Fréttablaðið - 20.06.2012, Síða 28
KYNNING − AUGLÝSINGÚtilegan MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 20128
FJALLAKOFINN
KRINGLUNNI 7
Stærsta búðin Verslun Fjallakof-
ans sem er á jarðhæð Kringl-
unnar 7 (í Húsi verslunarinnar)
er langstærst og því er þar að
finna mesta vöruúrvalið af öllum
verslunum Fjallakofans.
Þar fæst mikið af fatnaði fyrir
fjallgönguna, hjólreiðarnar og
alla almenna útivist. Þar er einnig
hægt að finna allt fyrir klifrið,
fjallaskíðamennskuna, útileguna
og svo má lengi telja – allir ættu
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Fjallakofinn hefur yfir að ráða
reyndu starfsfólki sem hefur mikla
reynslu af fjallamennsku. Starfs-
menn geta því veitt viðskipta-
vinum ráðleggingar og svarað
spurningum þeirra, hvort sem
þær snúa að ísklifri, léttum fjall-
göngum eða lengri
ferðum á
hæstu
tinda.
FJALLAKOFINN
LAUGAVEGI 11
Hjarta miðbæjarins Fjallakofinn
við Laugaveg 11 er vel útbúin úti-
vistarverslun sem deilir rými sínu
með útivistar- og ævintýrafyrir-
tækinu Arctic Adventures/Arctic
Rafting. Þarna er Fjallakofinn stað-
settur í hjarta miðbæjarins þar
sem Íslendingar og ferðamenn
njóta þess að vera. Það er ávallt
mikið mannlíf á Laugaveginum,
sérstaklega á sumrin og ferða-
menn og Íslendingar streyma
inn og út úr búðinni alla daga frá
klukkan átta á morgnana til kl. 20
á kvöldin.
Sérhæfing Fjallakofans á
Laugavegi felst í þekkingu og
reynslu starfsfólksins á útivist,
fjallgöngum, klifri og tengdu
sporti sem starfsfólkið getur
miðlað til viðskiptavina. Metnaður
verslunarinnar er að bjóða upp á
öflugar og góðar vörur fyrir allar
aðstæður.
FJALLAKOFINN REYKJAVÍKURVEGI 64
Vinsælustu vörurnar Fjallakofinn Reykjavíkurvegi 64 í Hafnarfirði hefur
tekið breytingum á þessu ári. Verslunin var í rauninni flutt úr Hafnarfirð-
inum en vegna fjölda áskorana var hún opnuð aftur þann 4. maí sl. með
örlítið breyttu sniði. Nú er áherslan þar lögð á vinsælustu vörur Fjallakof-
ans. Má þar helst nefna ullarfatnað og sokka frá Smartwool og hágæða
útivistarfatnað frá Marmot. Einnig eru hinir endingargóðu gönguskór frá
Scarpa á sínum stað.
Tjaldbúnaðarleiga Fjallakofans er einnig starfrækt frá Reykjavíkurveginum
en þar er hægt að leigja tjöld, svefnpoka, dýnur, prímusa og potta bæði
til skemmri og lengri tíma. Hafnfirðingar og nærsveitarmenn hafa tekið
Fjallakofanum opnum örmum og hún skipar stóran sess í hjörtum þeirra.