Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 13. júní 2012 25
hefur leyft sér að nostra við hvert
smáatriði. Textinn er feykivel unn-
inn, á köflum ljóðrænn og seiðandi,
persóna Ásu skýrt dregin, en aðrar
persónur síður, enda er öll sagan
sögð út frá hennar sjónarhorni og
það eina sem lesandinn kynnist eru
hennar viðmið, sem eingöngu taka
mið af henni sjálfri.
Helsti galli sögunnar er einmitt
þessi sjálfhverfni aðalpersónu og
sögumanns. Hún minnir á köfl-
um á Scarlett O‘Hara úr Á hverf-
anda hveli en hefur því miður
ekki sjarma Scarlett og lesandinn
á ákaflega erfitt með að finna til
samúðar með henni þrátt fyrir alla
erfiðleikana í nútíð og fortíð. Þessi
tenging við Scarlett er varla ómeð-
vituð frá höfundarins hendi, enda
titill bókarinnar og lokaorð sög-
unnar vísun í hin frægu lokaorð Á
hverfanda hveli: „After all, tomor-
row is another day.“
Þjóðsögurnar íslensku leika
einnig hliðarstef í sögunni, systk-
inin þrjú, börn karls og kerlingar
í koti, bera nöfnin Ása, Signý og
Helgi eins og systurnar í þjóðsög-
unni og Ása þarf að leysa ýmsar
þrautir áður en hún getur gert sér
vonir um að hreppa hamingjuna.
Þessar bókmenntavísanir víkka
söguna til muna og vekja skemmti-
legar hugleiðingar og höfundur á
hrós skilið fyrir að vefa þær inn í
söguna.
Það kemur alltaf nýr dagur er
ekki auðveld bók aflestrar, sagan
ekki falleg og persónur ekki gott
fólk, en seiðurinn í textanum togar
lesandann áfram síðu eftir síðu og
það er gaman að lesa svo vel skrif-
aða og vel unna bók frá nýjum
íslenskum höfundi sem vonandi
á eftir að láta okkur njóta krafta
sinna lengi í viðbót.
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Vel skrifuð saga um
þekkt stef. Seiðandi texti og skemmti-
legar bókmenntavísanir gera lesturinn
að óvenjulegri og hressandi upplifun.
Heilsueldhúsið
VELKOMIN Á BIFRÖST
Opið fyrir umsóknir
til 15. júní á bifrost.is
HHS
Viðskiptafræði
Viðskiptafræði
Viðskiptalögfræði
Frumgreinanám MA
MA
ML
MS
Frumgreinanám Grunnnám Meistaranám
Umsóknarfrestur
rennur út 15. júní
Háskólinn á Bifröst er framsækinn skóli í viðskiptum, lögfræði
og hugvísindum og háskólasamfélagið er frábært umhverfi fyrir börn
og fullorðna. Á Bifröst vinnum við saman í hópum, getum unnið allt
árið og erum í sterkum tengslum við atvinnulífið.
Skoðunarferð um
háskólaþorpið
hefst á Bifrost.is
Bækur ★★★
Það kemur alltaf nýr dagur
Unnur Birna Karlsdóttir
Bjartur
Ása er rík, Ása er falleg, Ása á hið
fullkomna líf í efri lögum sam-
félagsins í New York ásamt sínum
forríka manni og tveimur börnum.
Ása á líka erfiða fortíð heima á
Íslandi; drykkfelldan föður, svik-
ulan kærasta og móður sem yfir-
gefur börn og bú, en hún hefur falið
þá fortíð djúpt í leynum hugans.
Enginn veit þó sína ævina og einn
góðan veðurdag yfirgefur eigin-
maðurinn hana fyrir yngra módel,
faðir hennar deyr og hún hrekst úr
glamúrlífinu í NY heim í íslensku
sveitina sína, þar sem hún gengur
um heiðar og móa, vorkennir sjálfri
sér og rifjar upp fortíðina. Ham-
ingjan bíður svo handan við upp-
gjörið – í líki karlmanns, en ekki
hvað?
Það kemur alltaf nýr dagur er
fyrsta skáldsaga Unnar Birnu
Karlsdóttur og hefur greinilega
verið lengi í vinnslu og höfundur
Ása, Signý, Helgi og Scarlett
UNNUR BIRNA
KARLSDÓTTIR
„Það er gaman
að lesa svo
vel skrifaða
og vel unna
bók frá nýjum
íslenskum
höfundi,“ segir
í ritdómi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gengið verðir að Kjarvalsreit
annað kvöld í fyrstu göngu sum-
arsins, sem menningarstofnanir
Reykjavíkurborgar skipuleggja.
Þá mun Jónatan Garðarsson,
fjölmiðla- og fræðimaður, leiða
göngur í Gálgahrauni ásamt
Halldóri Ásgeirssyni mynd-
listarmanni. Gangan er farin í
tengslum við sýninguna Gálga-
klettur og órar sjónskynsins
– Sýning um samtal Jóhannes-
ar Kjarvals við náttúruna og
íslenska myndlist, sem nú stend-
ur yfir á Kjarvalsstöðum.
Í um aldarfjórðung heim-
sótti Jóhannes Kjarval reglu-
lega afskekktan stað í Garða-
hrauni norðan Hafnarfjarðar,
sem hann kenndi við Gálgaklett.
Ekki verður séð að þessi staður
hafi neitt sérstakt upp á að bjóða
umfram það sem almennt gerist
í íslensku hrauni, en andspæn-
is formlausum hraunmyndun-
um Gálgakletts málaði Kjarval
engu að síður hátt á fimmta tug
mynda, sem eru grunnurinn
að sýningunni undir sýningar-
stjórn Ólafs Gíslasonar. Sýning-
in fjallar öðru fremur um fyrir-
bærafræði sjónskynsins þar
sem einnig er að finna verk eftir
tuttugu aðra íslenska listamenn,
sem enduróma nálgun Kjarvals
við Gálgaklett sem viðfangsefni
á einn eða annan hátt.
Gangan hefst við bílaplan
við Hraunvík, nærri Sjálands-
og Ásahverfum þar sem eystri
hluti Fógetagötu hefst, klukkan
átta. Bílastæðið er merkt með
friðlandsskilti. Einnig verður
boðið upp á rútuferð fram og til
baka frá Hafnarhúsi, Tryggva-
götu 17, kl. 19.30.
Gangan er hluti af Kvöld-
göngudagskrá sem Borgarbóka-
safnið, Listasafn Reykjavíkur,
Ljósmyndasafn Reykjavíkur og
Minjasafn Reykjavíkur standa
fyrir á fimmtudagskvöldum á
sumrin. Gangan og rútuferðin
eru öllum að kostnaðarlausu.
Kvöldganga að
Kjarvalsreit
ÚR GÁLGAHRAUNI 1955 - 1960 Ein fjölmargra mynda sem Kjarval málaði í Gálga-
hrauni.