Fréttablaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 50
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2012128
FARFUGLAHEIMILI VÍTT
OG BREITT UM LANDIÐ
Áður en lagt er á hringveginn
er gott að vera búinn að kynna
sér staðsetningu farfuglaheimila
á landinu. Á Íslandi getur verið
erfitt að spá fyrir um veðrið og
ef planið er að tjalda er gott
að vita af farfuglaheimilum ef
veður versnar. Farfuglaheimili er
gistihús fyrir ferðamenn þar sem
gestir geta gist gegn vægu gjaldi.
Gisting getur verið í svefnsölum
eða herbergjum þar sem gestir
gista í kojum. Oft er sameiginleg
aðstaða eins og setustofa og
eldhús þar sem gestir geta sjálfir
eldað. Farfuglaheimili er næsta
stig fyrir neðan mótel og fyrir þá
sem líkar ekki að vera í tjaldi er
eindregið mælt með farfugla-
heimilum.
HJÓLALEIGUR VÍTT OG
BREITT UM NEW YORK
Í byrjun ágúst verður sam-
göngukerfi New York-borgar enn
betra þar sem hægt verður að
leigja um það bil 7.000 hjól á 420
stöðvum í borginni. Stöðvarnar
verða neðarlega á Manhattan,
í Brooklyn og hluta af Queens.
Hægt verður að leigja hjól 24
tíma sólahringsins, 365 daga
ársins og telst þetta afskaplega
þægilegur kostur þar sem meðal-
vegalengdin sem New York-búar
fara á hverjum degi er um það bil
4 kílómetrar. Þrátt fyrir að neðan-
jarðarlestarkerfið í borginni sé
eitt það besta í heiminum, þá er
það ekki fullnægjandi. Stöðvarnar
verða staðsettar á gangstéttum
þar sem auðvelt verður að leigja
hjólin. Hjólagarpar verða því
alveg lausir við viðgerðarkostnað
og þjófnað.
REGLULEGAR TILBOÐS
FERÐIR FLUGFÉLAGANNA
Nú þegar samkeppni milli flug-
félaga eykst gefst landsmönnum
kostur á góðum tilboðum. Hægt
er að fara inn á heimasíður flug-
félaganna og skrá sig á póstlista.
Sendir eru út póstar á nánast
hverjum degi þar sem auglýst
eru tilboð á flugi til skemmtilegra
áfangastaða á góðu verði. Einnig
er boðið upp á pakkaferðir þar
sem hótel er innifalið og oft má
fá þannig tilboð á sama verði og
flugið eitt og sér hefði kostað hér
áður fyrr.
Lesendur eru hvattir til þess að
fylgjast með þessum tilboðum
og nýta sér þau þegar tækifærin
gefast.
TREVI GRÆÐIR
Einn frægasti gosbrunnur í heimi, Fontana di Trevi í Róm, hefur
mikið aðdráttarafl fyrir ferðalanga. Á hverjum degi koma þúsundir
manna að Trevi og flestir kasta mynt út í vatnið. Aldrei hafa fleiri
kastað pening í brunninn en síðustu sex mánuði og upphæðin
er komin yfir hálfa milljón evra eða um 76 milljónir íslenskra
króna. Peningarnir eru veiddir upp úr vatninu og fara í hjálparstarf
kaþólsku kirkjunnar. Með þessu áframhaldi verður árið 2012 metár
í peningasöfnuninni en í fyrra voru veiddar upp 951 þúsund evra
eða um 150 milljónir.
Fontana di Trevi er í miðborg Rómar og er frá árinu 1762. Fræg er
sena úr bíómyndinni La Dolce Vita eftir Fellini þar sem leikkonan
Anita Ekberg baðar sig í Trevi.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
ÞYNNRI
BOTN!
ENGINN
SYKUR!
LÉTTIR Á
DOMINO’S
íTALSKUR
- Þynnri botn
- 25% minna deig
LAUFLÉTTUR
- Léttari botn
- 20% spelt
- Enginn sykur