Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 40
DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Mest lesið FRÉTTIR AF FÓLKI FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meiri Vísir. Forsetinn til Önnu og Villa Lögfræðingurinn Vilhjálmur Vil- hjálmsson og kona hans, Anna Lilja Johansen, hafa boðað til sumarfagn- aðar á heimili sínu í Garðabæ um næstu helgi. Parið er ekki þekkt fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og verður þessi samkunda engin undantekning. Sérstakir gestir í Sumargleði Vilhjálms og Önnu Lilju verða nefnilega forsetahjónin góðkunnu Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff. Ekki liggur fyrir hvort heimsóknin sé liður í kosningabaráttu hjónanna eða einungis kurteisisheimsókn til að fagna sumrinu. - fb, sv www.saft.is ÞÚ BERÐ ÁBYRGÐ Á ÞVÍ SEM ÞÚ SEGIR OG GERIR Á NETINU! Keypti tólf pör af skóm Enski tónlistarmaðurinn Elvis Costello hélt vel heppnaða tónleika í Hörpunni á sunnudagskvöld. Í áhorfendahópnum var eiginkona hans, söngkonan Diana Krall. Þau höfðu ekki sést í sex vikur, enda bæði mjög upptekin við tónlistar- flutning víða um heim. Daginn eftir tónleikana gengu Costello og Krall niður Laugaveginn í mestu mak- indum og skoðuðu íslenska hönnun. Einar Bárðarson, sem flutti Costello til landsins, sagði þau hafa staldrað lengi við í skóbúðinni Kronkron. Krall mun hafa heillast svo mikið af hönnuninni að hún keypti hvorki meira né minna en tólf skópör. Costello beið þolinmóður á meðan enda líklega vanur ýmsu þegar konur og skór eru annars vegar. 1 Finnsk stúlka hafnaði þrælahaldi á íslenskum … 2 Maija segir engan misskilning í samskiptunum við bóndann 3 Samskiptaleysi olli því að finnska stúlkan flúði vinnuna 4 Myndir af forseta teknar niður 5 Misskilningur olli leyfisleysi auglýsinga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.