Fréttablaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur skoðun 18 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Fólk 19. júlí 2012 168. tölublað 12. árgangur LITRÍKIR LEGGIRSkærir litir eru áberandi í sumar og í fyrsta skipti í lengri tíma virðast svartar, gráar og bláar buxur á undanhaldi. Víða má sjá rauðar, gular, grænar og ferskjulitaðar gallabuxur og jafnvel með blómamynstri. G issur stundar nám í Menntaskól-anum við Hamrahlíð en í sumar starfar hann hjá jafningjafræðslu Hins hússins við að fræða unglinga á Sel-tjarnarnesi um áfengi, tóbak og eiturlyf og skaðleg áhrif þeirra. „Það hefur verið mjög gaman og gefandi að fá að vinna með krökkunum,“ segir Gissur. Gissur er duglegur að kaupa sér föt, en þegar hann verslar hér á Íslandi gerir hann það yfirleitt í Spútnik. „Þar er hægt að finna ódýr og flott födagi segir Gissur þegar hann er spurður út í fatainnkaupin. Gissur pælir mikið í tísku og segir hann að röndóttir hlýrabolir hafi verið langmest áberandi í strákatískunni í sumar og sjálfur á hann nokkra þannig. Stílnum hans má lýsa sem blöndu af hipster og hipphoppi enda á hann enda- laust af derhúfum. Um helgina ætlar Gissur annaðhvort að fara í útilegu eða kíkja út á land ðfjölskyld i MIKIÐ UM RÖND-ÓTTA HLÝRABOLIFYLGIST VEL MEÐ Gissur Ari Kristinsson er 19 ára jafningjafræðari. Hann hefur brennandi áhuga á tísku og segist aðallega kaupa sér notuð föt. FLOTTUR FRÆÐARI Gissur segir að það sé gaman og gefandi að vera jafningjafræðari. Hann kaupir fötin sín aðallega í Spútnik.MYND/EE teg 42027 - glæsilegur í nýjum lit í C, D, E skálum á kr. 5.500,- buxur í stíl á kr. 1.995,- Frábært snið - nýr litur Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is Íþróttastuðningshlífar Vertu vinur okkar á Facebook Meiri verðlækkun!– 40% af öllum vörumGlæsilegur þýskur og danskur kvenfatnaður í stærðum 36-52.Vandaðir ítalskir og þýskir leðurskór í stærðum 36-42. FULLKOMINN FERÐAFÉLAGI! www.ms.is Fáðu D-v ítamín úr Fjörmjó lk! STJÓRNSÝSLA Starfshópur sem á að undirbúa frumvarp um að heimila staðgöngumæðrun í velgjörðar- skyni hefur ekki enn verið skipaður þrátt fyrir að þingsályktunar tillaga um málið hafi verið samþykkt í janúar. Tillagan fól velferðarráð- herra að skipa starfshóp um málið og leggja fram frumvarp „svo fljótt sem verða má“. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hefur reynst erfitt að fá fólk til þess að taka sæti í starfs- hópnum, en unnið hefur verið að skipun hans í talsverðan tíma. Reynt hefur verið að finna óháða sérfræðinga í hópinn. Gert er ráð fyrir því að hann eigi nokkuð erfitt verk fyrir höndum við að skrifa frumvarp, enda málið bæði umdeilt og viðkvæmt. Guðbjartur Hannesson vel- ferðar ráðherra segist vona að skipun hópsins geti lokið á næstu dögum eða vikum. Búið er að skipa formann hópsins. Hann segir málið í raun fela í sér tvö ólík verkefni, annars vegar að fara í gegnum álitamál tengd staðgöngumæðrun og hins vegar að semja frumvarpið. „Það er það sem hefur tafið okkur, að finna út hvernig á að gera þetta svo þetta verði ekki hópur sem er að togast á um hlutina heldur leitar bestu lausna.“ Gert er ráð fyrir því í velferðar- ráðuneytinu að frumvarp um málið verði lagt fram á næsta þingi. Guðbjartur segir að stefnt sé að því en það muni þó verða að ráðast af vinnunni í hópnum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, var fyrsti flutningsmaður þings- ályktunartillögunnar. Hún segist orðin mjög óþreyjufull eftir því að lokið verði við skipun hópsins. „Þetta fer að verða meðgöngutími, þetta var fyrsta málið sem var klárað á þingi eftir áramót. Þessari nefnd var falið að skrifa frumvarp og það átti að gefa henni nægan tíma, en mér finnst vera búið að sóa tímanum í hálft ár,“ segir hún. „Það mun taka tíma að gera þetta vel og því finnst mér mikilvægt að menn fari að koma sér að verki.