Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 42

Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 42
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR30 sport@frettabladid.is GOLFSAMBAND ÍSLANDS stendur fyrir Golfdeginum í dag í tilefni af Ólympíuviku ÍSÍ og í samstarfi við golf- klúbba vítt og breitt um landið. Markmiðið er að kynna Íslendingum fyrir golfi sem Ólympíuíþrótt. Á Golfdeginum munu golfklúbbar víða um landið taka á móti börnum og unglingum og kynna þeim fyrir golfíþróttinni. Opið verður milli 16-19 á æfingasvæði golfklúbba út um allt land. Lið 7. umferðar Hannes Þór Halldórsson KR Haukur Heiðar Hauksson KR David Elebert Fylkir Guðjón Árni Antoníusson FH Atli Sigurjónsson KR Hólmar Örn Rúnarsson FH Þórarinn Ingi Valdimarsson ÍBV Atli Guðnason FH Kennie Knak Chopart Stjarnan Guðmundur Pétursson Breiðablik Christian Steen Olsen ÍBV Leikir kvöldsins 8. umferð Valur - ÍA kl. 19.15 Breiðablik - KR kl. 19.15 Fram - Keflavík kl. 19.15 Grindavík - ÍBV kl. 19.15 FH - Stjarnan kl. 19.15 Selfoss - Fylkir kl. 20.00 FÓTBOLTI Knattspyrnuáhugamenn fá nóg að gera í kvöld þótt eng- inn sé leikurinn á EM. Öll áttunda umferðin í Pepsi-deild karla fer þá fram. Eyjamaðurinn Christian Steen Olsen var valinn leikmaður 7. umferðar hjá Fréttablaðinu en hann skoraði þá þrennu gegn ÍA. Hann verður í eldlínunni með ÍBV í Grindavík í kvöld. Stórleikur kvöldsins er klárlega viðureign toppliðs FH og Stjörn- unnar. Stjarnan er fjórum stigum á eftir FH og verður því helst að vinna í kvöld til þess að hanga í toppliðunum. Fylgst verður með öllum leikj- um kvöldsins á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Þar er einnig hægt að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins á sama stað í Miðstöð Boltavaktarinnar. Pepsi-deild karla: Heil umferð í kvöld BARÁTTA Stjörnumenn mega illa við því að tapa gegn FH í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR HANDBOLTI Það liggur ekki enn fyrir hvaða lið stórskyttan Ólaf- ur Andrés Guðmundsson leikur næsta vetur. Ólafur er samnings- bundinn danska meistaraliðinu AG en hefur verið lánaður frá félaginu hingað til og ekki enn leikið fyrir AG. Ólafur á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við AG og sam- kvæmt heimildum íþróttadeildar er talið líklegt að hann verði lán- aður til sænska félagsins Kristi- anstad. „Ég hef heyrt frá þeim og það kemur til greina eins og annað. Ég hef líka heyrt í fleiri liðum í Sví- þjóð,“ sagði Ólafur. Kristianstad fór alla leið í úrslitaleikinn um sænska meist- aratitilinn síðasta vetur en þjálfari liðsins er Ola Lindgren sem hefur verið að þjálfa sænska landsliðið með Staffan Olsson. Lindgren og Magnus Andersson, þjálfari AG, eru gamlir félagar. „Ég veit ekki hvað verður um mín mál. AG gæti samið við mig upp á nýtt, lánað mig eða hreinlega selt mig til annars félags. Þetta skýrist vonandi fljótlega,“ sagði Ólafur og bætir við að hann vilji helst vera hjá liði þar sem hann fær að spila mikið. Hann er að jafna sig eftir aðgerð á öxl og nýbyrjaður að kasta aftur. „Öxlin var búin að plaga mig lengi og það varð að gera eitthvað. Ég fór því í speglun fyrir um níu vikum og öxlin verður vonandi betri í kjölfarið.“ - hbg Framtíð Ólafs Andrésar Guðmundssonar í óvissu: Svíþjóð er möguleiki ÓLAFUR Hér á ferðinni með landsliðinu á EM í janúar síðastliðnum. FRÉTTABLÐAIÐ/VILHELM EM í knattspyrnu: England-Úkraína 1-0 1-0 Wayne Rooney (48.) Svíþjóð-Frakkland 2-0 1-0 Zlatan Ibrahimovic (54.), 2-0 Sebastian Larsson (90.+1) LOKASTAÐAN Í D-RIÐLI: England 3 1 1 0 5-3 7 Frakkland 3 1 1 0 3-3 4 Úkraína 3 1 0 2 2-4 3 Svíþjóð 3 1 0 2 5-5 3 8-LIÐA ÚRSLIT: Tékkland - Portúgal Fim. kl. 18.45 Þýskaland - Grikkland Fös kl. 18.45 Spánn - Frakkland Lau. Kl. 18.45. England - Ítalía Sun. Kl. 18.45 ÚRSLIT HANDBOLTI Fannar Þór Friðgeirs- son skrifaði í gær undir tveggja ára samning við þýska úrvals- deildarfélagið Wetzlar samkvæmt heimildum íþróttadeildar. Þar hittir Fannar Þór fyrir línumann- inn Kára Kristján Kristjánsson. Fannar hefur leikið með þýska B-deildarliðinu Emsdetten síðustu ár við fínan orðstír en tekur nú skref upp á við á sínum ferli. Hann mun þreyta frumraun sína í þýsku úrvalsdeildinni með Wetzlar sem lék vel framan af síð- asta vetri en gaf svo mikið eftir og lenti í fallbaráttu undir lokin. Emsdetten var þegar búið að tryggja sér þjónustu annars Íslendings, Ólafs Bjarka Ragnars- sonar, og hann mun væntanlega fá það hlutverk að leysa Fannar af hólmi hjá liðinu. - hbg Fannar Þór Friðgeirsson: Samdi við Wetzlar FANNAR ÞÓR Hér í leik með Emsdetten sem hann hefur nú yfirgefið. