Fréttablaðið - 28.07.2012, Qupperneq 52
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR24
H H E F L J Ó T A B Á T A R
S Á R S V A N G U R Ó R Ú A Ú
K Á Í D Æ Ð S T A S T R U M P
R F L A Ð K N U G Í
Á G Æ T I S L A G I A U S A N D I U
M Ð S O S R I G N R
A R I S T Ó K R A T I S U N N
Ð E A B E T U R V I T A
U P P T A K A R I O Æ R
R U Ú L F Ú Ð A R G R Ó F
Ö L V A Ð U R L M Ð Ó
S E U G L U G G A L A U S T
K V A R T B U X U R N R R T
U K A A Á R D E G I S V E R Ð
L A G F Æ R I D I Y N O A
D A D L E S T A R F E R Ð I N A
A L A N S Ú R I T
F J A L L G Ö N G U M A N N A N N A A
E I A I Í U Ð N Ð
N E Y Ð A R Ú R R Æ Ð I T A M I N N I
Krossgáta
Lárétt
1. Kalli, Gunna og Línus eru lítilmenni (7)
7. Bæjarhús duga til framfærslu
ábúanda (8)
11. Helgistaður brunna frá barka til belgs (7)
12. Dragi upp mynd af bók (7)
13. Tíu sinnum hundrað huldar (12)
14. Gróðursælar leggja sjó (9)
15. Frelsið fisk fyrir ördeyðuna (10)
16. Klárar ágætur og ilmandi (11)
17. Hrunertan gefur aldinin (9)
20. Þeir voru svo bleikir að Gunnar
fór hvergi (8)
24. Nammi er frábært (3)
25. Daglegt mál um rím og tíma (7)
27. Féll hugur á dollunni? (7)
29. Stór stefni á ástralskt furðudýr (8)
30. Fór þetta tríó til Brasilíu? (3)
31. Óveðursföt, enda úrkomuský
á himni (10)
33. Er geitaglundur góður árbítur? (12)
35. Minnast tröppu eftir átökin (7)
36. Huðnuhlaupið er hnossgæti (14)
39. Bjarga sér vegna klæða (6)
40. El draum um sexfætlu sem
undan svíður (7)
41. Systkinasöngvar um skyldan lagabálk (8)
42. Sé vofu hvar ljóss er vant (6)
Lóðrétt
1. Slá og drepa í hrönnum (9)
2. Borðaðir bálskotinn (9)
3. Verður rugl rakið til þess sem
er á lausu? (10)
4. Belgbræður tengjast kynlegum böndum (9)
5. Fer um alla mýri, þar eru hálmstrá (9)
6. Ójöfnur földu hans kúr (7)
7. Ómegð út á krít (8)
8. Nokkurnveginn komið á kné (8)
9. Skammir fyrir hálstau, enda snurða þar á (8)
10. Slompuð leysir yfirvegaðar deilur (8)
17. Snæði kringlu í mat hjá Artúri (10)
18. Grilli rifin í seiðakörin (10)
19. „Muna gamma“ segir umhyggjusöm
æðarkolla (9)
21. Síða, fersk, fyrir bóg (7)
22. Uppreisnargjörn vill ekki selskap (12)
23. Löng leggja á ráðin um net fínna rása (11)
24. Hleyp nakinn með ávöxt í afturendanum (6)
26. Hví skyldi blondína einblína á sviðsljós? (11)
28. Giskaðu á flekkóttu (7)
32. Drottinn sveik Gulla (7)
34. Sting Nóa langt norður í Vesturheimi (6)
37. Muna hása mára (4)
38. Át bola og líkaði vel (4)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist
þjóðleið. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 1. ágúst næstkomandi
á krossgata@frettabladid.is merkt „28. júlí“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Eldar kvikna frá Forlaginu.
Vinningshafi síðustu viku var
Anna S. Hróðmarsdóttir,
Reykjavík, og getur hún vitjað
vinningsins í afgreiðslu 365,
Skaftahlíð 24.
