Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 20
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Í BOLTANUM
„Handboltamenn
eiga yfirleitt ekki frí
um helgar þannig
að við gerum eitt-
hvað fjölskyldu-
vænt á öðrum
tímum en flestar
fjölskyldur þann-
ig að það hentar
mjög vel að það sé
mikið um að vera
öllum stundum.“
Eivor Pála Blöndal hefur búið í Þýskalandi undanfarin níu ár ásamt manni sínum Alexander
Petersson, atvinnu- og landsliðsmanni
í handbolta, og sonum þeirra, þeim
Lúkasi og Tómasi. „Við höfum búið á
fjórum stöðum í Þýskalandi, í Düs-
seldorf, í Odenburg, í Flensburg og í
Berlín,“ segir Eivor. „Þessir staðir eru
ofsalega misjafnir. Þeir eru allt frá því
að vera sunnarlega í Þýskalandi, lengst
í norðri og lengst í austri. Veðurfarið
og landslagið er misjafnt og að sjálf-
sögðu eru bæirnir og borgirnar ólíkar.“
Fyrstu tvö árin voru Eivor og
fjölskylda í Düsseldorf. „Það var
gott að vera í Düsseldorf og borgin
er æðisleg. Eftir það fluttum við
til Odenburg en klúbburinn þar
heitir Grosswallstadt. Þar náði ég
hápunktinum á mínum handboltaferli
en þar spilaði ég sem atvinnumaður
í liði sem spilaði í annarri sterkustu
deild landsins. Það var alltaf gríðarleg
stemning hjá okkur stelpunum og
stundum voru fleiri áhorfendur en
hjá strákunum. Við komumst upp um
deild og þetta var allt saman mjög
skemmtilegt.“
Haustið 2007 flutti fjölskyldan
lengst norður til Flensburg. „Borgin
er alveg við landamæri Þýskalands og
Danmerkur og er mjög dönsk. Hún er
afar fjölskylduvæn og allt er afskap-
lega frjálslegt. Þaðan fluttum við svo
til Berlínar árið 2010 og þar var mesti
stuðtíminn. Berlín er frábær borg og
alltaf eitthvað að gerast. Þá komu líka
flestir gestir til okkar og aldrei dauð
stund. Handboltamenn eiga yfirleitt
ekki frí um helgar þannig að við gerum
eitthvað fjölskylduvænt á öðrum
tímum en flestar fjölskyldur þannig að
það hentar mjög vel að það sé mikið
um að vera öllum stundum,“ segir
hún.
Eivor segir það taka um það bil
hálft ár að komast inn í lífið á nýjum
stað. Að komast að því hvar sé best að
versla, staðsetningar á íþróttaæfingum
barnanna og fleira. Nýr bær tekur við
fjölskyldunni þegar hún flyst heim til
Þýskalands eftir sumarið en Alex mun
leika með liði Rhein-Neckar Löwen á
næsta tímabili. „Við flytjum til bæjar
sem heitir Rauenberg og er rétt hjá
Heidelberg í Suður-Þýskalandi. Þar er
ofsalega fallegt, eins og maður þekkir
úr sjónvarpsþáttunum Sjúkrahúsið í
Svartaskógi. Við förum þangað þegar
Ólympíuleikarnir eru búnir en við Lúk-
as, eldri strákurinn okkar, ætlum að
horfa á Alex keppa í London. Á þessum
árum höfum við kynnst mörgum
stöðum, eignast marga vini frá ólíkum
löndum og kynnst ólíkri menningu sem
hefur skilið mikið eftir sig. Það hefur
verið erfitt að kveðja alla staðina sem
við höfum búið á.“
■ lilja.bjork@365.is
ERFITT AÐ KVEÐJA
HVERN STAÐ
ÞÝSKT FLAKK Eivor Pála Blöndal hefur búið í Þýskalandi ásamt manni sín-
um Alexander Petersson frá því árið 2003. Þau hafa átt heima á fjórum mjög
ólíkum stöðum þar í landi.
ATVINNUMAÐUR Í
ÞÝSKALANDI
Eivor náði hápunktinum
á sínum handboltaferli í
Þýskalandi þar sem hún
spilaði sem atvinnumað-
ur í tvö ár.
MYND/GVA
Sportveiðivefurinn.is fer í dag
af stað með spennandi vefsjón-
varp fyrir áhugamenn um skot-
og stangveiði. Í fyrsta þætti
Sportveiði TV verður farið
að Reynisvatni og tekið hús á
handboltakempunni Sigfúsi
Sigurðssyni, sem nú hefur um-
sjón með veiði í Reynisvatni.
SPORTVEIÐI TV
Veiðimenn komast í
feitt í nýjum þáttum um
stang- og skotveiði.
BYLGJULESTIN Í SUMAR
Á laugardaginn verður
Ævintýraeyjan með Hemma
Gunn og Svansí á Bylgjunni.
Boðið verður upp á frábær
tónlistaratriði og uppákomur
fyrir alla fjölskylduna.
Vertu með Bylgjunni og Olís
um helgina.
ÆVINTÝRAEYJAN MEÐ
HEMMA GUNN OG SVANSÍ
BYLGJULESTIN verður á ferð
og flugi út um allt land í sumar.
Hlökkum til að sjá ykkur!
VIÐ VERÐUM
Í HVERAGERÐI
UM HELGINA
á Garðyrkju- og
blómasýningunni
Blóm í bæ
9. JÚNÍ Selfoss
16. JÚNÍ Hafnarfjörður
23. JÚNÍ Hveragerði
30. JÚNÍ Bolungarvík
7. JÚLÍ Vestmannaeyjar
14. JÚLÍ Flúðir
21. JÚLÍ Blönduós
28. JÚLÍ Siglufjörður og
Fáskrúðsfjörður
11. ÁGÚST Dalvík
18. ÁGÚST Reykjavík
Á FERÐINNI
UM LANDIÐMAGNÚS OG JÓHANN
ÞÓRUNN ANTON
ÍA
DÚNDURF
RÉ
TT
IR
Skipholti 29b • S. 551 0770
ÚTSALA
HAFIN!