Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 24
13. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, bróðir, mágs, afa og langafa,
KEN C. AMIN
Kópavogsbraut 47.
Sigurbjörg Jónsdóttir
Aron Árnason Sigríður Elín Þorkelsdóttir
Ervin Árnason Dagbjört Sigfinnsdóttir
Anita Árnadóttir Sigurjón Páll Kolbeins
Örn Árnason Margrét Þóra Einarsdóttir
Orri Árnason Fanney Elín Ásgeirsdóttir
Vishnu Amin Harpa Jósefsdóttir Amin
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
dóttir, tengdamóðir, fósturmóðir og systir,
EYBJÖRG B. HANSDÓTTIR
heimilislæknir,
Sjávargötu 36, Álftanesi,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi sunnudaginn 3. júní síðastliðinn
verður jarðsungin frá Vídalínskirkju
fimmtudaginn 14. júní kl 15.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á reikning til
styrktar börnum hennar, 0318-13-000370, kt.: 040190-2879.
Einar Trausti Kristinsson
Stefanía Sunna Ragnarsóttir Sverrir Örn Einarsson
Sigrún Alda Ragnarsdóttir Sindri Andrésson
Kristján Ingi Ragnarsson
Brynjar Freyr Ragnarsson
Lilja Kristín Einarsdóttir
Elínborg Þuríður Björnsdóttir
fósturdætur og systkini.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýjar kveðjur
vegna andláts móður okkar, ömmu og
langömmu,
ÁSTU HELGU BERGSDÓTTUR.
Hjartans þakkir til allra sem lögðu hönd á
plóg við útförina.
Indíana, Eva og Helgi
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir og tengdamóðir,
KRISTÍN VALDIMARSDÓTTIR
lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 3. júní. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Gunnar Magnússon
Magnús Gunnarsson Gunnhildur Gunnarsdóttir
Lína Gunnarsdóttir Sveinbjörn Steingrímsson
Kristín Gunnarsdóttir Egill Jóhannsson
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og vinur,
JÓHANN ÓLAFSSON
múrarameistari,
Austurvegi 5, Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
laugardaginn 9. júní. Jarðarförin
fer fram frá Grindavíkurkirkju
föstudaginn 15. júní kl. 14.00.
Ólafur Þór Jóhannsson Þórunn S. Jóhannsdóttir
Ingvar Páll Jóhannsson Þórhildur Arna Þórisdóttir
Hulda Jóhannsdóttir Páll Valur Björnsson
Sigríður Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
TORFI JÓNSSON
fyrrverandi lögregluþjónn,
Kleppsvegi 62,
lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn
9. júní. Útförin verður auglýst síðar.
Hilda Torfadóttir Haukur Ágústsson
Hlín Torfadóttir
Gerður Torfadóttir
Magnús Ingvar Torfason Sigrún Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
sonur, faðir, tengdafaðir og afi,
HJALTI GUÐMUNDSSON
meindýraeyðir,
Huldugili 6, Akureyri,
lést fimmtudaginn 7. júní.
Guðný Ósk Agnarsdóttir
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Heiður Hjaltadóttir Arnar Már Sigurðsson
Gígja Hjaltadóttir
Agnar Kári Sævarsson Heiðrún Georgsdóttir
Sigurlaug Sævarsdóttir Hilmar Þór Ívarsson
afabörn og aðrir aðstandendur.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinsemd við andlát og útför okkar elskulega
KJARTANS JÓNSSONAR
Kjartansgötu 8.
Sérstakar þakkir færum við göngufólki í
Esjuhlíðum og félögum í Landsbjörgu fyrir
veitta aðstoð. Guð blessi ykkur öll.
Ólöf Júlía Kjartansdóttir
Árni Rúnar Inaba Kjartansson Anna Arnardóttir
Ólöf Lena Inaba Árnadóttir Arna Katrín Inaba Árnadóttir
Víkingur Davíð Inaba Árnason
Ólöf E. Árnadóttir Jón Ólafsson
Steingerður Jónsdóttir Örlygur Karlsson
Ólafur Jónsson
Skafti Jónsson Bente Nielsen
„Litla norræna ráðstefnan okkar er
orðin alþjóðleg,“ segir Erna Árnadótt-
ir, formaður Íslenska lestrarfélagsins,
en félagið skipuleggur lestrarráðstefnu
sem varð skyndilega alþjóðleg. Ráð-
stefnan verður haldin í dag og á morg-
un í húsakynnum Menntavísindasviðs
við Stakkahlíð og er yfirskrift hennar
hvatning, sköpun og meiri lestur.
Ráðstefnan er haldin í samstarfi við
önnur norræn lestrarfélög og Evrópu-
nefnd alþjóðlegu lestrarsamtakanna,
International Reading Association.
