Fréttablaðið - 28.07.2012, Side 2
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR2
SPURNING DAGSINS
10 GB
Stærsta 3G net landsins
500 kr.
Svona á samband að vera.
„Nilli, þú þarft ekkert að flýta þér, mamma getur horft
í marga klukkutíma á Skype, 10 gígabæt, maður!“
Tal er á 3G neti Símans
3G
2G
ÍS
LE
N
SK
A
/
SÍ
A
T
AL
6
04
92
0
7.
12
ÚTLENDINGAMÁL „Verði menn upp-
vísir að svona lögbroti eiga þeir
náttúrulega að missa öll réttindi
sem hælisleitendur,“ segir Ólafur
William Hand, upplýsingafulltrúi
Eimskips, um þá menn sem hafa
verið gripnir við að brjótast inn á
athafnasvæði fyrirtækisins und-
anfarið og reynt að lauma sér um
borð í skip.
Níu slík tilvik hafa komið upp
síðan í byrjun maí – síðast í fyrri-
nótt – sem Ólafur kallar spreng-
ingu. „Í öllum tilfellum voru þetta
menn sem voru að nota ísland sem
stökkpall til Ameríku.“
Hann kallar eftir hertum viður-
lögum við þessu háttalagi. „Þegar
þessir einstaklingar ná ítrekað að
brjóta af sér, komast inn á svæði og
reyna að komast um borð í skip án
þess að það séu neinar afleiðingar
af málinu þá hringja þeir náttúru-
lega til sinna heimahaga og segja
mönnum að hér fái þeir húsnæði,
peninga, læknisaðstoð og frítt í
sund og að hér geti þeir brotist inn
á athafnasvæði skipafélaga án þess
að það sé tekið á málunum að öðru
leyti en að þeim sé stungið í fang-
elsi í tíu tíma og svo sleppt svo þeir
geti reynt aftur í næstu viku.“
Menn sem hafi sýnt með háttalagi
sínu að þeir vilji ekki vera á Íslandi
eigi með því að fyrirgera rétti
sínum til að teljast hælisleitendur.
Þessu er Kristín Völundardóttir,
forstjóri Útlendingastofnunar, alls-
endis ósammála. „Engan veginn.
Það mundi aldrei ganga. Einstak-
lingur sem þarf á vernd að halda,
hann þarf á vernd að halda hvort
sem hann vill vera á staðnum eða
ekki.“
Hún segir þó ósamræmi í
almennum viðurlögum við innbrot-
um á flugvernd-
arsvæði annars
vegar og hafn-
arsvæði hins
vegar. Eðlilegt
sé að gera kröfu
um að þeim sem
brjótast inn á
viðkvæm hafn-
arsvæði sé refs-
að.
Ólafur segir
að málin hafi þegar kostað Eim-
skip tugi milljóna. Bæta hafi þurft
öryggisgæslu, það kosti að kæra
málin til lögreglu og árið 2009 hafi
þurft að snúa skipi við 90 sjómílur
frá landi þegar laumufarþegi upp-
götvaðist. Þá segir hann að það
gæti haft miklar afleiðingar fyrir
Eimskip ef laumufarþegi kæmist
með skipi alla leið vestur um haf
og fyndist þar.
„Það mundi þýða stórar sektir frá
bandarískum yfirvöldum, sem gætu
hlaupið á milljónum, við mundum
að öllum líkindum þurfa að standa
straum af kostnaðinum sem hlyt-
ist af úti, greiða fyrir hann flugfar
aftur til Íslands og kannski fylgd-
armenn með honum, félagið væri
komið á einhvers konar eftirlits-
skrá og þetta gæti tafið fyrir vöru-
afgreiðslu.
Svo gætu þessir menn hreinlega
dáið á leiðinni og það væri líka vont
– ef þeir frysu í hel einhvers staðar
á Grænlandssundi. Það væri örugg-
lega ekkert skemmtilegt fyrir skip-
verja að koma að frosnu líki frammi
í stefni um miðjan vetur.“
stigur@frettabladid.is
Vill svipta lögbrjóta
stöðu hælisleitenda
Upplýsingafulltrúi Eimskips segir menn sem reyna að laumast um borð í skip
til að flýja land ekki eiga að njóta réttinda hælisleitenda. Forstjóri Útlendinga-
stofnunar er allsendis ósammála. Níu mál komið upp síðan í byrjun maí.