“ - þeb Fá ekki fólk til að semja frumvarp um staðgöngu Hálft ár er síðan samþykkt var að láta gera frumvarp sem heimilar staðgöngumæðrun, en hópur sem á að semja það hefur ekki verið skipaður enn. Velferðarráðherra segir að það muni gerast á næstu vikum. Fær ferðalanga til að horfa út Guðrún Gyða Franklín bjó til bílabingó í fæðingarorlofinu. tímamót 26 DÁLÍTIL VÆTA Í dag verður hæg austlæg eða breytileg átt. Víða dá- lítil væta en úrkomulítið NA-til. Hiti 10-18 stig. VEÐUR 4 13 14 15 16 10 Hálfíslenskur John Grant Nafni söngvarans Johns Grant syngur í sturtu en hefur ekki enn tekið lagið á sviði. fólk 42 SÝRLAND, AP Rússnesk stjórnvöld ásökuðu í gær Vesturlönd fyrir að kynda undir uppreisn og átökum í Sýrlandi, sama dag og sjálfsvígs- árás í höfuðborginni Damaskus kostaði nokkra nánustu samstarfs- menn Bashar al Assads forseta lífið. „Í staðinn fyrir að róa niður uppreisnarmennina, þá eru sumir samherja okkar að hvetja þá áfram,“ sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og vísaði til leiðtoga á Vesturlöndum sem nú þrýsta á Rússa og Kínverja að samþykkja refsiaðgerðir gegn Sýrlandi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Meðal þeirra sem féllu í árásinni voru varnarmálaráðherrann Daúd Radsjeha og aðstoðarráð- herra hans, Assef Shavkat, en sá er mágur Assads forseta. Einnig féll Hassan Turkmani, fyrr- verandi varnarmálaráðherra. Meðal særðra er Mohammed Shaar innan ríkisráðherra. Sýr- lenskir uppreisnarmenn hafa lýst yfir ábyrgð sinni á árásinni. Rússar hafa verið andvígir því að beita Sýrlandsstjórn þrýstingi vegna átakanna, sem kostað hafa á annan tug þúsunda lífið frá því mótmæli og síðar vopnuð upp- reisn hófst gegn Assad forseta á síðasta ári. Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna kom saman í gær til að reyna að ná samkomulagi um frekari þrýsting á Assad. - gb Sýrlenskir ráðherrar meðal þeirra sem létu lífið í sjálfsvígsárás í Damaskus: Rússar ásaka Vesturlönd Á MAKRÍLVEIÐUM VIÐ SÓLFARIÐ Óvenju mikið af makríl hefur verið við strendur landsins og hafa veiðimenn veitt þennan hraðsynda uppsjávarfisk á stöng. Sjá síðu 16. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Handaband ráðherra Að auglýsa ekki stöðu ráðuneytisstjóra væru mistök að mati Kristrúnar Heimisdóttur. skoðun 19 Þór/KA lagði Stjörnuna Norðanstúlkur nýttu færin í 2-1 sigri í Garðabæ og hafa fimm stiga forskot á toppi Pepsi-deildar kvenna. sport 36 NÁTTÚRA Vísindamenn hafa áhyggjur af því hversu hratt jöklar í heiminum bráðna. Nýverið brotnaði stór íshella frá skriðjökli á norðanverðu Græn- landi. Íshellan er á stærð við eitt og hálft Þingvallavatn. Það er í annað sinn síðan 2010 sem stór íshella brotnar frá Petermann- jöklinum sem hopar hratt eins og Grænlandsjökull allur. Oddur Sigurðsson, sérfræð- ingur á sviði jöklarannsókna hjá Veðurstofunni, segir íslenska jökla hafa minnkað ofsalega á undanförnum fimmtán árum og í raun örar en nokkru sinni síðan farið var að fylgjast með jöklum að einhverju leyti. „Þeir hafa hopað álíka mikið undanfarna öld og þeir gengu fram þrjár aldir þar á undan,“ segir hann. Síðan árið 2000 hefur ís breiðan á Grænlandi minnkað um 1.500 milljarða tonna. Það sam svarar um það bil fimm millimetra hækkun á yfirborði sjávar á hnettinum. - bþh / sjá síðu 10 Vísindamenn áhyggjufullir: Jöklar norður- slóða hopa hratt Þetta fer að verða meðgöngutími … RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR ÞINGMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.