Fréttablaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 38
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR8
Heimilisaðstoð
Fjölskylda í hverfi 108 óskar eftir konu eldri en 20
ára til að sinna heimilisstörfum og barnagæslu 2-3
eftirmiðdaga í viku, u.þ.b. 4 klst í senn. Viðkomandi
þarf að hafa bílpróf. Umsóknir/fyrirspurnir sendist
á netfangið umsokn108@gmail.com.
Tennis- og badmintondeild
KA (áður TBA) óskar eftir
að ráða aðalþjálfara fyrir
komandi vetur.
Stefnt er að því að æfingar
hefjist í byrjun september.
Umsóknir sendist til
Snæfríðar Egilson á netfangið
kristnes7@simnet.is.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.ka-sport.is, www.tba.iba.is
og www.iba.is
Íþróttafélagið Þór leitar að metnaðarfullum
einstaklingi í starf framkvæmdastjóra félagsins.
Helstu verkefni framkvæmdastjóra:
• Yfirumsjón með rekstri félagsins
• Fjármála- og starfsmannastjórnun
• Þátttaka í mótun kröftugrar liðsheildar.
• Skipulagning starfseminnar og áætlanagerð.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur
• Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti
• Haldgóð tölvukunnátta
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
Hvetjum bæði karla og konur til að sækja um starfið
Umsjón með starfinu hefur Aðalstjórn Þórs. Umsókn
um starfið ásamt ferilskrá skal skilað til formanns
Þórs, Árna Óðinssonar á netfangið formadur@thor-
sport.is
Íþróttafélagið Þór var stofnað 6. júní 1915, og er elsta starfandi
íþróttafélag á Akureyri. Innan félagsins eru stundaðar margar
íþróttagreinar, meðal annars fótbolti, körfubolti, handbolti, píla,
keila og taekwondo. Skrifstofur félagsins eru í félagsheimili Þórs
í Hamri við Skarðshlíð.
Te & Kaffi óskar eftir liðsauka
Starfsmann vantar í útkeyrslu- og eldhússtarf.
Starfslýsing:
• Vinnutími 06.00-16.00 á vöktum, alls 15 vaktir
í mánuði og unnið aðra hvora helgi.
• Almenn störf í framleiðslueldhúsi fyrirtækisins
og dreifing á vörum.
Hæfniskröfur:
• Eldri en 22 ára.
• Stundvís, jákvætt hugarfar og vönduð vinnubrögð.
Umsóknir sendist á jenny@teogkaffi.is Verkfræðingar – tæknifræðingar
VSB Verkfræðistofa ehf óskar eftir að ráða verkfræðing
eða tæknifræðing á sviði burðarvirkja til starfa nú þegar.
Starfið felst í hönnun burðarvirkja húsbygginga.
Starfsreynsla og þekking á Auto-Cad og helstu
burðarþolsforritum er nauðsynleg.
Leitað er að einstaklingi þar sem fagmennska og
metnaður er í fyrirrúmi við lausn verkefna.
Frekari upplýsingar gefur Björn Gústafsson
í síma 660 8601 eða á netfangi bjorn@vsb.is
Umsóknum skal skila til VSB fyrir 12. ágúst n.k.
í tölvupósti eða bréflega.
VSB Verkfræðistofa ehf er að Bæjarhrauni 20 í Hafnarfirði. Hjá fyrirtækinu starfa
17 manns. Fyrirtækið starfar á sviði bygginga-, véla- og rafmagnsverkfræði, við
hönnun burðarvirkja, lagna- og loftræsikerfa, rafkerfa og lýsinga, byggðatækni,
eftirlit, framkvæmdaráðgjöf, mælingar ofl. Á VSB er rekið öflugt starfsmannafélag
sem heldur uppi kröftugu félagslífi. Frekari upplýsingar um VSB má finna á
heimasíðu www.vsb.is
EFTIRLITSDÝRALÆKNIR Í
NORÐAUSTURUMDÆMI
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni
í 100% starf á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar á
Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Helstu verkefni:
• Heilbrigðiseftirlit í stærri matvælafyrirtækjum
• Eftirlitsstörf á sviði dýraheilbrigðis og dýravelferðar
• Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
• Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að
vera falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Dýralæknismenntun
• Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert
eftirlit
• Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Jónsson,
héraðsdýralæknir (olafur.jonsson@mast.is) og
Hafsteinn Jóh. Hannesson (hafsteinn.hannesson@
mast.is) í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá
og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til
Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum
“Eftirlitsdýralæknir” eða á starf@mast.is. Umsóknarfrestur
er til og með 15. ágúst 2012. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Launakjör
eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.
ss r
Matreiðslumaður
Sushisamba er skemmtilegur og
spennandi veitingastaður
í miðbæ Reykjavíkur
Vegna mikilla vinsælda þurfum við að
bæta við okkur matreiðslumanni,
bæði í aukavinnu og fullt starf.
Reynsla og jákvæðni skilyrði.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á
eythor@sushisamba.is
UNO er líflegur ítalskur veitingastaður
við Ingólfstorg, í hjarta borgarinnar.
Matreiðslumaður
Viljum bæta við öflugum matreiðslumanni í eldhúsið
hjá UNO. Hafið samband við Gumma í síma 891 8465
eða Kjartan í síma 663 4392.
Einnig vantar þjóna í vetur, sem búa yfir söluhæfi-
leikum og hafa gaman af því að gleðja aðra.
Sendið ferilskrá á uno@uno.is
Óskum eftir vönum
manni í jarðvinnu
Upplýsingar í s: 864-5111
Hafnargarðurinn ehf.