Fréttablaðið - 28.07.2012, Side 24
KYNNING − AUGLÝSING
Hótel Berg er nýlegt hótel sem stendur á einum fal-legasta stað Suðurnesja,
við smábátahöfnina í Keflavík.
Þar er tilvalið fyrir Íslendinga að
gista áður en þeir fara í ferðalög til
útlanda því um sjö mínútur tekur
að aka til og frá flugvelli frá hótel-
inu. Auk þess er boðið upp á gjald-
frjálsan akstur til og frá vellinum
ásamt því að láta geyma bílinn á
meðan á ferðalagi stendur.
Í móttöku hótelsins tekur
hundurinn Tómas á móti gest-
um en hann er Íslendingum að
góðu kunnur úr sjónvarpsþátt-
unum Andri á f landri. Tómas
er góðu vanur því Hótel Berg er
eitt stigahæsta hótelið á Íslandi
á einum stærsta bókunarvef ver-
aldar, Booking.com. Þar fær hótel-
ið einkunnina 9,4 eða framúrskar-
andi en þar er byggt á umsögnum
380 gesta sem gist hafa á hótelinu.
Það er einnig vel látið af hótelinu á
vefsíðunni Tripadvisor en þar fær
hótelið fullt hús stiga.
Hótel Berg er lítið og heimilis-
legt og lögð er áhersla á persónu-
lega þjónustu og hlýtt viðmót.
Heillandi náttúrufegurð blasir
við en frá staðnum er fagurt út-
sýni yfir höfnina, út á haf og yfir
bæinn. Frábærir kostir til útivist-
ar og afþreyingar eru á svæðinu
og fjölbreyttar gönguleiðir, söfn
og veitingastaðir eru í fimm mín-
útna göngufjarlægð.
Ferðir LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 20122
Sögusetrið
Sögusetrið á Hvolsvelli er menn-
ingarmiðstöð Rangárþings eystra.
Húsið hýsir bæði sýningar og söfn
sem tengjast menningu og sögu
sveitarfélagsins. Á Njálusýning-
unni er Brennu-Njálssaga kynnt
í máli og myndum en sögusvið
hennar er Rangárþing um alda-
mótin 1000. Sýningin skiptist í
þrjá hluta; Víkingastofu, Bóka-
stofu og Njálustofu. Kaupfélags-
sýningin var sett upp árið 1999 og
er tileinkuð Kaupfélögunum og
Samvinnuhreyfingunni. Sjá nánar
á: www.njala.is.
Draugasetrið og Álfa-, trölla- og
norðurljósasafnið
Menningarverstöðin á Stokks-
eyri hýsir tvö skemmtileg söfn.
Draugasafnið er vinsælt hjá öllum
aldursflokkum enda allir þekkt-
ustu draugar Íslandssögunn-
ar til sýnis þar. Sýningin byggir
á 24 draugasögum og gestir upp-
lifa umhverfi þeirra og bakgrunn.
Álfa-, trölla- og norðurljósasafn-
ið býður gestum að upplifa heim-
kynni álfa og trölla. Norðurljósin
eru sýnd á 40 fermetra vegg þar
sem gestir geta fengið sér sæti og
upplifað ljósadýrðina. Sjá nánar:
www.draugasetrid.is og www.ice-
landicwonders.com.
Jöklasýning
Á Höfn í Hornafirði er Jöklasýn-
ingin staðsett í miðbænum. Hún
höfðar til allra aldurshópa og
miðlar fróðleik um jökla, umfjöll-
un um náttúru svæðisins og hefur
uppstoppuð dýr til sýnis. Hægt
er að horfa á myndbrot úr James
Bond myndinni Die Another Day
sem tekin var upp á Jökulsárlóni
árið 2000. Sjá nánar: www.rikivat-
najokuls.is/is-land.
Þórbergssetrið
Á Hala í Suðursveit hefur verið
reist menningarsetur til minn-
ingar um Þórberg Þórðarson rit-
höfund. Setrið inniheldur tvo
sýningarsali. Annar hýsir sýn-
ingu um ævi og verk Þórbergs þar
sem fræðsluspjöld og leikmun-
ir eru notaðir til að fanga gamla
tíma. Hinn salurinn hýsir ljós-
myndasýningu úr Suðursveit. Þar
eru til sýnis ljósmyndir frá árun-
um 1930-1960 sem sýna atvinnu-
hætti og mannlíf úr sveitinni. Sjá
nánar: www.thorbergssetur.is.