ÓSÁTTUR Ólafur William Hand segir það geta kostað Eimskip stórfé að menn brjótist
inn á athafnasvæði þess. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KRISTÍN
VÖLUNDARDÓTTIR
ÉG FÍLA SAMÞYKKI Starfsfólk veitinga-
staða Vestmannaeyjabæjar klæddist
bolunum bleiku.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
JAFNRÉTTISMÁL ÍBV mun standa
fyrir sérstöku átaki gegn kyn-
ferðisofbeldi á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum um Verslunarmanna-
helgina. Átakið kallast Bleiki
fíllinn og er það nýstofnaður for-
varnarhópur ÍBV sem stendur
fyrir átakinu.
Ástæða þess að fíll er notaður í
þessu samhengi er að enska mál-
tækið „fíllinn í herberginu“ (e.
elephant in the room) hefur oft
verið notað yfir vandamál sem erf-
itt er að taka á og ræða. „Við neit-
um að taka þátt í því. Það er bleikur
fíll í stofunni. Hann heitir nauðg-
un. Við ætlum að moka honum út,“
segir á vefsíðu Þjóðhátíðar.
Í tengslum við átakið hafa verið
prentaðir bleikir bolir þar sem
vakin er athygli á því að samþykki
beggja aðila þarf þegar samræði á
sér stað. - bþh
Átak gegn kynferðisofbeldi:
Bleiki fíllinn
verður til um-
ræðu í Eyjum
MENNING Gleðiganga, Gay Pride Parade, fór fram
í blíðskaparveðri í Þórshöfn í Færeyjum í gær.
Meðal þeirra tæplega þriggja þúsunda sem tóku
þátt í henni var Jón Gnarr borgarstjóri sem sagð-
ist í samtali við Fréttablaðið hafa skemmt sér hið
besta og almenn ánægja hafi verið með útgang
hans.
Þátttaka Jóns hefur vakið hörð viðbrögð sumra
heimamanna en borgarstjórinn segist ekki hafa
fundið fyrir andstöðu.
„Ég hef heyrt af því að sumir séu ekkert kátir
með þetta en það hefur enginn verið að hnippa í
mig,“ segir hann.
Borgarstjórinn hefur látið til sín taka í gleði-
göngu í sinni heimaborg svo Fréttablaðið spurði
hvort sú í Færeyjum hefði verið frábrugðin þeirri
sem hann þekkir af heimavelli.
„Það var jafnvel meiri gleði hérna og meiri til-
finningar enda er kannski meira í húfi hér,“ segir
hann og vísar þá til þess að samkynhneigðir hafa
ekki fengið jafn mikla viðurkenningu þar í landi.
Borgarstjórinn hélt ræðu á íslensku við þetta
tækifæri.
„Svo var hún þýdd á færeysku og það segja allir
að hún hafi verið góð. Annars er ég orðinn svakalega
góður í færeysku eftir dvölina, það eru allir að tala
um það líka,“ segir hann og skellir upp úr. - jse
Jón Gnarr borgarstjóri tók þátt í gleðigöngunni í Þórshöfn í Færeyjum:
Enginn að hnýta í borgarstjóra
GNARR Á GAYPRIDE Jón Gnarr, borgarstjórinn í Reykjavík, tók
þátt í Gleðigöngunni í Þórshöfn í gær. Jón klæddist bleikum
jakkafötum í tilefni dagsins. MYND/ÚR EINKASAFNI
Skúli, voru þessir steindu
gluggar ekki Guðs gjöf?
„Drottinn gaf. Drottinn tók.“
Skúli S. Ólafsson er sóknarprestur í
Keflavíkurprestakalli. Steindir gluggar í
Keflavíkurkirkju verða teknir niður. Sóknir
eru víðast hvar í vanda með gjafir sem
henta ekki kirkjum.
