Fréttablaðið - 28.07.2012, Page 6
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR6
UMFERÐ Ferðamenn á jepplingi
sem þeir höfðu tekið á leigu lentu
í ógöngum á miðvikudag þegar
þeir festu bílinn í á sem rennur
á Fjallabaksleið syðri.
Aldrei virðist of brýnt fyrir
ferðafólki að fara varlega á
hálendisvegum enda algengt að
menn bæði aki slóða sem farar-
tæki þeirra ráða ekki við og
keyri utan vega sem vitanlega
er stranglega bannað. Í þessu til-
felli fór vel því jepplingurinn var
dreginn á þurrt af öðrum hjálp-
sömum ferðalöngum.
- gar
Ferðamenn á bílaleigabílum halda áfram að rata í ógöngur á hálendinu:
Dreginn á þurrt að Fjallabaki
Á KAFI AÐ FJALLABAKI Þessi jepplingur sat fastur austan Landmannalauga á
miðvikudaginn. MYND/INGÓ HERBERTSSON
AUNG SAN SUU KYI Flutti sína fyrstu
ræðu á þingi Búrma á miðvikudag.
NORDICPHOTOS/AFP
BÚRMA, AP „Ég vil skora á alla
þingmenn að setja lög eða gera
þær breytingar á lögum sem nauð-
synlegar eru til þess að verja rétt-
indi þjóðernisminnihluta,“ sagði
Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í Búrma, í fyrstu
þingræðu sinni.
Suu Kyi var kosinn á þing í
apríl síðastliðnum en hafði þá
setið árum saman í stofufangelsi.
Fyrstu þingræðu sína notaði hún
til að vekja athygli þingmanna á
stöðu minnihlutahópa í landinu,
sem margir hafa átt í erfiðri bar-
áttu við stjórnina og stjórnarher-
inn áratugum saman. - gb
Fyrsta ræða Suu Kyi á þingi:
Vill vernd fyrir
minnihlutafólk
DANMÖRK Tveir drengir fundu
um síðustu helgi höfuðkúpu í
Lyngby Sø í Danmörku.
Samkvæmt nýjustu tilgátum
lögreglunnar er um að ræða höf-
uðkúpu af tvítugum manni sem
sökkti bát sínum á vatninu árið
1967 eða 1968. Kafarar gerðu
mikla leit að manninum eftir
slysið en hún bar engan árangur.
Þetta kemur fram á fréttavefn-
um bt.dk.
Mikil óvissa er enn um höfuð-
kúpuna en hún hefur líklega
legið í vatninu í um 50 ár. Hún
gæti þó hæglega verið mun eldri
og jafnvel verið frá seinni heim-
styrjöldinni.
Ekki er heldur hægt að úti-
loka að höfuðkúpan hafi legið
einhvern tíma í mýri og þá verið
margra alda gömul.
- ktg
Drengir við Lyngby Sø:
Fundu hálfrar
aldar gamla
höfuðkúpu
EFNAHAGSMÁL Vísitala neyslu-
verðs í júlí er 0,7 prósentum
lægri en hún var í júní. Þetta
kemur fram í gögnum Hagstofu
Íslands.
Sumarútsölur hafa lækkað
verð á fötum og skóm um 9,8
prósent og þá hafa flugfargjöld
lækkað um 15 prósent. Verð á
bensíni og díselolíu lækkaði um
2,2 prósent. Allt hefur þetta áhrif
til lækkunar vísitölunnar. Matar-
verð hefur hins vegar hækkað.
Framleiðsluverð lækkaði um
1,2 prósent frá maí til júní. - kóp
Sumarútsölur hafa áhrif:
Vísitala neyslu-
verðs lækkar
SÝRLAND „Að mínu mati er það
einungis tímaspursmál hvenær
ríkisstjórn sem beitir svona öfl-
ugum hernaðarmætti og hemju-
lausu ofbeldi gegn almenningi
fellur,“ sagði norski herforing-
inn Robert Mood við fréttastof-
una Reuters.
Mood er nýhættur sem yfir-
maður friðargæsluliðs Samein-
uðu þjóðanna í Sýrlandi, en lét
þau orð falla nýverið að tilgangs-
lítið sé að vera með friðargæslu-
lið þar í landi því hvorki stjórn-
arherinn né uppreisnarmenn
virðist hafa minnsta áhuga á að
virða samkomulag um vopnahlé.
Harðir bardagar hafa geis-
að síðustu daga í Aleppo, næst-
stærstu borg landsins, og eru
bæði stjórnarherinn og upp-
reisnarmenn að búa sig undir enn
harðari átök þar.
Stjórnarherinn hefur verið að
flytja þungavopn og skriðdreka
til borgarinnar.
