Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 6
13. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR6 Klæjar þig og svíður á milli tánna? Þá gætir þú verið með fótsvepp!Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. – drepur fótsveppinn, þarf aðeins að bera á einu sinni 15% afslátturGildir í verslunum Lyfju. Gildir í júní Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði / www.hotelork.is / info@hotel-ork.is / sími: 483 4700 Njóttu sveitasælunnar – kynntu þér tilboðin á hotelork.is VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi mæld- ist 5,6 prósent í maí samkvæmt mæl- ingu Vinnumálastofnunar. Lækkaði hlutfall atvinnulausra á vinnumark- aði um 0,9 prósentustig á milli mán- aða sem jafngildir því að atvinnulaus- um hafi fækkað um ríflega þúsund. Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna síðan í desember árið 2008. Talsverðrar árstíðasveiflu gætir í atvinnuleysistölum og nær mælt atvinnuleysi yfirleitt lágmarki á hverju ári á tímabilinu júní til sept- ember. Því er almennt búist við að atvinnuleysi haldi áfram að minnka á næstunni og gerir Vinnumála stofnun ráð fyrir að atvinnuleysi verði á bilinu 4,6 til 5,0 prósent í þessum mánuði. Til samanburðar við 5,6 prósenta atvinnuleysi í maí var atvinnuleysi 7,4 prósent í sama mánuði í fyrra og 6,7 prósent í júní sama ár. Á höfuðborgarsvæðinu var atvinnuleysi í maí 6,3 prósent en 4,5 prósent á landsbyggðinni. Sem fyrr er atvinnuleysi mest á Suður- nesjum, eða 9,4 prósent, en minnst á Vestfjörðum þar sem það er aðeins 2,0 prósent. Um 5,4 prósent karla eru atvinnulaus og um 5,9 prósent kvenna. - mþl Vinnumálastofnun telur að atvinnuleysi gæti farið niður fyrir fimm prósent í þessum mánuði: Atvinnuleysi ekki minna síðan í árslok 2008 ÍSAFJÖRÐUR Atvinnuleysi í landinu er minnst á Vestfjörðum, tvö prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hlutfallslega lítið Í samanburði við tölur frá nágrannaþjóðum telst atvinnuleysi hlutfallslega lítið hér. Í apríl var meðalatvinnu- leysi í ESB 10,3 prósent, þegar það var 6,5 prósent á Íslandi. Í sama mánuði var atvinnuleysi 8,4 prósent í Finnlandi, 8,2 prósent í Bretlandi, 7,8 prósent í Svíþjóð, 7,7 prósent í Dan- mörku og Bandaríkjunum en einungis 2,6 prósent í Noregi. SÝRLAND Ráðist var að bílalest eftirlitsmanna á vegum Samein- uðu þjóðanna þegar þeir reyndu að komast inn í bæinn al-Haffa í Sýrlandi í gær. Hópur fólks gerði aðsúg að bílalestinni og kastaði grjóti og járnstöngum að henni auk þess sem skotið var á hana. Herve Ladsous, aðstoðaryfir- maður friðargæslu SÞ, sagði aðspurður í gær að hann teldi að nú mætti segja að borgarastyrjöld væri brostin á í landinu. „Það sem er að gerast er að stjórnvöld í Sýr- landi hafa tapað yfirráðum yfir stórum hlutum landsins, mörgum borgum, yfir til uppreisnarmanna og vilja nú ná völdum aftur.“ Áður höfðu bæði framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, og Kofi Annan, sérstak- ur erindreki í málefnum Sýrlands, lagt áherslu á að eftirlitsmenn fengju óheftan aðgang að bænum þar sem framin voru fjöldamorð fyrr í vikunni og átök eru sögð hafa harðnað. Reuters-fréttastofan hefur eftir einum uppreisnarmann- anna í bænum að ástandið sé skelfi- legt. „Gleymið vopnunum, fólk þarf lyf og mat. Eins og þið vitið er stríðsástand í Sýrlandi. Herinn gæti ráðist inn í Haffa á nokkrum mínútum en þeir reyna í staðinn að leggja bæinn í rúst.“ Þá sýnir ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna, sem kynnt var í Öryggis- ráðinu á mánudag, að börn hafi verið myrt, pyntuð, handtekin og fangelsuð í átökunum í Sýrlandi. Börn hafi verið beitt harðræði og kynferðislegu ofbeldi. Þá séu þess dæmi að börnin hafi verið notuð sem vörn í árásum. Radhika Coomaraswamy, fulltrúi framkvæmdastjóra SÞ í málefnum barna og hernaðar- átaka, flutti Öryggisráðinu skýrsl- una. Hún segir óvenjulegt að börn séu tekin höndum, þau pyntuð og myrt. Slíkt sjáist ekki víða og sé hræðilegt. Tekin voru viðtöl við fjölda barna og fyrrverandi her- menn í stjórnarhernum vegna skýrslugerðarinnar. Samkvæmt skýrslunni eru líka dæmi um að uppreisnarmenn hafi látið börn berjast. Bandaríkjastjórn sagði í gær að rússnesk stjórnvöld væru að senda Bashar al-Assad og stjórnvöldum hans herþyrlur. