Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 12
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR12
SVEITARFÉLÖG Sveitarstjórn Bol-
ungarvíkur hefur sent innanríkis-
ráðuneytinu erindi þar sem þess
er krafist að staðið verði við sam-
komulag um frekari niðurfellingu
skulda á félagslegu íbúðarhúsnæði í
sveitarfélaginu. Sveitarfélagið gerði
samning við eftirlitsnefnd með fjár-
málum sveitarfélaganna þess efnis.
Bolungarvík hefur staðið við sinn
hluta samkomu-
lagsins.
Samkomu-
lagið, sem gert
var í lok árs
2008 og byrj-
un 2009, gerir
ráð fyrir því að
Bolungarvík
grípi til ýmissa
aðgerða, svo
sem niðurskurð-
ar, frestunar á þegar gerðum fram-
kvæmdasamningum, álagi á útsvar
og hækkun á þjónustutekjum. Á
móti yrði 146 milljón króna skuld
á félagslegu íbúðarhúsnæði aflétt.
Nefndin leitaði eftir aðgerðum
Íbúðalánasjóðs og stjórn hans sam-
þykkti í janúar 2009 að afskrifa að
fullu helming þeirrar upphæðar,
eða 73 milljónir. Afborganirnar af
öðrum 73 milljónum yrðu frystar í
eitt ár. „Að því tímabili loknu verði
málið tekið til endurskoðunar í sam-
ráði við eftirlitsnefndina og viðkom-
andi ráðuneyti.“
Þegar leitað var eftir því að
afgangur upphæðarinnar yrði
felldur niður hafði ný stjórn Íbúða-
lánasjóðs tekið við. Hún hafnaði
erindinu.
Eftirlitsnefndin er harðorð um
málið í ársskýrslu sinni fyrir árið
2011, en þar segir: „Það er alvarlegt
þegar opinber aðili getur ekki staðið
við þau fyrirheit, sem hann tók að
sér að hafa milligöngu um með sam-
komulagi við lánardrottna, sökum
þess að ríkisstofnun – í þessu tilviki
Íbúðalánasjóður – telur sig ekki
bundna af því samkomulagi sem
gert var.“
Sigurður Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs,
segir sjóðinn aldrei hafa verið
aðila að þessu samkomulagi og
þar af leiðandi ekki bundinn af
því. Það sé í raun alvarlegt mál
að opinber aðili eins og eftirlits-
nefndin geti gert samning um
aðgerðir Íbúðalánasjóðs án hans
aðkomu.
Sigurður segir stöðu eignanna
í raun þannig í dag að þær standi
undir sér. Þá sé Íbúðalánasjóð-
ur bundinn af tilmælum um að
fylgja Beinu brautinni í aðgerðum
í skuldamálum. Samkvæmt henni
megi ekki mismuna kröfuhöfum,
en sú yrði reyndin ef farið væri
eftir samkomulaginu. Þá greinir
nefndina og sjóðinn á um raun-
verulega stöðu sveitarfélagsins.
„Við kynntum nefndinni okkar
mat um að staða sveitarfélagsins
væri mun alvarlegri en þeir teldu
hana vera og þar af leiðandi teld-
um við að frekari aðgerða væri
þörf. Við höfum ítrekað boðið
þeim að fara í Beinu brautina,
þar sem jafnræði kröfuhafa verði
gætt. Því hefur ekki verið sinnt.“
kolbeinn@frettabladid.is
Við höfum ítrekað
boðið þeim að fara í
Beinu brautina ...
SIGURÐUR ERLINGSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI ÍLS
Gamla bíó
í kvöld
Opinn fundur með Þóru
Arnórsdóttur kl. 20.00.
Þóra og stuðningsfólk ávarpa
fundinn og Þóra ræðir við gesti
um hlutverk forsetans og
framtíðarsýn fyrir embættið.
www.thoraarnors.is
Allir velkomnir!