Bæði Sameinuðu þjóðirnar og
Bandaríkin hafa varað við því að
stórfelldar árásir á almenning
séu yfirvofandi á næstunni.
Navi Pillay, mannréttinda-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna,
segir að nú þegar hafi borist
fregnir af margvíslegum voða-
verkum og mannréttindabrot-
um í höfuðborginni Damaskus,
þar sem harðir bardagar voru í
nokkra daga. Þessar fregnir boði
ekki gott fyrir íbúa í Aleppo. Hún
hvetur bæði stjórnarherinn sem
uppreisnarmenn til þess að hlífa
almennum borgurum.
Hún segist sannfærð um að
bæði stjórnarherinn og uppreisn-
armenn séu að fremja glæpi gegn
mannkyni og stríðsglæpi: „Og
það þarf ekki að taka það fram
að þegar þungavopnum, skrið-
drekum, árásarþyrlum og – eftir
því sem sagt er – jafnvel orrustu-
þotum er beitt í auknum mæli á
borgarhverfi hefur það nú þegar
kostað marga almenna borgara
lífið og mörgum öðrum er stefnt
í hættu.“
Þegar Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, kom til Srebrenica í Bos-
níu á fimmtudag varaði hann við
því að svipuð voðaverk geti verið
í uppsiglingu í Sýrlandi á næstu
dögum eins og þau sem framin
voru í Srebrenica árið 1995.
„Alþjóðasamfélagið verður að
standa saman um að ekkert frek-
ara blóðbað verði í Sýrlandi, því
ég vil ekki að einhver eftirmanna
minna komi til Sýrlands eftir 20
ár að biðjast afsökunar því það
sem við hefðum getað gert til að
verja almenning, það erum við
ekki að gera núna,“ sagði hann.
gudsteinn@frettabladid.is
Voðaverk framin í
skjóli aðgerðaleysis
Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir bæði stjórnarherinn og upp-
reisnarmenn fremja stríðsglæpi. Ban Ki-moon óttast að Sameinuðu þjóðirnar
horfi aðgerðarlausar upp á voðaverk í líkingu við fjöldamorðin í Srebrenica.
HANDTEKNIR Í ALEPPO Þrír sýrlenskir lögreglumenn í höndum uppreisnarmanna.
NORDICPHOTOS/AFP
KJÖRKASSINN
Alþjóðasamfélagið
verður að standa
saman um að ekkert frekara
blóðbað verði í Sýrlandi.
BAN KI-MOON
FRAMKVÆMDASTJÓRI
SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
MANNLÍF Bandaríski crossfit-
keppandinn Blair Morrison hefur
boðað komu sína á mýrarboltann
á Ísafirði um næstu helgi. Af því
tilefni verður boðið upp á cross-
fit-keppni á sjálfum mýrarvellin-
um, að sögn Jón Páls Hreinsson-
ar, skipuleggjanda mótsins.
„Við ákváðum að setja crossfit-
þrautir út í drulluna nú þegar við
vestfirsku víkingarnir erum loks
komnir með almennilegan keppi-
naut,“ segir Jón Páll. „Ég er ekk-
ert að taka of stórt upp í mig þó
hann sé með bestu crossfit-mönn-
um í heimi,“ bætir hann við.
Nú þegar hafa 31 karlalið og 16
kvennalið skráð sig til leiks. - jse
Crossfit-meistari í mýrarbolta:
Þraut úti í mýri
VIÐSKIPTI Íslenska ríkið heldur
BAA3-lánshæfiseinkunn sinni í
nýrri skýrslu matsfyrirtækisins
Moody‘s um Ísland. Fyrirtækið
segir horfur hér enn neikvæðar.
Ástæður þess að lánshæfis-
matið er enn lágt og horfurn-
ar neikvæðar eru einkum veik
staða í fjármálum hins opin-
bera og skuldsetning ríkissjóðs.
Þá telja sérfræðingar Moody‘s
einnig hættu á að vandræði
evru svæðisins hafi slæm áhrif
á efnahag Íslands, enda fari stór
hluti útflutnings landsins til
ríkja innan evrusvæðisins.
Í skýrslu Moody‘s er þó bent á
að efnahagslífið hér sé að styrkj-
ast og stofnanir landsins séu
traustar.
- bj
Moody‘s metur horfur Íslands:
Segja horfurnar
enn neikvæðar
Ert þú sátt/ur við úrskurð
Hæstaréttar um að forsetakosn-
ingarnar hafi verið löglegar?
JÁ 78,5%
NEI 21,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú lesið tekjublað
Frjálsrar verslunar?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
Kaupauki
Þú kaupir spa cranberry sykurskrúbb
og cranberry body butter fylgir frítt
með.
Sykurskrúbburinn bráðnar á heitri húðinni. Nærir og flýtir
fyrir endurnýjun húðar og hún verður silkimjúk.