Gunnars Nelson og Árna Ísaks-
sonar. „Gunnar kom til Írlands
í upphafi árs, en hann er einn af
bestu vinum mínum og ég er búinn
að þjálfa hann í sex ár. Upp kom
sú klikkaða hugmynd að ég myndi
flytja til Íslands og ég hugsaði bara
með mér, af hverju ekki?“ segir
Kavanagh sem fékk í kjölfarið til-
boð frá Mjölni og ákvað að slá til.
„Ég mun fylgja Gunnari vel eftir,
en ástríðan mín hefur alltaf verið
að kenna byrjendum svo ég kem
til með að gera það líka. Ég ætla að
reyna að vera til staðar fyrir sem
flesta og kem nokkurn veginn til
með að búa í Mjölni, enda er ég ekki
að flytja til Íslands út af fallega
veðrinu,“ bætir hann við hlæjandi.
Kavanagh hefur komið til Íslands
nokkrum sinnum og þekkir því
ágætlega til á Íslandi. Hann skellti
sér á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
síðastliðið sumar og lýsir upplif-
uninni sem þriggja daga helvíti á
jörðu. „Ég handleggsbrotnaði, fékk
flensu, tjaldið mitt fauk í burtu
og það var stanslaus rigning alla
helgina. Einhvern veginn lifði ég
þessa för þó af,“ segir hann hress
í bragði.
Þrátt fyrir þessa slæmu lífs-
reynslu segist hann vera mikill
aðdáandi íslenskra hefða og lifn-
aðarhátta og telur sig eiga eftir að
falla vel inn í meðal Íslendinga.
Hann segist þó vera sérstaklega
hrifinn af íslenska kvenfólkinu.
„Meginástæðan fyrir því að ég er
að koma til Íslands er til að finna
mér íslenska konu, hitt er bara yfir-
hylming. Þú veist að íslensku vík-
ingarnir stálu öllu fallega kvenfólk-
inu frá Írlandi. Nú er kominn tími
til að ná fram hefndum,“ segir John
ákveðinn. Það lítur því út fyrir að
það sé jafnframt von á góðri við-
bót á íslenskan stefnumótamarkað
í september. tinnaros@frettabladid.is
PERSÓNAN
Ég kem nokkurn
veginn til með að búa
í Mjölni, enda er ég ekki að
flytja til Íslands út af fallega
veðrinu.
„Maður er kominn einu skrefi lengra og hefur
aðgang að aðeins stærri heimi,“ segir leik-
stjórinn Reynir Lyngdal.
Hann er kominn með umboðsmenn hjá
bandarísku umboðsskrifstofunni William
Morris Endeavor, sem er sú stærsta í heimi,
og bresku skrifstofunni United Agents. „Ég
hitti þetta fólk í Cannes en var búinn að vera
í samskiptum við það síðan í febrúar. Þetta er
tilkomið mikið til út af Frosti. Það var mikill
hiti og spenna fyrir henni í Cannes,“ segir
Reynir en sýnishorn úr spennumynd hans
vakti mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í
síðasta mánuði.
Reynir er ekki búinn að skrifa undir
samning við umboðsskrifstofurnar tvær.
Umboðsmennirnir eru samt þegar farnir að
starfa fyrir hann því þeir hafa sent honum
alls konar handrit, meðal annars að hryll-
ingsmynd og sjónvarpsþáttaröð. „Þetta er
allt voða flott og fínt en þetta er bara hjóm
þangað til maður ýtir á eftir hlutunum sjálfur.
Fókusinn hjá mér núna er að klára Frost vel
og það er mjög spennandi verkefni,“ segir
Reynir, sem er með báða fætur á jörðinni.
Frost er í eftirvinnslu um þessar mundir og
er stefnt á frumsýningu í haust.
Tveir aðrir íslenskir leikstjórar eru á mála
hjá William Morris Endeavor, eða Óskar
Þór Axelsson sem leikstýrði Svartur á leik
og Baltasar Kormákur. Meðal annarra leik-
stjóra hjá fyrirtækinu eru stórlaxar á borð
við Michael Bay, Tim Burton og Quentin
Tarantino. -fb
Kominn með erlenda umboðsmenn
VIÐ TÖKUR Á FROSTI Leikstjórinn Reynir Lyngdal
er kominn með umboðsmenn hjá William Morris
Endeavor og United Agents. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Haukur Arnar
Árnason
Aldur: 46 ára.
Starf: Starfa hjá
Sýningakerfi ehf.
Foreldrar: Ásta
Sigurðardóttir
bóndi og Árni
Gunnar Sigurjóns-
son húsasmíðameistari (látinn).