REYKJAVÍK Tæplega 11 milljónum
króna verður varið til frístunda-
starfs og lengdrar viðveru fyrir
fatlaða framhaldsskólanema í
Reykjavík út árið. Tillaga ÍTR
þess efnis var samþykkt í borgar-
ráði.
Starfið fer fram í Hinu húsinu
og segir á vef Reykjavíkurborgar
að markmiðið sé að mæta þörfum
allra fatlaðra framhaldsskóla-
nema að fullu. Frístundastarfið
hefst 20. ágúst næstkomandi.
Borgarráð fól jafnframt ÍTR
og velferðarsviði borgarinnar
að móta tillögur til framtíðar
að heildstæðri frítímaþjónustu
í Reykjavík fyrir fatlaða fram-
haldsskólanema. Þær skulu koma
til framkvæmda á næsta ári. - þj
Þjónusta fyrir fatlaða:
10,8 milljónir í
frístundastarf
ÞÝSKALAND, AP Paul Watson, for-
sprakki Sea Shepherd, er flúinn
frá Þýskalandi og er nú í felum.
Watson var handtekinn eftir
að þýskum stjórnvöldum barst
framsalskrafa frá Kostaríku í
maí en var lát-
inn laus gegn
tryggingu.
Nú hefur
verið upp-
lýst að jap-
önsk yfirvöld
fóru fram á
að fá Watson
framseldan
stuttu áður en
hann flúði frá
Þýskalandi.
Sea Shepherd-samtökin hafa
ítrekað átt í skærum við jap-
anska hvalveiðimenn, auk þess
sem þau hafa beitt sér gegn
veiðum á hákörlum og öðrum
viðkvæmum tegundum. Krafa
Kostaríku var vegna tíu ára
gamals atviks. - bj
Paul Watson flýr Þýskaland:
Japan vildi Wat-
son framseldan
PAUL WATSON
NEYTENDAMÁL Viðmiðunargengi
evru sem Bláa Lónið notar til að
ákvarða verðskrá sína er tæpum
fimm krónum hærri en skráð gengi
evru hjá Seðlabankanum. Bláa
Lónið hækkaði í vikunni viðmið-
unargengi upp í 155 krónur á evru
en Seðlabankagengi evru sem var
rúmar 150 krónum í gær.
Magnea Guðmundsdóttir, kynn-
ingarstjóri Bláa Lónsins, segir í
samtali við Fréttablaðið að viðmið-
unargengið sé reglulega uppfært og
þá miðað við gengi síðustu daga á
undan og þá námundað að heilum og
hálfum tug.
„Þegar við breytum þá þarf geng-
ið að fara upp fyrir eða niður fyrir
hálfan tug og vera stöðugt í fimm
daga. Það er einfaldlega ekki mögu-
legt að uppfæra gengið, og þar með
aðgangseyri, daglega og því höfum
við þennan hátt á.“
Magnea bætir því við að þetta
hafi það í för með sér að þó að
gengi þeirra sé stundum hærra en
gengi Seðlabankans sé það stundum
lægra. Því til stuðnings bendir hún
á að frá byrjun febrúar og fram á
vor hafi viðmiðunargengi evru hjá
Bláa Lóninu verið svipað eða lægra
en Seðlabankagengi. - þj
Viðmiðunargengi evru hjá Bláa Lóninu er rúmum fjórum krónum yfir Seðlabankagengi:
„Ekki mögulegt að uppfæra daglega“
BLÁA LÓNIÐ Verðskrá Bláa Lónsins miðar við gengi evru. Nú er viðmiðunargengið
yfir seðlabankagenginu, en forsvarsmenn benda á að gengið hafi oft verið undir
seðlabankagengi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
6 milljónir án vinnu
Atvinnuleysi á Spáni hefur aldrei
mælst meira í sögu landsins og er
nú 24,6 prósent. Tæpar sex milljónir
Spánverja eru án atvinnu. Sífellt fleiri
leita á náðir hjálparstofnana til að fá
matargjafir, jafnvel í millistéttarhverf-
um. Engar vísbendingar eru um að
atvinnuleysi komi til með að minnka
á Spáni og horfurnar virðast enn
dekkri en áður.
SPÁNN