Fréttablaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 28
KYNNING − AUGLÝSINGÚtfarir LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 20126
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir elsaj@365.is sími 512 5427
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Yfirleitt er haft samband við okkur frá dánarstað og við beðin um að f lytja hinn
látna í líkhús. Tveir menn eru hjá
okkur á útkallsvakt, alla daga árs-
ins utan hefðbundins vinnutíma.
Síðan hefst skipulagning útfar-
arinnar og við sjáum um hana í
samvinnu við aðstandendur,“ út-
skýrir Arnór L. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Útfararstofu Kirkju-
garðanna. Að mörgu þarf að huga
við andlát. Útfararstofan hefur
samband við þann prest sem að-
standendur óska eftir, ákveða
þarf stað og stund fyrir kistulagn-
ingu og útför en útför getur farið
fram í hvaða kirkju sem er á höfuð-
borgarsvæðinu. Kistulagning fer
venjulega fram í Fossvogskapellu
eða bænhúsi við Fossvogskirkju,
tveimur til sex dögum eftir dauðs-
fall. Kistulagt er alla virka daga frá
9 til 16 og útfarartímar eru klukk-
an 11, 13 og 15 mánudaga til föstu-
daga.
„Eins þarf að huga að sálmaskrá
og vali á tónlistarfólki, organista
og kirkjuskreytingum og hversu
margir munu bera kistuna,“ bætir
Arnór við. Ákvarðanirnar eru
margar sem taka þarf, oft á erfið-
um stundum. Arnór segir starfs-
fólk útfararþjónustunnar ávallt
leggja sig fram við að veita bestu
mögulegu þjónustu sem völ er á
með áherslu á traust og umhyggju.
Nauðsynlegt sé að geta gefið af sér.
„Það útskrifar enginn skóli út-
fararþjónustufólk, starfið lærist
með reynslunni og mannleg sam-
skipti þurfa að vera góð. Við búum
að mikilli reynslu en hér hefur
sami starfsmannahópur unnið
árum saman,“ segir Arnór. „Sorg-
in er alltaf erfið og við hittum fólk
á þeirra viðkvæmustu stundum.
Þá er nauðsynlegt að starfsfólk geti
gefið af sér. Starfið er erfitt en mjög
gefandi.“
Útfararstofa Kirkjugarðanna
ehf. er stærsta útfararþjónusta
landsins, stofnuð 1994, en áður
höfðu Kirkjugarðar Reykjavíkur
rekið útfararþjónustu frá árinu
1948. Viðtalsherbergi og skrif-
stofur eru til húsa að Vestur-
hlíð 2 í Fossvogi og þar er einn-
ig aðstaða til gerðar sálmaskráa
og skiltagerð. Lagerpláss og bíla-
geymsla stofunnar er í Auðbrekku
1 í Kópavogi en fyrirtækið rekur
fjóra Cadillac-líkbíla og Renault-
flutningabíl. Samvinna er við Út-
fararþjónustu Hafnarfjarðar og
Fjöl-Smíð kistuverkstæði, um
kistukaup. Nánari upplýsingar
er að finna á heimasíðunni www.
utfor.is.
Samskiptin mikilvæg
Hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna ehf. er áhersla lögð á traust og umhyggju.
Fyrirtækið byggir á áratugareynslu starfsfólks en að mörgu þarf að huga þegar
andlát ber að höndum. „Starfið er erfitt en krefjandi.“
Arnór L. Pálsson, framkvæmdastjóri Útfararstofu Kirkjugarðanna, segir starfið erfitt á stundum en einnig gefandi.
2
HÓTEL SAGA, REYKJAVÍK
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Ólafur Örn Pétursson
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Sími: 551 7080 · 691 0919 · athofn@athofn.is · www.athofn.is
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón Bjarnason
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elíasson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Miðhraun 22 b, 210 Garðabæ, Sími 571 0400 granit@granit.is
BÁLFARIR ALGENGARI
Bálfarir hafa færst í vöxt hér á landi undanfarin ár. Bálför er í öllum atrið-
um eins og venjuleg útför nema að því leyti að kista er ekki borin til grafar.
Kistulagning og útfararathöfn í kirkju eru með venjubundnum hætti. Eftir
bálför ákveða aðstandendur hvenær duftker er sett í jörð í samráði við út-
fararstofu en það skal þó jarðað innan árs. Óheimilt er að varðveita duftker
annars staðar en í kirkjugarði eða löggiltum grafreit. Sérstakir grafreitir fyrir
duftker eru í Fossvogskirkjugarði og í Gufuneskirkjugarði.