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Wisa innbyggðir WC kassar Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Húsavík Vestmannaeyjum 10 ár á Íslandi – veldu gæði XS kassi 22.900 Argos Hnappur hvítur 2.990 XT kassi WC front 83cm 25.900 Ýmsar gerðir fáanlegar af hnöppum. GOLF Kristján Þór Einarsson úr Kili spilaði mjög vel í gær á öðrum hring sínum á opna breska áhugamannamótinu í golfi sem fer fram í Skotlandi. Kristján Þór var á pari eftir fyrsta daginn en lék annan hring- inn á einu höggi undir pari. Kristján er því búinn að leika fyrstu 36 holurnar á einu höggi undir pari og flaug hann í gegn- um niðurskurðinn. Kristján Þór náði fimm fuglum á hringnum og er í 7. til 14. sæti. Ólafur Björn Loftsson úr NK lék annan hringinn á tveimur höggum yfir pari, náði ekki nið- urskurðinum og endaði í 92. sæti á 5 höggum yfir pari. - óój Opna breska í golfi: Kristján flaug í gegn í gær KRISTJÁN ÞÓR EINARSSON Er að spila vel í Skotlandi. MYND/GSI FÓTBOLTI Englendingar og Frakk- ar voru í gærkvöldi síðustu tvær þjóðirnar til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópu- mótsins í fótbolta. Sigur Englend- inga á Úkraínu þýðir að báðir gest- gjafarnir, Pólland og Úkraína, eru úr leik í mótinu. Átta liða úrslit- in eru þar með klár en þau hefj- ast með leik Tékka og Portúgala á fimmtudagskvöldið. Það fer fram einn leikur á kvöldi frá fimmtu- degi til sunnudags. Wayne Rooney tryggði Eng- lendingum 1-0 sigur á Úkraínu og það dugði liðinu til sigurs í riðlin- um þar sem að Frakkar töpuðu 0-2 á móti Svíum. Úkraínumenn sköp- uðu sér fullt af færum en heppnin var með þeim ensku. „Við erum að komast í gang á réttum tíma. Þetta var ekki frá- bær frammistaða en við stóð- um saman og náðum úrslitunum sem við þurftum,“ sagði Steven Gerrard, fyrirliði enska liðsins og bætti svo við: „Ef Wayne Roo- ney heldur áfram að pota boltan- um inn eins og í kvöld þá getum við farið langt á þessu móti“ sagði Gerrard og hann var líka spurð- ur út í markið sem Úkraína skor- aði en var ekki dæmt gilt. „Maður þarf alltaf að hafa heppnina með sér og lið ná aldrei langt án henn- ar,“ sagði Gerrard og framundan er leikur á móti Ítölum í átta liða úrslitunum. Wayne Rooney kom inn í enska liðið eftir tveggja leikja bann og skoraði sigurmarkið á 48. mín- útu með skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf Stevens Gerrard. John Terry bjargaði á marklínu eftir rúmlega klukkutíma leik en mark á þeim tímapunkti hefði breytt miklu fyrir heimamenn sem höfðu ekki heppnina með sér. Það var ekki hægt að sjá annað á endursýningum af atvikinu en að boltinn hafi verið kominn inn fyrir marklínuna þegar Terry bjargaði á línu en aðstoðardómararnir höfðu líka misst af því að Úkraínumað- urinn var rangstæður áður en hann komst einn á móti Joe Hart. „Það hefðu ekki margir trúað því fyrir mótið að við myndum vinna riðilinn og margir spáðu því meira að segja að við kæm- umst ekki upp úr riðlinum. Þetta var frækin frammistaða og við höfðum líka heppnina með okkur,“ sagði Roy Hodgson, þjálfari Eng- lendinga. „Þessi leikur var frábær fyrir Rooney. Hann spilaði vel og vann vel fyrir liðið. Hann hefði líka getað skorað nokkur mörk í kvöld,“ sagði Hodgson. Svíar unnu Frakka 2-0 í loka- leik sínum á EM í fótbolta en þessi flotti sigur breytti því þó ekki að Svíar eru á leiðinni heim eftir riðlakeppnina. Þetta var fyrsta tap Frakka í 23 leikjum og það þýðir að Frakkarnir þurfa að mæta heims- og Evrópumeisturum Spán- verja í átta liða úrslitunum. Zlatan Ibrahimovic kom Svíum yfir með snilldarskoti á 54. mín- útu eftir sendingu Sebastian Lars- son og Larsson innsiglaði síðan sigurinn undir lokin. Svíar unnu stemningssigur en Frakkar voru í vandræðum með baráttuglatt sænskt lið. ooj@frettabladid.is Rooney stimplaði sig inn Englendingar unnu Úkraínumenn og tryggðu sér sigur í D-riðli á EM í fótbolta á sama tíma og Frakkar töpuðu fyrir Svíum og fá að launum leik á móti Heims- og Evrópumeisturum Spánverja í átta liða úrslitunum. MÆTTUR Á EM Wayne Rooney fagnar hér sigurmarki sínu í gærkvöldi. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.