Fréttablaðið - 19.07.2012, Page 16
19. júlí 2012 FIMMTUDAGUR
SÓLFARIÐ Tveir menn renndu fyrir fisk við Sólfarið. Þeir höfðu
nýlokið við að landa einum makríl þegar ljósmyndara blaðsins
bar að garði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SÓLSETUR Fátt skyggir á kvöldsólina við Gróttu. Þetta fólk
lagði leið sína þangað í vikunni og naut útsýnisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GRÓTTA Sólin er lengi að setjast um þessar mundir, annað en
það sem tíðkast nær miðbaug þar sem dimman getur skollið á
nær fyrirvaralaust. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NÁTTÚRA „Fólk sækir bæði í
strandlengjuna við Sæbraut og út
í Gróttu og nánast út að vitanum.
Fólki finnst magnað hvað sólin er
lengi á himni,“ segir Auður Hall-
dórsdóttir hjá upplýsingamiðstöð
ferðamanna í Reykjavík.
Mikið af fólki hefur undanfarið
safnast á útsýnisstaði á kvöldin,
þar sem gott er að fylgjast með
sólarlaginu. Það á jafnt við um
Íslendinga og ferðamenn.
Sólfarið í Reykjavík hefur notið
mikilla vinsælda sökum þessa,
ásamt Gróttu og Ingólfshóli.
Auður segir töluvert um að fólk
spyrji út í miðnæturferðir, þar
sem hægt sé að njóta birtunnar.
Hún segir ýmislegt í boði.
„Það er hægt að fara í Esju-
göngu, snorkla á Þingvöllum og
fara í miðnæturgolf. Þetta er allt
geysivinsælt.“
Auður segir íslensku kvöldsól-
ina einnig sérstaka. „Þessi fal-
lega kvöldsól er sérstaða. Ef fólk
ferðast um Norður land getur það
séð sólina dýfa tánum rétt ofan í
sjóinn og koma svo upp hálftíma
seinna. Ef þú ert í Berlín eða
London þá er dimmt á þessum
tíma.“
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamála-
stjóri tekur í sama streng.
„Lega landsins og þau náttúru-
fyrir brigði sem hún gefur aðgang
að á himni er eitt af því sem
skapar sérstöðu á Íslandi.“
Ólöf segir birtuna heilla ferða-
menn.
„Fólk kemur hingað vitandi af
þessum björtu sumarnóttum.“
katrin@frettabladid.is
Sólarlagið heillar
Íslenska kvöldsólin skartar sínu fegursta nú þegar dagurinn tekur vart enda.
Landsmenn og ferðamenn fara í miðnæturferðir og fylgjast með sól síga í sæ.
Strandlengjan meðfram Sæbraut og Grótta eru vinsælir útsýnisstaðir.
SKUGGALEIKIR Þegar sólin sest í sæ þyrpist fólk á strandlengjuna við hina lágreistu byggð á Seltjarnarnesi og fylgist með hinu
undursamlega sjónarspili náttúrunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ef fólk ferðast um
Norður land getur það
séð sólina dýfa tánum rétt
ofan í sjóinn og koma svo
upp hálftíma seinna. Ef þú
ert í Berlín eða London þá er
dimmt á þessum tíma.
AUÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
HJÁ UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ FERÐAMANNA
Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Berlín og Köln, verð frá:
Þýskaland á
þrusufínu verði!
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Takmarkað sætaframboð og valdar dagsetningar.
Ferðatímabil: 20. júlí til 30. september 2012
16.700 kr.*
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
12 TÍMA TILB
OÐ!
frá hádegi ti
l miðnættis
*
200.000 hótel í 165 löndum / 800.000 bílar í 125 löndum
HÓTEL OG BÍL
BÓKAÐU