Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 8
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR8
1. Hvað heitir biskup Íslands?
2. Hvað heitir hálfbróðir Justins
Bieber?
3. Söngvari hvaða hljómsveitar
heitir Ian Anderson?
SVÖR
1. Karl Sigurbjörnsson 2. Jaxon Julian 3.
Jethro Tull.
FRÉTTASKÝRING
Hverjar eru væntingarnar til Ríó + 20?
Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
um sjálfbæra þróun hefst í Brasilíu
í dag undir heitinu Ríó + 20. Yfir-
skriftin vísar til þess að nú eru tutt-
ugu ár síðan loftslagsráðstefna SÞ í
Ríó fór fram, þar sem var í fyrsta
skipti tekið á hlýnun jarðar.
Síðan ráðstefnan fór fram fyrir
20 árum hefur mikið vatn runnið
til sjávar og það sem verra er hefur
miklu magni gróðurhúsaloftteg-
unda verið blásið út í andrúmsloft-
ið. Þrátt fyrir fögur fyrirheit hefur
aldrei farið jafn mikið af þeim
efnum út í andrúmsloftið.
Síðan þjóðir heims komu saman
í Ríó árið 1992 hefur mikið verið
reynt að ná fram samningum sem
binda hendur þjóða heims varðandi
útblásturinn. Það hefur gengið illa.
Í raun er eini samningurinn sem
hefur náð þeirri stöðu Kyoto-bók-
unin, sem samþykkt var árið 1997,
um að varna því að koma í veg fyrir
að útblástur hefði skaðleg áhrif á
hlýnun jarðar. Sú bókun var þó ekki
bindandi og illa gekk að fá ríki til
að staðfesta hana. Hún er nú runn-
in úr gildi.
Grænt hagkerfi
Engar vonir standa til þess að laga-
lega bindandi samningur náist nú í
Brasilíu. Mikilvægi ráðstefnunnar
liggur í því hvernig tekst að þoka
málum áfram, málum sem síðar
verður samið um.
Græna hagkerfið verður áber-
andi í Ríó, en með því er átt við að
unnið verði að sjálfbærri þróun á
umhverfisvæn-
an hátt. Rétt er
að minna á að
hinar þrjár stoð-
ir sjálfbærrar
þróunar eru sú
efnahagslega,
félagslega og
umhverfislega.
Sameinuðu
þjóðirnar hafa
lagt áherslu á
græna hagkerfið, en illa hefur geng-
ið að vinna því sess í bindandi samn-
ingum.
Bláa hagkerfið
Málefni hafsins verða áberandi á
ráðstefnunni og hafa þau stundum
verið nefnd bláa hagkerfið. Vernd-
un heimshafanna mun fá forgang í
samþykktum ráðstefnunnar í Brasi-
líu og hafa heimamenn tekið að sér
að stýra viðræðum þar um.
Tekið verður á þeim ógnum sem
steðja að fiskistofnum, vistkerfi og
líffræðilegri fjölbreytni í hafinu.
Sú áhersla mun trauðla rata inn
í lagalega bindandi texta, en verð-
ur til þess að auka mikilvægi mála-
flokksins í komandi samningavið-
ræðum.
Áherslur Íslands
Ísland hefur sett fjögur mál í for-
gang; endurnýjanlega orku, mál-
efni hafsins, jafnréttismál og land-
græðslu og landnýtingu. Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráðherra
situr ráðstefnuna.
Komið er inn á öll þessi forgangs-
mál í tillögu að niðurstöðuskjali ráð-
stefnunnar. kolbeinn@frettabladid.is
Grænt og blátt hagkerfi
Engar líkur eru á lagalega bindandi samkomulagi á ráðstefnu SÞ um sjálfbæra þróun sem hefst í dag. Tutt-
ugu árum eftir loftslagsráðstefnuna í Ríó hefur útblástur gróðurhúsalofttegunda aldrei verið meiri.
Unnið hefur verið að lokaskjali ráðstefnunnar um langa hríð og hefur það
breyst mikið í þeirri vinnu. Drög að því liggja nú fyrir og ætlunin er að
samþykkja það á föstudaginn. Yfirskrift þess er The Future We Want, eða
framtíðin sem við óskum okkur. Skjalið skiptist, í grófum dráttum, í sex
hluta, sem eru:
■ Endurnýjun pólitískra fyrirheita
■ Græna hagkerfið
■ Sjálfbær þróun
■ Útrýming fátæktar
■ Stofnanaumgjörð SÞ fyrir sjálfbæra þróun
■ Aðgerðir og eftirfylgni – leiðir til framkvæmda
Unnið að óskaframtíð
REYNT Í RÍÓ Þjóðir heims reyna nú að komast að samkomulagi um umhverfismál
í víðum skilningi í Ríó. Fjöldi mótmælenda kemur málstað sínum á framfæri. Hér
dansa frumbyggjar fyrir framan Þróunarbanka Brasilíu til að mótmæla vatnsafls-
virkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
SAMGÖNGUMÁL Suðurstrandarveg-
ur verður formlega opnaður í dag
þegar Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra og Hreinn Haralds-
son vegamálastjóri klippa á
borða. Undirbúningur fyrir lagn-
ingu vegarins hófst árið 1996.
Suðurstrandarvegur er 57
kílómetra langur og liggur frá
Grindavík að Þorlákshöfn. Hann
liggur því um þrjú sveitarfélög
sem eru Grindavík, Hafnarfjarð-
arbær og sveitarfélagið Ölfus.
Markmið framkvæmdarinnar
er að byggja varanlega og örugga
vegtengingu milli Suðurlands og
Suðurnesja. Vegurinn uppfyllir
nútíma veghönnunarreglur og
aðgengi ferðafólks um svæðið er
stórbætt. Áætlaður kostnaður við
verkið er tæpir þrír milljarðar
króna.
- bþh
Suðurstrandarvegur opnaður:
Stórbætt öryggi
með nýjum vegi
VEISTU SVARIÐ?