Bolungarvík krefst þess að
ráðuneyti virði samninga
Bolungarvíkurkaupstaður hefur sent innanríkisráðuneytinu erindi og krafist niðurfellingar tugmilljóna
skulda á félagslegu húsnæði. Samningur er til þar um. Íbúðalánasjóður hafnar niðurfellingunni.
BOLUNGARVÍK Bæjaryfirvöld hafa krafið innanríkisráðuneytið um uppfyllingu
samkomulags við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um niðurfellingu 73
milljóna króna skuldar við Íbúðalánasjóð.
SIGURÐUR
ERLINGSSON
Elías Jónatansson, bæjarstjóri Bolungarvíkur, segir málið skipta sveitarfélagið
verulega miklu. Á núvirði sé upphæðin nálægt 90 milljónum króna. Hann
bendir á að bæjarsjóður hafi þegar afskrifað kröfu á húsnæðiskerfið sem
sé nálægt hálfum milljarði, hærri fjárhæð en sem nemi öllum skatttekjum
sveitarfélagsins árið 2011, að úthlutunum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga með-
töldum.
„Okkar samningur er við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og
þeir í rauninni setja þetta þannig fram að þeim hafi ekki tekist að uppfylla
samninginn við okkur vegna þess að Íbúðalánasjóður hafi ekki spilað með.
Okkar aðkoma snýr í rauninni að innanríkisráðuneytinu, eða eftirlitsnefnd-
inni, þannig að við munum sækja málið þar.
Við höfum þegar skrifað innanríkisráðherra bréf og sagt honum að við
munum ekki una þessari niðurstöðu.“
Sækja málið til ráðuneytisins
STJÖRNUFRÆÐI Stjörnustöð Evrópu-
landa á suðurhveli (ESO) mun
byggja stærsta stjörnusjónauka
jarðar á tindi Cerro Armazones-
fjallsins í norðurhluta Síle, skammt
frá Paranal stjörnustöð ESO, eins og
fram kemur á stjörnufræðivefnum.
European Extremely Large
Telescope (E-ELT), einnig kall-
aður stærsta auga jarðar, verður
tekinn í notkun snemma á næsta
áratug, gangi vonir manna eftir.
E-ELT mun hafa 39,2 metra sam-
settan safnspegil en kostnaðurinn
er áætlaður 1.100 milljónir evra (á
verðlagi ársins).
„E-ELT mun halda ESO í leiðandi
stöðu í stjarnvísindum næstu ára-
tugi og leiða til ríkulegrar og spenn-
andi vísindauppskeru,“ sagði Xav-
ier Barcons, forseti ESO-ráðsins
um verkefnið. - shá
Risastór stjörnusjónauki byggður í Síle:
Stærsta auga jarðar
E-ELT Safnspegillinn, eða „augað“ verður 39,2 metrar. MYND/ESO,E-ELT
SAMFÉLAGSMÁL Nýr staðall um
launajafnrétti var kynntur í gær.
Staðallinn er ætlaður fyrirtækjum
og stofnunum sem vilja meta launa-
stefnu sína.
„Þeir sem vilja innleiða jafn-
launastaðalinn fá leiðbeiningar um
vinnubrögð sem þarf að beita við
að ákvarða laun, rýna í launin og
skoða hvort mögulega sé verið að
mismuna körlum og konum eftir
kynferði,“ segir Hildur Jónsdóttir,
sérfræðingur í jafnréttismálum,
sem leiddi vinnuhópinn sem vann
að gerð staðalsins.
Hildur segir innleiðingu staðals-
ins geta verið
tímafreka.
„Við gerum ráð
fyrir að fyrir-
tæki endur-
skoði og breyti
sínum aðferð-
um. Ef staðall-
inn kallar ekki
fram breyt-
ingar værum
við þar með að segja að allt væri í
himnalagi eða hann væri máttlaus,“
segir Hildur.
