Fréttablaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 27
ÚTFARIR
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2012
Kynningarblað
Legsteinar
Útfararþjónusta
Luktir
Blómavasar
Það er nauðsynlegt að hafa samband við útfararþjón-ustu sem fyrst eftir að andlát
ber að,“ segir Rúnar Geirmunds-
son, eigandi Útfararþjónustunnar
við Fjarðarás. „Í fyrsta lagi þarf að
flytja hinn látna af dánarstað og í
líkhús og síðan að byrja að und-
irbúa kistulagninguna. Útfarar-
stjórinn heimsækir yfirleitt að-
standendur daginn eftir og þeir
leggja þá fram óskir sínar varð-
andi framkvæmd kistulagning-
ar og síðan jarðarfarar. Í því felst í
flestum tilfellum að velja prest og
hafa samband við hann og síðan
að tímasetja athafnirnar inn í for-
rit sem við notum og er beintengt
við kirkjugarðana. Næsta skref er
svo að ákveða hvað kemur í okkar
hlut en um það hafa aðstandendur
auðvitað frjálsar hendur að mestu
leyti.“
Rúnar stofnaði Útfararþjón-
ustuna á vormánuðum árið 1990
og hefur alla tíð veitt fyrirtæk-
inu forstöðu sem framkvæmda-
stjóri þess og útfararstjóri. Útfar-
arþjónustan er í eigu Rúnars og
eiginkonu hans, Kristínar Sigurð-
ardóttur, og starfa synir þeirra,
Sigurður og Elís, þar ásamt föður
sínum. Skrifstofa Útfararþjónust-
unnar er að Fjarðarási 25 í Reykja-
vík. Þar tekur útfararstjóri á móti
aðstandendum og veitir þeim allar
upplýsingar er varða undirbúning
útfarar. Útfararstjóri kemur einn-
ig heim til aðstandenda sé þess
óskað.
Á Viðarhöfða í Reykjavík er að-
staða Útfararþjónustunnar fyrir
líkbíla og kistur og þar er fullkom-
in aðstaða fyrir alla starfsemi út-
fararþjónustu. Að auki hefur Út-
fararþjónustan aðgang að aðstöðu
í líkhúsinu við Fossvogskapellu.
Rúnar segir það ráðast mest af
orðspori hvaða útfararþjónustu
fólk velji og að bestu meðmæli
sem hægt sé að fá sé að fólk leiti til
þeirra aftur og aftur. „Satt best að
segja byggist þetta dálítið mikið á
persónulegum kunningsskap og
ef maður sinnir sínu starfi vel er
það fljótt að spyrjast út. Fyrst og
fremst þarf að taka tillit til þess að
fólk er í sárum eftir ástvinamissi.
Við þurfum að gæta að því sem við
gerum og segjum og eins að nálg-
ast fólk með hlýju og auðmýkt. Það
getur verið mjög erfitt að bjóða
fólki við þessar aðstæður þjónustu
sem kostar peninga en þetta hefur
lærst í gegnum árin og við tökum
mjög mikið tillit til þess hvernig
aðstæður eru hverju sinni.“
Rúnar hefur unnið við útfar-
arþjónustu frá því 1983, fyrst hjá
Kirkjugörðum Reykjavíkur og
síðan í eigin fyrirtæki. Hann seg-
ist hafa lært það á löngum ferli að
það skipti ekki höfuðmáli hvaða
trú fólk aðhyllist eða hvort það að-
hyllist trú yfirleitt, virðingin fyrir
hinum látna sé alltaf í forgrunni.
„Og það þurfum við alltaf að hafa
í huga, án þess að taka afstöðu til
trúmála. Hlýja, auðmýkt og virð-
ing er það leiðarljós sem við fylgj-
um alltaf.“
Uppfylla ávallt óskir hins
látna og aðstandenda hans
Útfararþjónustan ehf. hefur verið í eigu Rúnars Geirmundssonar og fjölskyldu hans frá stofnun hennar.
Hann segir mikilvægast að taka tillit til aðstæðna hverju sinni og nálgast verkefnið með auðmýkt.
ÍSLENSK DUFTKER ÚR
BIRKI OG REYNIVIÐ
Þann 23. mars tók Rúnar
Geirmundsson útfararstjóri við
fyrstu íslensku duftkerjunum sem
koma í sölu á Íslandi úr hendi
Karls V. Dyrving. Karl bar sigur úr
býtum í Af jörðu – samkeppni um
hönnun duftkers úr íslenskum
viði sem haldin var í tilefni al-
þjóðlegs árs skóga á Íslandi árið
2011. Útfararþjónustan er fyrsta
útfararstofan til að bjóða upp á
íslenskt duftker.
FYRSTA HVÍTA ÚTFARAR
BIFREIÐIN Á ÍSLANDI
„Árið 1990 fluttum við inn fyrsta
gráa útfararbílinn sem notaður
var við athafnir á Íslandi. Það vakti
mikla athygli á þeim tíma og
undrun sumra,“ segir Rúnar Geir-
mundsson. „Tíminn leiddi þó í ljós
að aðstandendum þótti bíllinn
hlýlegur og fallegur í alla staði.
Hér má sjá nýjustu útfararbifreið
fyrirtækisins. Bíllinn er af Cadillac
Hearse gerð og er eins og sjá má
hvítur á lit. Þetta er fyrsti og eini
sér-útfærði útfararbíllinn á Íslandi
í yfir 80 ár sem er alhvítur. Bíllinn
er árgerð 1996.“
„Ef maður sinnir sínu starfi vel er það fljótt að spyrjast út,“ segir Rúnar Geirmundsson útfararstjóri, sem rekur Útfararþjónustuna ehf.
ásamt sonum sínum Sigurði og Elís. MYND/ERNIR
Rúnar
Geirmundsson
Þorbergur
Þórðarson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Fjarðarási 25 • 110 Reykjavík • Sími 567 9110 • 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Fjölskyldufyrirtæki
í 21 ár
Þær kistur sem við bjóðum, eru framleiddar í Danmörku
og hafa staðist allar væntingar um fagleg vinnubrögð
og góðan frágang.
Markmið okkar
hefur ávallt verið
að veita bestu faglegu
þjónustu varðandi
undirbúning
og framkvæmd útfarar.
Hlýja, auðmýkt og virðing er það leiðarljós
sem við fylgjum alltaf.