Fréttablaðið - 19.07.2012, Side 30
19. júlí 2012 FIMMTUDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginkona, mamma, tengdamamma,
amma og langamma,
ELSA HARALDSDÓTTIR
Hjallabrekku 24, Kópavogi,
lést þann 6. júlí sl. Útförin fer fram
frá Fossvogskirkju, föstudaginn
20. júlí kl. 13.00.
Eggert Konráðsson
Erna Eggertsdóttir Einar Þór Gíslason
Haraldur Eggertsson
Elsa Þóra Eggertsdóttir Trausti Þór Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, afi
og bróðir,
JOHN ÓLAFUR LINDSAY
lést sunnudaginn 15. júlí á spítala í
Southampton, Englandi.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Anne Helen Lindsay
Elskulegur faðir minn og afi,
ÞÓRIR JÓNSSON
frá Þingeyrum,
Lækjasmára 8, Kópavogi,
er látinn. Útför hans fer fram frá Lindakirkju í
Kópavogi þriðjudaginn 24. júlí kl. 11.00.
Jón Þórisson
Helena Margrét Jónsdóttir
Alúðarþakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur vináttu og vottuðu okkur
samúð við andlát og útför ástkærs föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa,
SIGURÐAR JÓNSSONAR
fyrrverandi prentsmiðjustjóra,
Hlíf II, Ísafirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar á
Ísafirði fyrir einstaklega góða umönnun.
Árni Sigurðsson Guðrún Halldórsdóttir
Jón Ólafur Sigurðsson Jóhanna Oddsdóttir
Málfríður Þ. Sigurðardóttir
Þórhildur S. Sigurðardóttir Guðmundur Hafsteinsson
afabörn, langafa- og langalangafabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs sonar okkar, föður, tengdaföður,
afa og bróður,
KRISTINS H. BENEDIKTSSONAR
ljósmyndara, Grindavík.
Sérstakar þakkir færum vð starfsfólki á
legudeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Benedikt Sveinsson Þórdís Kristinsdóttir
Jóel Kristinsson Linda Þóra Grétarsdóttir
Hildur Sigrún Kristinsdóttir Pétur L. Lentz
Rakel Kristinsdóttir
og barnabörn,
Steinunn M. Benediktsdóttir Sverrir Friðbjörnsson
Svava B. Benediktsdóttir Gestur Kristjánsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGFÚS SIGURÐUR KRISTJÁNSSON
fyrrv. yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli,
Garðavegi 12, Keflavík,
lést mánudaginn 9. júlí. Jarðarförin fer fram
20. júlí nk. frá Keflavíkurkirkju kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á samtök um Alzheimer,
0327-26-004302 kt. 580690-2389.
Jónína Kristjánsdóttir
Hilmar Bragi Jónsson Elín Káradóttir
Magnús Brimar Jóhannsson Sigurlína Magnúsdóttir
Hanna Rannveig Sigfúsdóttir Ágúst Pétursson
Drífa Jóna Sigfúsdóttir Óskar Karlsson
Sjöfn Eydís Sigfúsdóttir Jóhann Ólafur Hauksson
Snorri Már Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.
80 ára afmæli
Pétur
Valdimarsson
tæknifræðingur og
formaður Þjóðarflokksins,
verður 80 ára sunnudaginn 22. júlí.
Ætting jum og vinum er boðið í kaffi
laugardaginn 21. júlí kl. 15.00 til 18.00
að Staðarbergi 2–4 í Hafnarfirði.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐLAUG PÁLSDÓTTIR
frá Refsstað í Vopnafirði, Stigahlíð 36,
lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands
miðvikudaginn 11. júlí. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 23. júlí kl. 13.00.
Margrét Steinarsdóttir Sigurður Sigurðsson
Steingerður Steinarsdóttir Guðmundur Bárðarson
Helen Sjöfn Steinarsdóttir
Svanhildur Steinarsdóttir Ragnar Ólafsson
Svava Svanborg Steinarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
INGIMAR HÓLM GUÐMUNDSSON
úrsmíðameistari,
Skaftahlíð 40, Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu í Boðaþingi þriðju-
daginn 10. júlí verður jarðsunginn föstu-
daginn 20. júlí frá Fossvogskapellu kl. 15.00.
Valdimar Ingimarsson Lára Axelsdóttir
Þormar Ingimarsson Þórunn Stefánsdóttir
Elsa Ingimarsdóttir Halldór Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐNÝ SÆBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Skerðingsstöðum, Reykhólasveit,
lést fimmtudaginn 12. júlí. Útförin fer
fram frá Reykhólakirkju laugardaginn
21. júlí kl. 13.00.
Finnur Kristjánsson
Jón Árni Sigurðsson Steinunn Rasmus
Kristján Finnsson Margrét Ásdís Bjarnadóttir
Karlotta Jóna Finnsdóttir Ásgeir Þór Árnason
Agnes Finnsdóttir Pálmi Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
BJARNI BJARNASON
Krummahólum 8,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 8. júlí.
Útförin fer fram frá Garðakirkju mánudaginn
23. júlí kl. 15.00.
Ragnheiður Óskarsdóttir Hallgrímur Thorsteinsson
Lára Bjarnadóttir Theódór Kárason
Elín Bjarney Bjarnadóttir Friðrik Helgi Vigfússon
og frændsystkin.
Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir,
sambýlismaður minn, afi og langafi,
HRAFN EIÐSSON
frá Þúfnavöllum,
er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Birgir Hrafnsson Oddný Indíana Jónsdóttir
Lára Hrafnsdóttir
Eiður Örn Hrafnsson Hrönn Sigurðardóttir
Sólveig Hrafnsdóttir Kristján Jósteinsson
Hreiðar Þór Hrafnsson Tatiana Kantorovich
Björgvin Ingvi Hrafnsson Ann-Erry Hrafnsson
Bjarki Ásgeir Hrafnsson Elisabeth Kløvtveit
Guðríður Ármannsdóttir
Hreinn Hrafnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Bílabingó er nýtt spil sem er sérstaklega ætlað fyrir bíl-
ferðir um Ísland. Hugmyndasmiður þess og útgefandi
er arkitektinn Guðrún Gyða Franklín. „Þetta spil styttir
farþegum stundir og fær þá til að taka eftir um hverfinu,“
segir hún. „Svo hvetur það líka til samskipta í bílnum því
oft er fólk einangrað hvert í sínu horni, jafnvel í tölvu
eða með tónlist í eyrunum.“ Hún segir um tvær tegundir
spjalda að ræða, sveitamyndir og bílategundir, fjögur mis-
munandi spjöld af hvorri tegund, teiknuð af Helgu Valdísi
Árnadóttur.
Á bingóspjöldunum eru smámyndir og leikurinn gengur
út á að koma auga á myndefnin utan við bílrúðurnar. Sá
sem er með kirkju á kortinu getur til dæmis lokað þeim
glugga þegar hann sér kirkju álengdar. „Mig hefur lengi
langað að gera svona spil því ég kynntist því erlendis þegar
ég var barn. Þá vorum við systur alltaf að spekúlera í bíla-
tegundunum,“ segir Guðrún Gyða sem á líka minningar úr
fjölskylduferðum hér heima þar sem ekkert bingó var með í
för. „Litli bróðir var alltaf í Nintendotölvunni, leit varla upp
og vissi ekkert hvar hann var. Mamma spurði hann aftur og
aftur um sama fjallið og hann vissi aldrei hvað það hét. Það
er eiginlega grunnurinn að þessari hugmynd.“
Guðrún Gyða kveðst hafa farið hringinn með tvo krakka
í bílnum árið 2008 og búið til bingóspjöld heima áður en
lagt var af stað. Tilraunin hafi gefist vel svo í fæðingar-
orlofi 2010 hafi hún fengið aðstöðu í skólastofu í Reykjavík
og sett saman nokkur þúsund spjöld í höndunum, ásamt
góðum hópi fólks. „Salan gekk vel og ég fékk endalaust
klapp á bakið þannig að ég gat ekki hætt. Þegar ég fór aftur
í fæðingarorlof 2011 þróaði ég spilið og ákvað að fara út
í alvöru framleiðslu. Fór á viðskiptaáætlunarnámskeið í
vetur á vegum Íslandsbanka og Opna háskólans og komst
í úrslit með hugmyndina. Þá fékk ég byr undir báða vængi
og ekki varð aftur snúið. Því miður var engin aðstaða til að
framleiða bingóið hér á landi svo það er búið til af banda-
rískum aðila sem er með verksmiðju í Kína. Þetta er miklu
vandaðra og veglegra en það sem við gerðum í höndunum
og á að geta enst í þrjátíu ár, að sögn framleiðandans.“
Bingóið fæst á N1, Hótel Eddu, Póstinum og Pennanum
um allt land. Lítið blað fylgir öllum spjöldum með til lögum
að reglum og leikjum, að sögn Guðrúnar Gyðu. Er hún
kannski líka með hugmyndir að bingóvinningum? „Nei,
það er eitthvað sem foreldrarnir ákveða, getur verið ís,
sundferð eða eitthvað annað einfalt. Aðalatriðið er að allir
skemmta sér og tíminn flýgur áfram á ferðalaginu.“
gun@frettabladid.is
GUÐRÚN GYÐA FRANKLÍN ARKITEKT:
HEFUR GEFIÐ ÚT ÍSLENSKT BÍLABINGÓ
Fær ferðalanga
til að horfa út
MEÐ BÖRNUNUM „Þetta er miklu vandaðra og veglegra en það sem við
gerðum í höndunum,“ segir Guðrún Gyða um bingóspjöldin. Með henni
eru börnin hennar Dagur Franklín, Björt og Logi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SIGFÚS BJARTMARSSON skáld á afmæli í dag.
„Sælir eru einfaldir – aldrei misskildir fyrir annað en það sem þeir eru.“57
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN FINNBOGASON
frá Skálmarnesmúla,
andaðist 7. júlí sl. á Landspítalanum við
Hringbraut. Útförin fer fram
frá Árbæjarkirkju, fimmtudaginn 19. júlí
kl. 13.00. Jarðsett verður á Skálmarnesmúla.
Steinunn Pétursdóttir
Finnbogi Jónsson Þuríður Kristjánsdóttir
Kolbrún Jónsdóttir Þorvaldur Ottósson
Nanna Áslaug Jónsdóttir Gísli Ásberg Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.