Uppfylli fyrirtækin skilyrði stað-
alsins geta þau fengið viðeigandi
vottun. Hildur segir mikla sam-
stöðu hafa einkennt vinnuna að
gerð staðalsins. „Það gerist ekki á
hverjum degi að Samtök atvinnulífs-
ins, Alþýðusamband Íslands, stjórn-
völd á sviði jafnréttismála, stéttar-
félög og ýmis jafnréttissamtök nái
sátt um það hvernig skuli stuðlað að
jafnrétti kynjanna.“
Frumvarpið er nú tilbúið til kynn-
ingar og fer í hefðbundið umsagn-
arferli. Almenningur getur óskað
eftir rafrænum aðgangi að frum-
varpinu á heimasíðu Staðlaráðs og
sent athugasemdir sínar til ráðsins.
- ktg
Stjórnvöld og ýmis félög ná sátt um staðal um launajafnrétti:
Nýtt vopn gegn launamisrétti
HILDUR JÓNSDÓTTIR
STUÐNINGSYFIRLÝSING Þessi kona bar
skilti sem á stóð „Mohammed Morsi,
forseti fyrir Egyptaland“ á Frelsistorg-
inu í Kaíró á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan fékk til-
kynningu frá húsráðanda sem
sagði Neyðarlínunni logandi
hræddur á mánudagskvöld að
verið væri að brjótast inn til
sín. Lögreglumenn voru sendir
tafarlaust á staðinn.
Þegar þeir komu á vettvang
upplýsti húsráðandi að vamp-
íra hefði látið ófriðlega á stiga-
ganginum. Lögreglumennirnir
leituðu en fundu enga vampíru.
Manninum var bent á að hafa
samband við lögreglu aftur ef
vampíran léti á sér kræla.
Vampíran virðist hafa hald-
ið sig fjarri og ekkert bólar
á henni. Lögreglan segir á
Facebook-síðu sinni að ekki sé
víst hvort um fjarskyldan ætt-
ingja Drakúla sé að ræða.
- bþh
Neyðarkall vegna innbrots:
Vampíra lét illa
á stigagangi
NÁM Afburðanemendum sem
hefja nám við Háskóla Íslands
næsta haust voru veittir styrk-
ir að heildarupphæð 9,3 millj-
ónir króna í gær. Alls hljóta 26
nemendur 300.000 króna styrki
auk niðurfellingar á skráning-
argjöldum sem nema 60.000
krónum. Aldrei hafa styrkþegar
verið fleiri í þau fimm skipti sem
styrkirnir hafa verið veittir.
Nemarnir eiga það sameigin-
legt að hafa náð framúrskarandi
árangri á stúdentsprófi. Í hópnum
eru níu karlar en sautján konur.
Við valið var horft til árangurs
á stúdentsprófi, virkni í félags-
störfum og árangur í íþróttum
eða listum. Þrjá styrki hljóta
nýnemar sem hafa sýnt góðan
námsárangur þrátt fyrir sérstak-
ar eða erfiðar aðstæður.
- bþh
Afreks- og hvatningarsjóður:
26 nýnemar við
HÍ hljóta styrki
SAMFÉLAGSMÁL Íþróttabandalag
Vestmannaeyja (ÍBV) og þjóðhá-
tíðarnefnd ÍBV hlaut Bleiku stein-
ana, hvatningarverðlaun Femín-
istafélags Íslands, í gær.
Með verðlaununum hvetur Fem-
ínistafélagið ÍBV til að hafa jafn-
rétti að leiðarljósi í verkum sínum
en félagið skipuleggur þjóðhá-
tíð og heldur úti bæði kvenna- og
karlaliðum í íþróttum. Forsvars-
menn ÍBV segjast ætla að leggja
áherslu á að berjast gegn hvers
konar ofbeldi, hvort sem það er á
þjóðhátíð eða annars staðar. - bþh
Femínistafélag Íslands:
ÍBV fær hvatn-
ingarverðlaun