Fréttablaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 33
Fjarðalax ehf. leitar eftir áhugasömu og dugmiklu fólki til starfa
hjá stærsta laxeldisfyrirtæki Íslands.
Vegna aukinna umsvifa í laxeldi þarf fyrirtækið nú að ráða í eftirtaldar stöður:
Starfsfólk í vinnslu á Patreksfirði
Um er að ræða framtíðarstörf fyrir konur og karla við slátrun, vinnslu og pökkun í vinnsluhúsi
fyrirtækisins á Patreksfirði. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur sem og vinnuvélaréttindi.
Vélstjóri
Umsækjandi þarf að hafa réttindi sem yfirvélstjóri VS.III á skip lengra en 12 metra og á vél sem
er 750 kw eða stærri (eldra skírteini VS.III - 2. Stig).
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í lok ágúst.
Fjarðalax hefur byggt upp umfangsmikið laxeldi á sunnanverðum Vestfjörðum og er nú með
fisk á fóðrum í Tálknafirði, Patreksfirði og Arnarfirði. Þá rekur fyrirtækið seiðaeldisstöðina Ísþór
í Þorlákshöfn. Fjarðalax hefur það að markmiði að koma á fót sjálfbæru laxeldi sem rekið er
með vistvænum hætti.
Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst – Umsóknir sendist á: kristin@fjardalax.is
Á sunnanverðum Vestfjörðum búa
um 1300 manns í ægifögru umhverfi í
námunda við Látrabjarg, Rauðasand
og Arnarfjörð.
Samfélögin eru Patreksfjörður, Tálkna-
fjörður og Bíldudalur þar sem starfræktir
eru fjórir skólar og þrír leikskólar auk
tónlistarskóla. Þá rekur Fjölbrautaskóli
Snæfellinga framhaldsdeild á Patreksfirði.
Mikil áhersla er lögð á umhverfismál og
vinna skólarnir allir eftir verkefninu
Skólar á grænni grein. Mannlífið á
sunnanverðum Vestfjörðum er blómlegt
og fjölmörg félagasamtök starfandi.
Fjarðalax á Vestfjörðum
– spennandi störf í laxeldi
Fjarðalax ehf.
Hafnarhúsið
460 Tálknafjörður
www.fjardalax.is
Vilt þú takast á við
krefjandi verkefni
í vinnunni?
Síminn óskar eftir að ráða starfsfólk í innhringiver. Við erum að leita
að metnaðarfullu fólki á uppleið sem vill ganga til liðs við okkur.
Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst 2012
Aðeins umsækjendur sem eru 20 ára og eldri koma til greina.
Fyrirspurnir berist til Mannauðs hjá Símanum (mannaudur@skipti.is).
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum www.siminn.is.
Við höfum gildi Símans að leiðarljósi í störfum okkar og erum
skapandi, áreiðanleg og lipur.
Heiðdís Björnsdóttir, hópstjóri
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
5
7
8
Sölufulltrúar
Sölufulltrúar Símans eru duglegir
og úrræðagóðir og leysa verkefni
fljótt og örugglega.
• Fullt starf
• Sveigjanlegar vaktir
• Frábært vinnuumhverfi
• Söluþjálfun
Þjónustufulltrúar
Þjónustufulltrúar okkar hafa framúr-
skarandi þjónustulund og metnað til
að leysa málin í fyrstu snertingu.
• Fullt starf
• Sveigjanlegar vaktir
• Frábært vinnuumhverfi
• Tækniþjálfun
Skannaðu hérna
til að sækja
Barcode Scanner
Hvað segir Símafólkið?
Skoðaðu viðtöl með því
að skanna kóðann.