Fréttablaðið - 20.06.2012, Síða 22

Fréttablaðið - 20.06.2012, Síða 22
KYNNING − AUGLÝSINGÚtilegan MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 20122 Sigríður Einarsdóttir aðstoðar-leikskólastjóri er mikil útilegu-manneskja og hefur farið í úti- legur á hverju sumri undanfarin ár. „Þegar strákarnir mínir voru litlir þá tókum við ákveðin landsvæði fyrir í einu. Til dæmis fórum við eitt sumar- ið og þræddum alla Vestfirðina,“ segir Sigríður. Áður fyrr voru Sigríður og fjölskylda hennar; eiginmaður hennar og tveir synir, í tvær til þrjár vikur í einu í úti- legu. „Oft eltum við bara veðrið eins og Íslendingar gera oft. Vorum svo á hverj- um stað í tvo til þrjá daga. Mörg tjald- svæði bjóða upp á að setja í þvotta- vél þannig að það var mjög þægi- legt að geta skellt í vél og hengt svo upp hjá tjaldinu. Þannig þurftum við að taka minna með okkur og gerðum okkur heimakomin á þeim stað sem við vorum á hverju sinni. Yfirleitt vorum við með takmarkaða áætlun, gerðum bara það sem okkur langaði til að gera þann daginn.“ Fjölskyldan ferðaðist bæði ein og með vinum. „Ég sakna þess mikið að hafa ekki systur mína og fjölskyldu hennar með okkur í útilegunum. Þau eru búin að kaupa sér sumarbústað og hætt að vera í fellihýsinu sínu. Sam- vera með fjölskyldunni er svo mikil- væg í þessum ferðum, líka núna þegar strákarnir eru orðnir stórir. Það er ekk- ert sjónvarp og ekkert að gera nema spjalla og leika sér. Við förum í fótbolta og gönguferðir, spilum og skoðum um- hverfið. Það er svo gott að geta kúplað sig út og losna við allt stress.“ Í dag eru strákarnir farnir að vinna og því minna færi á að fara í langar ferðir. Fjölskyldan stekkur þó af stað ef allir eru lausir. „Það hefur aldrei verið neitt vandamál að hendast í útilegu. Við erum með allt útilegudótið í einu horni í geymslunni og svo er bara hoppað upp í bíl og keyrt af stað. Núna eigum við tjaldvagn sem er léttur og þægilegur þannig að það er búið að leggja tjaldinu sem maðurinn minn fékk í fermingar- gjöf,“ segir hún og hlær. Þau stefna á að fara í útilegu um helgina og fara þang- að sem verður gott veður. Einnig á að fara á ættarmót í Reykhólasveit seinna í sumar og svo hvert sem þeim dett- ur í hug. „Við tökum nokkurs konar æði fyrir stöðum. Í fyrra fórum við á tjald- stæði við Apavatn sem var ofsalega flott og þar var mjög góð þjónusta og við förum örugglega aftur þangað í sumar.“ Í fermingartjaldinu með alla fjölskylduna Sigríður Einarsdóttir og fjölskylda fara í útilegu á hverju sumri. Lengi vel voru þau í tjaldi sem maðurinn hennar fékk í fermingargjöf en hafa nú skipt yfir í tjaldvagn. Áður fyrr fóru Sigríður og fjölskylda hennar í tveggja til þriggja vikna útilegur. Núna stökkva þau til þegar allir eru lausir og fara í styttri ferðir. MYND/ERNIR Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.