Sagnheimar
Stutt er síðan miklar breyting-
ar voru gerðar á Byggðasafni
Vestmannaeyja og það opnað
undir heitinu Sagnheimar. Þar
má skoða minjar frá eldgosinu
í Heimaey árið 1973 og teikni-
myndir sem lýsa Tyrkjaráninu
árið 1627. Einnig er fjallað um sjó-
mennsku og fiskvinnslu sem hafa
skipað stóran sess í lífi bæjar-
búa frá upphafi. Sjá nánar: www.
sagnheimar.is.
Fjölbreytt söfn
á Suðurlandi
Fjöldi skemmtilegra og áhugaverðra safna er að
finna á Suðurlandi fyrir alla aldurshópa.
Bæjarhátíðir eru eitt einkennismerkja íslenska
sumarsins. Þær eru haldnar í flestum stærri
byggðarlögum landsins frá vori fram á haust.
Margar þeirra eru hefðbundnar fjölskylduhá-
tíðir þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt
hæfi á meðan aðrar einblína á til dæmis tón-
list, matargerð eða sögu landsins. Ferðamenn
innanlands hafa að minnsta kosti úr mörg-
um skemmtilegum hátíðum að velja af öllum
stærðargráðum næstu vikurnar.
Strax um verslunarmannahelgina 3.-6. ágúst
geta ferðalangir valið úr fjölda viðburða fyrir
utan hefðbundnar útihátíðir. Færeyskir fjöl-
skyldudagar verða haldnir á Stokkseyri og Ung-
lingalandsmót UMFÍ verður haldið í fimm-
tánda skipti á Selfossi. Fjölskylduhátíðin Álfa-
borgarséns verður haldin í Borgarfirði eystri
sömu helgina og einnig árlegir Síldardagar sem
verða haldnir á Siglufirði. Evrópumeistaramót-
ið í mýrarbolta verður haldið um verslunar-
mannahelgina á Ísafirði í áttunda sinn.
Vikuna eftir verslunarmannahelgina hefst
menningarhátíðin Einu sinni á ágústkvöldi
á Vopnafirði sem er helguð bræðrunum Jóni
Múla og Jónasi Árnasonum. Í Borgarfirði hefst
á sama tíma norræna prjónaráðstefna Gavstrik
sem stendur yfir í sex daga. Dagana 9. til 12.
ágúst ættu allir matgæðingar að leggja leið sína
til Dalvíkur þegar Fiskidagurinn mikli er hald-
inn. Sömu helgi er einleikjahátíðin Act alone
haldin á Suðureyri.
Tónlistarhátíðin Pönk á Patró verður haldin
laugardaginn 11. ágúst og er ætluð unglingum
og fullorðnum.
Stykkishólmur hýsir Danska daga 17.-19.
ágúst en hátíðin hefur verið haldin í mörg ár.
Dönsk áhrif voru ríkjandi í bænum áður fyrr
og danskan meira að segja töluðu á sunnudög-
um. Sömu helgi ættu allir unnendur kántrýtón-
listar að skella sér á Kántrýdaga á Skagaströnd
en hátíðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi meðal
áhugamanna um kántrýtónlist og vestræna
menningu.
Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin á
Sauðárkróki helgina 23.-25. ágúst þar sem
boðið verður upp á 27 atriði á þremur dögum.
Mikil flugeldasýning verður haldin við Jökuls-
árlón 25. ágúst. Þetta er í þrettánda skiptið sem
sýningin er haldin og er óhætt að hvetja alla
ferðamenn á nálægum slóðum til að mæta og
njóta flugeldasýningarinnar í stórkostlegu um-
hverfi Jökulsárslóns.
Mikið framboð afþreyingar í boði
Ferðalangar á ferð um landið í sumar hafa úr fjölmörgum skemmtilegum hátíðum að velja. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Mýrarboltinn á Ísafirði er ávallt vinsæll.
Hótel Berg er nýlegt hótel sem stendur við smábátahöfnina í Keflavík. Góðar umsagnir gesta hótelsins gera það að einu af þeim
stigahæstu á landinu á alþjóðlegum bókunarvefum.
Hundurinn Tómas, sem gerði garðinn
frægan í þáttunum um Andra á flandri,
heldur til í móttökunni á Hótel Bergi og
býður gesti velkomna þangað.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is sími 512 5411
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Hundurinn Tómas
á Hótel Bergi
Hundurinn Tómas, sem varð frægur í þáttunum Andri á flandri, tekur á móti
gestum á Hótel Bergi. Hótelið er ársgamalt en er samt orðið eitt stigahæsta
hótelið á Íslandi á einum stærsta bókunarvef veraldar, Booking.com, en stigin
eru byggð á umsögnum gesta.