Fjölskylda: Í sambúð með Sigríði
Jónsdóttur, snillingi hjá Reynd ehf.
Ég á þrjú börn, Daníel Smára, 23
ára, Andreu Laufeyju, 20 ára og
Sylvíu Ösp, 15 ára.
Búseta: Hafnarfjörður.
Stjörnumerki: Rolla.
Haukur Arnar er einn af aðalmönnum
folf-íþróttarinnar hérlendis.
JOHN KAVANAGH: EINN VIRTASTI ÞJÁLFARI HEIMS FLYTUR TIL LANDSINS
Þjálfar bardagaíþróttir
og leitar að íslenskri konu
BESTU VINIR John og Gunnar Nelson eru bestu vinir, en John hefur þjálfað Gunnar síðustu sex ár. MYND/PÁLL BERGMANN
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
Árangur fer eftir gæðum
Fjölvítamín náttúrunnar
Næringarupptaka úr Lifestream Spírulína
er meira og nýtist betur en úr nokkru
öðru fæði.
Fullkomið jafnvægi næringarefnanna gefur
einbeitingu, langvarandi náttúrlega orku og er
gott gegn streitu.
Dregur úr ofvirkni, sykurlöngun og sleni.
Styrkir ónæmikerfið, hentar börnum og
fullorðnum.
13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni,
Fríhöfninni og Hagkaup
Hraust og hress
Árangur strax!
www.celsus.is
Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringaefnin.
Vottað lífrænt
Hið nýstofnaða fyrirtæki Skapandi
ætlar að starfrækja svokallaða
samfélagsdeild á Bestu útihátíð-
inni sem verður haldin á Gadd-
staðaflötum í byrjun júlí.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
þetta er gert á svona hátíð,“ segir
Kristinn Bjarnason, sem rekur
hugmynda- og hönnunarhúsið
Skapandi ásamt Friðriki Thorla-
cius. Þeir auglýsa eftir ungu fólki
sem hefur áhuga á kvikmyndagerð
og vill taka viðtöl við hljómsveitir
og mynda það sem um er að vera
á hátíðinni. Allt myndefnið verð-
ur unnið á staðnum og sett á netið
um leið og það er tilbúið. „Þetta
fer á rauntíma á netið og þeir sem
komast ekki á Bestu útihátíðina
geta því fylgst með á netinu,“ segir
Kristinn.
Instagram-leikur verður einnig
haldinn á hátíðinni. Tónleikagestir
taka þá ljósmyndir á símann sinn
og senda þær inn í leikinn. Öllum
myndunum verður varpað á stóran
skjá og verða verðlaun veitt á loka-
degi hátíðarinnar. „Við viljum
virkja gesti hátíðarinnar og fá þá
til að taka þátt,“ segir Kristinn,
sem býst við góðum viðbrögðum
við þessari nýbreytni. - fb
Besta útihátíðin verður á netinu
STARFRÆKJA SAMFÉLAGSDEILD
Kristinn Bjarnason og Friðrik Thorlacius
starfrækja samfélagsdeild á Bestu útihá-
tíðinni.
„Ég er í miklu gifsi langt upp
að olnboga og fram yfir fingur,“
segir brúðuleikarinn Helga
Steffensen sem varð fyrir því
óhappi í vikunni að detta inn
í Brúðubílinn og handleggs-
brotna. Atvikið átti sér stað
eftir general prufu sumarsins
í Hallar garðinum en eins og
flestir vita hefur Helga skemmt
börnum í hartnær 32 ár með sýn-
ingum Brúðubílsins.
„Það versta er að ég þarf að
vera í gifsi í fimm til sex vikur
sem er allt sumarið,“ segir Helga
miður sín en hún braut bein í
handarbakinu, í löngutöng, baug-
fingri og litla fingri. „Ég er samt
heppin að það standi tveir puttar
upp úr gifsinu. Það eru þumal-
fingur og vísifingur og þeir eru
sterkir puttar.“ Á sama tíma
lofar hún að sýningar sumarsins
beri ekki skaða af og að engin
þeirra falli niður.
„Hægri höndin er laus og ég
get gert stýrt öllum brúðunum
með þessum tveimur puttum þó
ég finni hræðilega til. Ég stýri
til dæmis litlum fíl en hann er
skaftbrúða og ég get haldið
utan um skaftið. Síðan er ekkert
vesen að stýra Lilla þar sem ég
er orðin svo vön honum,“ segir
handleggsbrotni brúðuleikarinn.
-hþt
Handleggsbrot í
Brúðubílnum
GIFSIÐ MIKLA Helga Steffensen stýrir brúðuleikhúsi handleggsbrotin í allt sumar.