S A M K Y N H N E I G Ð
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11
12
13
14
15
16
17 18 19
20 21 22
23 24 25 26
27 28
29 30
31
32
33 34 35
36 37 38
39
40
41 42
Á þessum degi fyrir réttum 98 árum, hinn 28. júlí árið 1914,
lýsti Austurríki-Ungverjaland yfir
stríði á hendur Serbíu eftir stig-
magnandi deilur sem höfðu hel-
tekið stórveldi Evrópu. Eftir það
blossaði upp allsherjarstyrjöld
þar sem Austurríki-Ungverjaland
ásamt Þjóðverjum stóðu saman
gegn Bretum, Frökkum, Rússum
og Serbum í hildarleik af áður
óþekktri stærðargráðu.
Segja má að litla þúfan sem velti
hlassinu hafi verið ungur Bosníu-
serbi að nafni Gavrilo Princip.
Princip, sem var félagi í þjóðern-
ishreyfingunni Svörtu hendinni,
réði Frans Ferdinand, ríkiserfingja
Habsborgarættarinnar og austur-
rísk-ungverska keisaradæmisins
af dögum. Slavneskir þjóðernis-
sinnar á Balkanskaga stefndu að
því að frelsa slava undan ánauð
Habsborgara og stofna sambands-
lýðveldi suður-slava.
Austurríki-Ungverjaland leit á
vígið sem árás á keisaradæmið og
hugðist nýta sér tækifærið til að
brjóta hina óstýrilátu Serba niður
í eitt skipti fyrir öll og hafði tryggt
sér liðsinni Þjóðverja til þess.
Serbum voru kynntir úrslita-
kostir, sem í raun var ekki hægt
að gangast við. Kom enda á dag-
inn að þó að Serbar sættu sig við
flestar kröfurnar, settu þeir fyrir-
vara við tvö ákvæði. Það reyndist
nóg til þess að Franz Jósef keisari
lýsti yfir stríði hinn 28. júlí, mánuði
eftir morðið á syni hans. Vilhjálm-
ur Þýskalandskeisari var að vísu
þeirrar skoðunar að Serbar hefðu
gengið nógu langt í eftirlátssemi,
en boð hans bárust of seint og stríð
var skollið á.
Sprengjum tók að rigna yfir Bel-
grad, höfuðborg Serbíu, daginn
eftir. Rússar, frændþjóð Serba,
sendu heri sína í átt að átakasvæð-
um. Þá sáu Þjóðverjar að vonir
þeirra um að enginn myndi blanda
sér í slaginn urðu að engu. Þeir
lýstu því yfir stríði á hendur Rúss-
um og Frökkum og réðust í gegn-
um Belgíu til að ná til þeirra síðar-
nefndu. Það varð til þess að Bretar,
bandamenn Frakka, lýstu yfir
stríði á hendur Þjóðverjum og eins
og hendi væri veifað logaði Evrópa
í styrjöld stórveldanna.
Deilurnar breiddust út um allan
heim þar sem Ottómanaveldið og
Búlgarar tóku stöðu með miðveld-
unum og Bandaríkin síðar með
bandamönnum. Alls tóku 32 ríki
þátt í heimsstyrjöldinni sem stóð
allt fram í nóvember 1918.
Þegar yfir lauk lágu 8,5 millj-
ónir hermanna í valnum og þrett-
án milljónir óbreyttra borgara, hið
minnsta. - þj
Heimild: Brittanica.
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1914
Austurríki-Ungverjaland lýsir
yfir stríði á hendur Serbum
Fyrsta skrefið í átt að allsherjarheimsstyrjöld var tekið þegar Austurríki-
Ungverjaland lýsti yfir stríði á hendur Serbíu eftir stigmagnandi deilur.
MILLJÓNAMANNFALL Hér sjást franskir hermenn geysast upp á vígvöllinn við Verdun.
Þar létust rúmlega 700.000 hermenn áður en yfir lauk. NORDICPHOTOS/AFP