Fréttablaðið - 28.07.2012, Síða 45
KYNNING − AUGLÝSING Útfarir28. JÚLÍ 2012 LAUGARDAGUR 73
Tvær stærstu og öf lugustu steinsmiðjur landsins, Sól-steinar og S. Helgason, eru
að sameinast í eina. „Báðar stein-
smiðjurnar hafa verið leiðandi
í smíðum og framleiðslu á leg-
steinum frá stofnun. Sólsteinar
hefur starfað frá 1996 og S. Helga-
son var stofnað 1953 og fagnar því
sextíu ára afmæli á næsta ári,“
segir Brjánn Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri.
Sameinaða fyrirtækið verð-
ur staðsett á Skemmuvegi 48 þar
sem S. Helgason er til húsa. „Það
eru miklar breytingar í gangi hjá
okkur. Við erum að stækka og
breyta búðinni, auka vöruúrval-
ið og fjölga mannskapnum. Sam-
eiginlegt fyrirtæki verður stórt,
öflugt og framsækið. Við leitumst
alltaf við að bjóða upp á fyrsta
flokks vörur og þjónustu. Gæðin
í efnum sem við notum eru mikil
og okkur finnst það skipta miklu
máli.“
Grafískir hönnuður, lista-
menn og menntaðir steinsmiðir
starfa fyrir fyrirtækið. „Við smíð-
um mikið af okkur eigin steinum
og við sérsmíðum líka eftir pönt-
unum og óskum viðskiptavina.
Þegar fólk hefur valið sér stein
teiknum við og setjum hann upp
frá A til Ö þannig að fólk getur
séð nákvæma mynd af steinin-
um áður en framleiðslan hefst.
Fólk veit því alveg út í hvað það
er að fara. Fólk getur líka komið
til okkar sjálft með teikningar
eða hugmyndir og við látum þær
verða að veruleika,“ segir Brjánn.
Stærsti sýningarsalur landsins
fyrir legsteina verður á Skemmu-
veginum og er hann bæði inni
og úti. Veitt er persónuleg þjón-
usta og úrvalið er mikið þannig
að allir ættu að finna stein við sitt
hæfi. Íslenskar steintegundir hafa
verið vinsælar í gegnum tíðina og
henta vel til sérsmíði. Stuðlaberg,
grásteinn, gabbró og líparít er
mikið notað og granít og marm-
ari er innflutt til landsins. Einn-
ig er hægt að fá hvers kyns fylgi-
hluti hjá fyrirtækinu. „Við höfum
mikið úrval af luktum, blómavös-
um, marmarastyttum og ýmsu
skrauti úr kopar, svo sem engla,
fugla, krossa og blóm. Auk þess
er hægt að fá postulínsmynd af
þeim látna brennda á legsteininn.
Myndin gerir steinninn persónu-
legri og það eykst ár frá ári að fólk
velji að hafa mynd.“
Fyrirtækið sér um uppsetningu
og frágang á steinum. „Við sjáum
um allt ferlið. Í dag eru steinarn-
ir yfirleitt settir upp fljótlega eftir
jarðarför. Við skiptum um jarð-
veg undir steininum og förum
niður fyrir frost, setjum möl og
frostfrían jarðveg og þjöppum.
Eftir það á steinninn ekki að halla
en við berum hins vegar ábyrgð á
öllum okkar steinum endalaust og
lögum ef eitthvað er að, viðskipta-
vini að kostnaðarlausu. Við biðj-
um fólk að láta okkur vita ef eitt-
hvað kemur upp á eða ef það er
ekki ánægt og þá lögum við það.
Þetta er hluti af þeirri góðu þjón-
ustu sem við veitum.“
Legsteinar fyrirtækisins eru
sendir frítt út á land. „Við förum
um það bil 200 kílómetra út fyrir
höfuðborgarsvæðið sjálfir og
setjum steinana upp. Allt annað
sendum við viðskiptavininum að
kostnaðarlausu,“ segir Brjánn.
Stórt og öflugt sameinað fyrirtæki
S. Helgason og Sólsteinar sameinast í eitt fyrirtæki sem staðsett verður á Skemmuvegi 48. Þar verður boðið er upp á persónulega
þjónustu við val á legsteinum og fyrsta flokks vörur. Sérmenntað starfsfólk er hjá fyrirtækinu og hægt er að fá sérsmíðaða legsteina
úr mörgum tegundum íslenskra og erlendra grjóta. Legsteinar eru sendir út á land viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Brjánn og hans starfsfólk bjóða persónulega þjónustu og aðstoð við val á legsteinum. MYND/ERNIR
Hægt er að fá sérsmíðaða legsteina og
hver kyns fylgihluti, svo sem blómavasa,
styttur og skraut, hjá S. Helgasyni-Sól-
steinum.
Á Skemmuvegi 48 er stærsti sýningarsalur landsins fyrir legsteina.