Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 10

Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 10
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR10 RANNSÓKN Mörg hundruð eyðibýli er að finna á Íslandi. Ekki liggur enn fyrir nein heild- stæð opinber skrá um þau, en í fyrra voru stofnuð samtök sem munu láta kanna og skrásetja fjölda yfirgefinna íbúðarhúsa um land allt. Alls voru skrásett 103 eyðibýli síðasta sumar þegar kannaðar voru þrjár sýslur; A-Skaftafellssýsla, V-Skaftafellssýsla og Rangárvallasýsla. Gísli Sverrir Árnason er formaður félags- ins Eyðibýli – Áhugamannafélag, sem er ábyrgt fyrir verkefninu. Félagið fær til sín hóp háskólanema á hverju sumri til að rann- saka húsin. Í ár samanstendur rannsóknar- teymið af háskólanemum í arkitektúr og fornleifafræði. Gísli segir erfitt að segja til um nákvæm- an fjölda eyðibýla, en ljóst sé að miðað við tölur síðasta árs skipta þau hundruðum. Skilgreining rannsóknarinnar á eyðibýli er yfirgefið íbúðarhús, sem þó er enn með þaki og er því ekki í algjörri rúst eða niður- níðslu. „Í fyrra var algengt að byggingarnar stæðu við hliðina á núverandi húsnæði jarð- arinnar. En landslagið er vissulega annað á Norðausturlandi, þar sem þau standa yfir- leitt ein og stök.“ Gísli segir að eftir því sem nær þéttbýli dragi aukist líkurnar á því að hús hafi verið gerð upp eða verið sé að gera þau upp. Slíkt sé ekki eins algengt á strjálbýlli svæðum. „Þó urðu þau vör við í fyrra á Langanesi og Melrakkasléttu að verið væri að gera þau upp,“ segir Gísli. „Þar er verið að bjarga eyðibýlum, sem er mjög jákvæð þróun.“ Hann segir allan gang vera á því hverjir eigendur húsanna séu; allt frá núverandi bændum yfir í ríkið og bankana. Hópurinn fór af stað á ný þann 11. júní Skrásetja hundruð eyðibýla Ljóst er að mörg hundruð eyðibýli eru á Íslandi. 103 yfirgefin hús voru skrásett og könnuð í fyrra og heldur verkefnið áfram í sumar. Alltaf að færast í aukana að fólk geri upp hús, segir forsvarsmaður verkefnisins. „Þetta er gríðarlega áhugavert. Það er algjör lúxus og afar spennandi að keyra um landið og fá að kynnast því með þessu móti,“ segir Birkir Ingibjartsson, einn rannsakenda og nýútskrifaður úr arkitektúr í Listaháskóla Íslands. Birkir er nýkominn úr leiðangri um Þingeyjar- sýslurnar. Í Norður-Þingeyjarsýslu skrásetti hópur- inn á bilinu 30 til 40 eyðibýli, sem sum hver hafa verið yfirgefin í meira en fimmtíu ár. Þá hafa önnur staðið auð einungis í nokkur ár. „Það getur verið mjög forvitnilegt að velta fyrir sér af hverju þessi hús fóru í eyði og hvernig búsetan hefur verið,“ segir Birkir. „Sum þeirra eru í þannig ásigkomulagi að það er eins og fólkið hafi bara farið í gær.“ Meira en 30 býli í N-Þingeyjarsýslu DAGVERÐARÁ Á SNÆFELLSNESI Í sumar mun hópurinn skoða eyðibýli á öllu Vesturlandi og Norðausturlandi, en endanlegur fjöldi bygginganna mun ekki liggja fyrir fyrr en í haust. MYND/STEINUNN EIK EGILSDÓTTIR HEIÐI Á LANGANESI Félagið sem skrásetur eyðibýlin skilgreinir þau sem yfirgefið íbúðarhús, sem þó er enn með þaki og er því ekki í algjörri rúst eða niðurníðslu. MYND/STEINUNN EIK EGILSDÓTTIR síðastliðinn og mun skoða Þingeyjarsýsl- urnar báðar og norðausturhorn landsins, sem og allt Vesturland frá Hvalfirði. „Næst eru það Mýrarnar, Borgarfjarðarsýsla og Dalirnir á Vesturlandi,“ segir Gísli. „Ég get ímyndað mér að þar verði töluvert af húsum.“ Verkefnið er meðal annars styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. sunna@frettabladid.is Meðaleyðsla aðeins 3,8 lítrar á hverja 100 km** www.volkswagen.is Sparnaðarráð frá Þýskalandi Volkswagen Golf BlueMotion Komdu og reynsluaktu Volkswagen Golf ** Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Golf BlueMotion 1.6 A uk ab ún að ur á m yn d: 1 8” á lfe lg ur Golf k ostar ða eins frá 3.390.000 kr. Sigurvegari í sparakstri * * Volkswagen Golf var sigurvegari í árlegri sparaksturskeppni Atlantsolíu 2012, í flokki dísilbíla 1.4-1.6 cc. AFMÆLISGJÖF Í LSE Stjórnarand- stöðuleiðtogi Búrma, Aung San Suu Kyi, fékk þessa derhúfu í byrjun heimsóknar sinnar í London School of Economics í gærmorgun. Hún varð 67 ára í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa nam 47,3 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Til samanburðar var aflaverðmæti 37,6 milljarðar á sama tímabili 2011. Verðmætið jókst því um fjórðung á milli ára. Verðmæti uppsjávarafla jókst um heil 35% á milli ára og var 14,7 milljarðar á fyrstu þremur mánuð- um ársins. Verðmæti botnfisks var hins vegar 29 milljarðar og jókst um 24,2%. Þá var verðmæti flat- fiskafla um þrír milljarðar króna á tímabilinu. Af einstökum teg- undum nam verðmæti þorskafla 16,1 milljarði og loðnuafla þrettán milljörðum. - mþl Veiðar á fyrsta ársfjórðungi: Aflaverðmæti fjórðungi meira SAMFÉLAGSMÁL Aðgerðaáætl- un gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum var sam- þykkt í borgarstjórn Reykjavíkur í gær. Hún miðar að því að nýta sem best þær leiðir sem borgin hefur til að fyrirbyggja ofbeldi og styðja við þolendur. Í áætluninni er lögð áhersla á forvarnir, aðstoð við brotaþola, fræðslu, samstarf og meðferð fyrir gerendur. Starfshópur sem setti saman áætlunina var skipaður fulltrúum allra fagsviða sem vinna að vel- ferð, mannréttindum, menntun og barnavernd. Hópurinn leitaði til fræðimanna og grasrótarsam- taka við gerð áætlunarinnar. - shá Auka forvarnir og aðstoð: Áætlun gegn ofbeldi í höfn KÍLAKOT Í KELDUHVERFI Í Norður-Þingeyjarsýslu skrásetti rannsóknarhópurinn fjölda eyðibýla. MYND/STEINUNN EIK EGILSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.