Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.06.2012, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 20.06.2012, Qupperneq 34
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR22 timamot@frettabladid.is Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HARALDUR SIGURÐSSON rafmagnsverkfræðingur, Miðvangi 159, Hafnarfirði, andaðist á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 14. júní. Útförin verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 22. júní kl. 15.00. Alexía Margrét Gísladóttir Haukur Þór Haraldsson Bylgja Birgisdóttir Katrín Haraldsdóttir Bjarki Þór Hauksson Birgir Hauksson Haraldur Orri Hauksson Alexía Margrét Jakobsdóttir Finnbogi Jakobsson Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA HELGADÓTTIR (DIDDA) Rjúpufelli 43, andaðist 18. júní. Árni Jón Konráðsson Pálína Kristín Árnadóttir Guðbrandur Ingimundarson Sigríður Árnadóttir Kristmar O. Höskuldsson Ásta Árnadóttir Sigurjón Jónsson Valgerður Árnadóttur Baldvin Skúlason Konráð Árnason Svandís Ölversdóttir Hafliði Ingibergur Árnason Sigrún Lúvísa Sigurðardóttir Árni Árnason Lilja Björk Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG ÓLAFSDÓTTIR Strikinu 4, Garðabæ, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. júní sl. verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 21. júní kl. 15.00. Kjartan Kjartansson Jóhanna Björk Hallbergsdóttir Ólöf Ingibjörg Hallbergsdóttir Jóhann Garðarsson Hafþór Kristinn Hallbergsson Victoria Ottósdóttir Kjartan Örn Kjartansson barnabörn og barnabarnabörn. Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA HÖGNADÓTTIR Flókagötu 31, lést á heimili sínu 13. júní sl. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Geðhjálpar, sími: 570-1700. Anna Bentína Hermansen Kristinn Vignir Ólafsson Gretar Örn Hostert Gunnar Andri Kristinsson Róbert Aron Hostert Kristjana Huld Kristinsdóttir Rakel Sesselja Hostert Viktor Nói Kristinsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURJÓNA SÍMONARDÓTTIR Lautasmára 2, Kópavogi, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 14. júní. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 22. júní kl. 13.00. Elísabet Harpa Steinarsdóttir Ástþór Ragnarsson Sigríður Steinarsdóttir Einar K. Þórhallsson Gróa Dagmar Gunnarsdóttir Þórhallur Ólafsson Ragnheiður Gunnarsdóttir Bergsveinn Jóhannesson Ragnar Victor Gunnarsson Sveindís D. Hermannsdóttir Guðrún Björk Gunnarsdóttir Jón Ingi Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA VILHJÁLMSDÓTTIR lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 13. júní. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 22. júní kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Hrafnistu í Reykjavík. Erna Hallgrímsdóttir Finnbogi Böðvarsson Helga Hallgrímsdóttir Konráð Beck Herdís Hallgrímsdóttir Sigurður Ólafsson Pétur V. Hallgrímsson Hafdís Ragnarsdóttir ömmu og langömmubörn. Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, vinkona og amma, GUÐBJÖRG DAGMAR SIGMUNDSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést á líknardeildinni í Kópavogi að morgni 16. júní. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 25. júní kl. 11.00. Sigmundur Bergur Magnússon Bergur Heimisson Adeline Tracz Hildur Heimisdóttir Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir Snorri Heimisson Telma Rós Sigfúsdóttir Guðmundur Bachmann og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, ROBERT M. HAUSLER f. 18. apríl 1951, lést á Hospice-líknarheimilinu í Pennsylvaniu þriðjudaginn 15. maí sl. Útför fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 22. júní kl. 14.00. Sólveig Ásgeirsdóttir Hausler Stofnaður hefur verið styrktarreikningur, 0330-13-301248 kt. 280557-3159. Fjölskyldan. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, HJÖRDÍS BÖÐVARSDÓTTIR lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 12. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 22. júní kl. 13.00. Guðni Bergsson Elín Konráðsdóttir Sigríður Bergsdóttir Skúli Rúnar Skúlason Böðvar Bergsson Bergur Þór Bergsson Anja Björg Kristinsdóttir Brynja Böðvarsdóttir Snorri Þórðarson og barnabörn. Miðhraun 22 b, 210 Garðabæ, Sími 571 0400 granit@granit.is Víetnaminn Pham Khac Quang er einn þeirra sem hefur dvalið við listsköpun í Garðinum á Suðurnesjum undanfarnar vikur og er með verk á listahátíðinni Ferskum vindum sem þar stendur yfir. Mireya Samper, sem heldur utan um hátíðina, hitti hann af tilviljun á ferð sinni um Víetnam í nóvember síðast- liðnum. Þá var hún stödd í Hanoí. „Ég rambaði inn á sýningu hjá Quang og hreifst sérstaklega af einu verki. Það var gert úr 1000 hrísgrjónaspöðum úr bambus sem hann hafði málað svarta og skorið andlit eldra fólks í. Spöðun- um var stungið í sand og þeir mynd- uðu verk sem var 12x12 metrar,“ lýsir Mireyja og heldur áfram. „Quang gat ekki talað neina ensku þegar ég hitti hann en ég fann mann- eskju sem gat túlkað og sagt honum að mig langaði að fá hann til Íslands næsta sumar en ég væri á tveggja mánaða ferðalagi og gæti ekki sent honum formlegt boðsbréf fyrr en í janúar. Ef ég hefði verið hann hefði ég örugglega trúað þessu mátulega en þegar ég hafði samband við hann í janúar þá var minn maður byrjaður á enskunámskeiði. Hann hafði aldrei farið til útlanda og aldrei flogið í flug- vél en allt í sambandi við komu hans hingað gekk ótrúlega vel miðað við hvað það var flókið.“ Mireya segir Quang hafa lent í Keflavík að kvöldi 21. maí. „Þegar hann kom í Garðinn klukkan hálf tíu spurði hann: „Eru allir sofandi?“ Hann hafði aldrei séð auðar götur áður,“ segir hún hlæjandi. „En hann hefur plumað sig vel og er búinn að vinna svakalega mikið. Listamennirnir þurfa að kynna sig sjálfir með smá ræðu og hann var í tíu daga að skrifa niður það sem hann vildi segja, með hjálp orða- bókar. Þetta er ævintýri fyrir hann.“ Sýning á verkum Quang og fjörutíu og fimm annarra listamanna Ferskra vinda hófst með formlegri opnun á laugardaginn var en þeir hafa haft samkomuhúsið og áhaldahúsið sem verkstöðvar síðustu vikur og verið í fríu fæði og húsnæði. „Næsta helgi er sú síðasta sem lista- mennirnir verða á staðnum. Rútuferð- ir verða um svæðið og listafólkið segir frá verkum sínum og á sunnudag eru flottir tónleikar klukkan fimm með tveimur söngkonum sem báðar eru blökkukonur,“ segir Mireya og tekur fram að allt sé ókeypis. Nánari upplýs- ingar um dagskrána eru á vefslóðinni: http://fresh-winds.com. gun@frettabladid.is PHAM KHAC QUANG: ER Í SINNI FYRSTU UTANLANDSFERÐ Lærði ensku, sótti um vega- bréf og sýnir list í Garðinum PHAM KHAC QUANG Hefur plumað sig vel á Íslandi og unnið mikið að listsköpun. Hér er hann að fást við annað verkið sem hann sýnir á Ferskum vindum. María Guðmundsdóttir, húsfreyja að Kringlumýri í Blönduhlíð í Skagafirði, er hög í höndunum og það er gaman að kíkja í vinnustofuna hennar sem hún er með í litlum og krúttlegum skúr skammt fyrir neðan bæinn. Þar eru fallegir munir í hillum, einkum úr ull því María vinnur úr henni fjölbreytilegustu hluti. „Mér finnst ég nú ekki afkastamikil en ég reyni að eiga eitthvað sem fólki finnst forvitnilegt að skoða og ullin er frábært efni í svo margt,“ segir María. Hún kveðst halda helgarmarkaði stöku sinn- um en að öðru leyti sé vinnustofan hennar opin eftir hend- inni. Auk ullarvaranna selur María ýmsar antíksmávörur sem áður tilheyrðu versluninni Maddömunum á Selfossi. - gun Ullin er frábært efni í svo margt GÓÐAR SAMAN María með ömmustelpuna Jónu Karitas Guðmunds- dóttur trítlandi í kringum sig. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LIONEL RICHIE söngvari fæddist þennan dag árið 1949. „Fólk vill ekki láta minna sig á erfiðleikana í lífinu, hvort sem þeir eru vegna átaka eða annarrar óhamingju.“ 63

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.