„Þetta er sextánda norræna lestrar-
ráðstefnan. Síðasta var haldin fyrir
tveimur árum í Finnlandi. Þá var
Eystrasaltslöndunum boðið með og
fyrirlestrar fluttir á ensku í fyrsta
sinn. Við ákváðum í ár að kanna áhuga
meðal annarra Evrópuþjóða og banda-
rískra aðila. Áhuginn var slíkur að
gestirnir sem við reiknuðum með að
yrðu 60 til 70 manns eru nú orðnir
fleiri en tvö hundruð talsins. Hún er
því orðin mun stærri en við ætluðum
okkur.“
Sérfræðingar margra landa fjalla
um ýmsar hliðar lesturs og læsis. Aðal-
fyrirlesari ráðstefnunnar verður Willi-
am Brozo, prófessor við George Mason
háskólann í Fairfax í Virginíufylki.
Hann er höfundur fjölmargra bóka og
greina um lestrarfræði en hann hefur
öðlast frægð fyrir rannsóknir sínar og
þekkingu á lestri og lestrarhvatningu
drengja.
Fyrirlestur hans tekur á því hvern-
ig hvetja megi fólk, ekki aðeins stráka,
til lesturs. Hvernig nota megi sköpun
og fara aðrar leiðir í lestrarkennslu.
Meðal íslenskra fyrirlesara er Ingi-
björg Auðunsdóttir sem bendir á nauð-
syn þess að efla læsi meðal íslenskra
drengja en samkvæmt íslenskum hluta
PISA-rannsóknar OECD frá 2009 telj-
ast 23% 15 ára drengja í Reykjavík
ekki geta lesið sér til gagns á móti 9%
stúlkna.
„Lestrarfræðingar hafa lengi velt
vöngum yfir þeirri staðreynd að strák-
ar eru síðri en stelpur í lestri og verða
oftar seinna læsir,“ segir Erna og nefn-
ir að miklu fleiri strákar glími við
dyslexíu en stelpur en ákveðinn hluti
ráðstefnunnar verður tileinkaður sér-
kennslu.
Rithöfundurinn Guðmundur Andri
Thorsson heldur lokafyrirlestur ráð-
stefnunnar. „Ísland hefur einu sinni
áður haldið svona ráðstefnu. Það var
árið 1995 og Einar Már Guðmundsson
talaði síðastur með miklum glæsibrag.
Þetta verður ekki síðra í ár.“
Eftir ráðstefnuna heldur Evrópu-
nefnd alþjóðlegu lestrarsamtakanna
fund sinn. Hana skipa fulltrúar margra
Evrópulanda og munu þeir ræða leiðir
til þess að bæta læsi í álfunni en staða
þess er mörgum áhyggjuefni enda gera
nútímasamfélög sífellt meiri kröfur til
færni í máli, lestri og ritun.
hallfridur@frettabladid.is
ÍSLENSKA LESTRARFÉLAGIÐ: HELDUR ALÞJÓÐLEGA LESTRARRÁÐSTEFNU
Efla þarf læsi íslenskra drengja
ALÞJÓÐLEG Rúmlega tvö hundruð manns munu sækja lestrarráðstefnu um helgina sem skipulögð er af Ernu og Íslenska lestrarfélaginu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR
Sigurður Jónasson forstjóri afhenti íslenska
ríkinu Bessastaði að gjöf á þessum degi
árið 1941 svo þar mætti verða bústaður
ríkisstjóra og síðar forseta.
Á þjóðveldisöld bjó skáldið og höfðinginn
Snorri Sturluson á Bessastöðum en eftir
lát hans sló Noregskonungur eign sinni á
staðinn.
Eftir einveldistöku Danakonungs urðu
Bessastaðir embættisbústaður fulltrúa
konungs, landfógeta og amtmanns þar til
yfirstjórn landsins fluttist til Reykjavíkur.
Árið 1867 eignaðist skáldið og þingmaður-
inn Grímur Thomsen Bessastaði en við lát
hans árið 1896 keypti Landsbanki Íslands
staðinn af ekkju hans, Jakobínu Jóns-
dóttur.
Tveimur árum síðar keyptu hjónin Skúli
Thoroddsen ritstjóri og alþingismaður
og kona hans Theodóra Thoroddsen
skáldkona Bessastaði og bjuggu þar með
börnum sínum tólf til ársins 1908. Þegar
Skúli lést árið 1916 keypti Jón H. Þorbergs-
son bóndi Bessastaði og bjó þar til ársins
1928 en eftir það bjó Björgúlfur Ólafsson
læknir á staðnum 1928-1940. Sigurður
Jónasson forstjóri keypti Bessastaði af
Björgúlfi árið 1940 og afhenti ríkinu
staðinn að gjöf ári síðar.
ÞETTA GERÐIST: 13. JÚNÍ 1941
Íslenska ríkið fær Bessastaði
ASLEY OG MARY-KATE OLSEN tvíburar, leikkonur
og tískufrömuðir, eiga afmæli í dag.
„Alltaf þegar við eigum frítíma viljum við
helst vera heima.“
26