Fréttablaðið - 28.07.2012, Qupperneq 48
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2012106
HÁKARLAÁRÁSUM FJÖLGAR
Konur skipta 28 sinnum um föt
á langri ferðahelgi, segir í nýrri
breskri könnun. Ein af hverjum
tíu konum segist skipta um föt
sjö sinnum á dag á ferðalagi á
meðan meðalkonan skiptir um
föt fjórum sinnum á dag. Tvö
þúsund konur voru spurðar í
könnuninni sem framkvæmd
var af fatamerkinu Tesco’s F&F.
Einnig sýndi könnunin að átta af
hverjum tíu kvennanna nota ekki
allan þann fatnað sem þær setja
í ferðatöskuna áður en haldið er
í ferðalag. Í hverri ferðatösku eru
að meðaltali fjögur betri dress,
sex bolir, fjögur pör af stuttbux-
um eða pilsum, tvennar síðbuxur,
þrjú bikiní, þrjú pör af léttum
sandölum og tvö pör af betri
skóm. Flestar konur kaupa auk
þess nýjar flíkur á ferðalögum.
„Ólíkt venjulegum degi heima
við skipta allir um föt nokkrum
sinnum á dag í fríi,“ segir talskona
F&F. „Bikiní fyrir sundlaugina,
stuttbuxur í göngutúra og betri
föt fyrir kvöldverðinn. Það getur
því verið erfitt að pakka öllu í eina
ferðatösku eins og mörg flug-
félög eru farin að krefjast.“
Könnunin sýndi enn fremur að
ein af hverjum fimm konum tekur
svo mikið með sér í ferðalag að
hún þarf að borga yfirvigt.
SKIPTA OFT UM FÖT Á
FERÐALÖGUM
Canazei
NÝR ÁFANGASTAÐUR
BEINT MORGU
NFLUG
TIL VERONA. V
ERÐ FRÁ:
89.900,-
BÁÐAR LEIÐIR
MEÐ SKÖTTUM
VILLA ROSELLA ***
144.680,-
*á mann m.v. 2 fullorðna í
í tvíbýli með morgunverði.
Verð m.v. 2 fullorðna í tvíbýli
með hálfu fæði frá 175.680,-
Brottför 2. febrúar - 1 vika
GARNI ARITZ ****
161.676,-
*á mann m.v. 2 fullorðna í
tvíbýli með morgunverð
Brottför 2. febrúar - 1 vika
Við hjá Úrvali Útsýn höfum áratuga reynslu af sölu skíðaferða til Madonna Di Campiglio
og Selva val Gardena. Nú bætist við þriðji áfangastaðurinn, Canazei. Þessi líflegi og
skemmtilegi skíðabær liggur í hjarta Dolomiti-fjallanna, einu þekktasta skíðasvæði Ítalíu.
LÍFLEGUR BÆR
Í HJARTA ÍTÖLSKU
ALPANNA
MADONNA DI CAMPIGLIO / SELVA VAL GARDENA / CANAZEIMEIRA Á ÚRVAL ÚTSÝN
HJÓLAÐ Í NEW YORK
Yfirvöld í New York-borg hefja
metnaðarfullt hjólreiðaverkefni í
ágúst. Þá verður 7.000 reiðhjólum
dreift um borgina á 420 reið-
hjólastöðvum og gefst öllum færi
á að nota hjólin án endurgjalds,
þar með talið ferðamönnum.
Verkefnið kallast Citi Bike og er
stærsta sinnar tegundar í Banda-
ríkjunum. Reiðhjólastöðvarnar eru
staðsettar á neðri hluta Man-
hattan og í hlutum Brooklyn og
Queens. Fyrirhugað er að fjölga
hjólunum í 10.000 á næsta ári
sem dreift verður á 600 reiðhjóla-
stöðvar. Borgaryfirvöld í New York
fullyrða að samgöngur flestra
borgarbúa og gesta hennar
takmarkist við rúmlega þriggja
kílómetra vegalengdir. Verkefninu
er því ætlað að uppfylla þarfir
þeirra á sama tíma og mengun
og umferðarþungi minnkar. Reið-
hjólastöðvarnar eru opnar allan
sólarhringinn, 365 daga ársins.
Óvenjumargar mannskæðar hákarlaárásir hafa orðið á vesturströnd Ástralíu að undanförnu. Um
miðjan júlí lést ungur brimbrettakappi eftir að hafa orðið fimm metra hvíthákarli að bráð og er hann
fimmta fórnarlamb hákarla á þessu svæði á innan við ári. Ekki er vitað hvað veldur en að jafnaði
lætur ein manneksja lífið í hákarlaárás þar í landi á ári.
Árið 2011 var tilkynnt um 75 hákarlaárásir í heiminum öllum. Flestar, eða 29, voru í Norður-Ameríku,
þar af ellefu í Florida og þrjár á Havaí. Í Ástralíu voru þær ellefu og í Suður-Afríku fimm.
Í sextíu prósentum tilvika urðu brimbrettakappar og aðrir sjósportsiðkendur
fyrir þessum árásum. Tólf dauðsföll urðu af völdum árásanna í fyrra sem
er hæsta dánartíðni af völdum hákarlaárása síðan 1993.
Hákarlaárásum hefur fjölgað jafnt og þétt frá aldamótunum
1900. Það þýðir ekki að hákarlar séu orðnir árásagjarnari.
Hins vegar stundar fólk ýmis konar sjósport í auknum
mæli.