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að þyrlunar myndu auka átökin í landinu gríðarlega mikið. Hún kallaði eftir því að Rússar hjálpuðu frekar til við að koma á pólitískri lausn á málinu. Þá sögðu Bandaríkjamenn að þeir óttuðust að sýrlensk stjórnvöld væru að skipuleggja frekari fjöldamorð í al-Haffa. thorunn@frettabladid.is Borgarastyrjöld sögð skollin á í Sýrlandi Sameinuðu þjóðirnar segja ástandið í Sýrlandi nú þannig að þar sé hafin borg- arastyrjöld. Ráðist var á bílalest eftirlitsmanna SÞ við bæinn al-Haffa í gær. Hermenn Assads sagðir bera fyrir sig börn og sagðir hafa pyntað þau og myrt. SÝRLAND Forsætisráðherrar Norðurlandanna fordæma árásir á óbreytta borgara í Sýrlandi. Þetta var samþykkt á fundi þeirra í Norður-Noregi. Í ályktun ráðherranna eru fjöldamorðin í Houla og Quba- yr sögð algjörlega óviðunandi. Áframhaldandi árásir sýni að sýrlensk stjórnvöld hafi að engu friðaráætlun Kofi Annan á vegum Sameinuðu þjóðanna. Kalla eigi árásarmenn til ábyrgðar. - bþh Forsætisráðherrar funda: Fordæma árásir á fólk í Sýrlandi RÁÐHERRAR Jóhanna Sigurðardóttir sótti fund forsætisráðherra Norður- landanna 10. og 11. þessa mánaðar. Gata lokuð í Njarðvík Vegna framkvæmda verður Borgar- vegur í Njarðvík lokaður við Holtsgötu í dag og fram á morgun. Lögreglan á Suðurnesjum bendir á að á meðan verði einstefna á Holtsgötu frá Hjallavegi að Borgarvegi. Bensínfótarþyngsli Þrjátíu ökumenn, sem í gær urðu á vegi lögreglu á Reykjanesbraut, þar sem er 90 kílómetra hámarkshraði, reyndust með „of þungan bensínfót“, eins og lögreglan orðar það í tilkynningu. Þeir voru allir kærðir fyrir of hraðan akstur. Bent á snjallforrit Almannavarnadeild lögreglunnar vekur athygli á nýju snjallsímaforriti. „Með forritinu geta ferðamenn kallað eftir aðstoð ef um slys eða óhapp er að ræða. Einnig geta þeir nýtt það til að skilja eftir sig slóð, „brauðmola“, en slíkar upplýsingar geta skipt sköpum ef óttast er um afdrif við- komandi ferðalanga,” segir í frétt á vef lögreglunnar. Forritið, 112 Iceland, er hægt að sækja á vefinn safetravel.is. LÖGREGLUMÁL SKULDAMÁL Egil Rokhaug, sér- fræðingur í löggjöf og fram- kvæmd greiðsluaðlögunar ein- staklinga í Noregi, flutti erindi á fundi hjá Umboðsmanni skuldara á mánudag. Íslenska löggjöfin um greiðsluaðlögun byggir að hluta á þeirri norsku sem var eins og hin íslenska sett í kjölfar fjármála- krísu þar í landi en hin norska varð á árunum eftir 1990. Í máli sínu lagði Rokhaug áherslu á að gæta þyrfti sam- ræmis í því hvernig tekið væri á málum skuldara. Fyrst um sinn hefðu Norðmenn glímt við þann vanda að brugðist hefði verið með mjög mismunandi hætti við umsóknum um greiðsluaðlögun á ólíkum svæðum. Þá taldi Rokhaug lykilatriði að lánastofnunum og kröfuhöfum væri skylt að taka þátt í samning- um um greiðsluaðlögun. Fljótlega hefði komið í ljós að margir kröfu- hafar væru ekki tilbúnir til þess að gefa krónu eftir af kröfum sínum. Fyrir skuldarana og hagkerfið sem heild væri þó skynsamlegt að hafa úrræði sem þetta í boði. Samkvæmt norsku lögunum þarf skuldari í greiðsluaðlögun að greiða vexti af öllum sínum lánum í fimm ár frá samþykkt aðlögun- arinnar. Þessi fimm ár er skuld- arinn jafnframt á vanskilaskrá. Að þeim tíma loknum eru allar skuldir viðkomandi færðar niður þannig að þær séu ekki hærri en sem nemur verðmæti húsnæðis viðkomandi. Norska þingið hefur breytt löggjöfinni um greiðsluaðlög- un fjórum sinnum til að einfalda greiðsluaðlögunina og til að lag- færa vankanta á lögunum. - mþl Norskur sérfræðingur flutti erindi um reynslu Norðmanna af greiðsluaðlögun: Samræmis sé gætt við skuldaaðlögun EGIL ROKHAUG Samkvæmt norskum lögum um greiðsluaðlögun eru skuldarar á vanskilaskrá í fimm ár frá samþykkt aðlögunar og greiða á meðan vexti af öllum sínum lánum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MÓTMÆLI UM HELGINA Þessi mynd birtist í gær og er sögð sýna mótmæli í Idlib-héraði í norðurhluta Sýrlands á sunnudag. Mótmælin hafa beinst gegn Rússum, sem eru helstu bandamenn Assads forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Átt þú þér uppáhaldslið á EM í knattspyrnu? Já 40,1% Nei 59,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Kaupir þú notuð föt? Segðu þína skoðun á Vísi.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.