Fréttablaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 58
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR30
Hvað heitir þú fullu nafni?
Haukur Óli Jónsson.
Hvað ertu gamall? Ég er fjög-
urra ára.
Ertu mikill lestrarhestur?
Mér finnst rosalega gaman að
skoða bækur og hlusta á sögur.
Hvenær lærðir þú að lesa? Ég
kann ekki að lesa enn en ég
þekki alla stafina.
Manstu eftir fyrstu uppá-
haldsbókinni? Þegar ég var lít-
ill var ég alltaf að skoða bókina
Fjóla á ferð í rigningunni.
Hvers lags bækur þykja þér
skemmtilegastar? Múmínálf-
arnir, Barbapabbi og Tinni.
Hvaða bók var lesin fyrir
þig síðast? Tinnabókin Dular-
fulla stjarnan. Hún var rosa
skemmtileg því það voru
kóngulær, skip og flugvélar í
henni. Líka Rassapólus sem er
vondur.
Í hvaða skóla gengur þú?
Skólinn minn heitir Klettaborg,
það er sko leikskóli en svo fer
ég í Hamraskóla þar sem systir
mín er.
Hvað er skemmtilegast í
skólanum? Að leika við Kára,
Lauga, Mattías og Jóhannes, já
og líka Aman og Ingólf Bjarna.
Helstu áhugamál? Fótbolti.
Mér finnst líka skemmtilegt að
hjóla, safna peningum og finna
fjársjóð.
krakkar@frettabladid.is
30
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Bókaormur vikunnar
Hvað ertu gamall? „Ég er alveg
að verða 10 ára. Afmælið mitt er
22. ágúst.“
Hvenær kviknaði veiðiáhuginn?
„Svona um þriggja ára aldurinn.
Afi var alltaf að tala um veiði
og leyfði okkur krökkunum að
koma með sér í veiðiferðir. Það
var mjög gaman.“
Hvenær veiddir þú fyrsta fiskinn
og hvar? „Ég hef verið svona 4-5
ára gamall, í stóru vatni sem ég
man ekki hvað heitir.“
Hvar er skemmtilegast að veiða?
„Í Blikadalsá því að maður veiðir
svo mikið af laxi þar.“
Hvers vegna er gaman að veiða?
„Maður verður svo stoltur af því
að veiða fisk, það er svo gaman
að draga inn og sjá hvernig feng-
urinn lítur út.“
Hver fer með þér að veiða? „Afi
og pabbi eru alltaf til í að skella
sér með mér. Stundum kemur
Bjarki bróðir minn líka og Arnór
Sveinn, en þeir eru svo upptekn-
ir í fótboltanum og komast ekki
oft.“
Hver er eftirminnilegasta veiði-
ferðin? „Það var eftirminni-
legt þegar við vorum að veiða á
höfninni á Akureyri, ég, pabbi
og Bjarki bróðir minn, fyrir
nokkrum árum. Það gekk eitt-
hvað mikið á þegar við vorum
að draga inn og endaði þannig
að Bjarki datt í sjóinn og pabbi
á eftir honum þegar hann var að
reyna að koma Bjarka upp úr.
Þetta var mjög fyndið. Svo var
líka eftirminnilegt að fá maríu-
laxinn í Blikadalsá.“
Hvað er stærsti fiskur sem þú
hefur veitt? „Það var sex punda
lax sem ég veiddi í fyrra í Blika-
dalsá.“
Finnst þér fiskur góður á bragð-
ið? „Já mjög góður. Ég elska
allan fisk en mest þó silung.“
Hver er uppáhaldsfiskréttur-
inn? „Bestur finnst mér nýr fisk-
ur soðinn eða grillaður í heilu
lagi. Svo finnst mér plokkfiskur
góður.“
Gætirðu hugsað þér að vinna í
fiskbúð, eða sem sjómaður? „Já
hvort tveggja. Í fyrra sótti ég um
starf í fiskbúðinni í Kópavogi en
var sagt að ég væri of ungur. Þá
langaði mig svo mikið að læra að
gera að fiskinum. Ég kunni það
svona nokkurn veginn en vildi
læra að gera það alveg rétt. Ég
sæki bara um aftur þegar ég
verð aðeins eldri.“
Áttu þér fleiri áhugamál en veið-
ar? „Já, íþróttir. Ég æfi fótbolta
með Breiðabliki, handbolta með
HK og svo er ég í skólahljómsveit
Kópavogs og spila á trommur.
Mér finnst líka gaman að fróð-
leik um allt mögulegt. Síðan á
ég tvö dýr – kisuna mína Perlu
sem er rúmlega 18 ára gömul og
hamsturinn Lubbalínu sem ég
fékk í vetur.“ sigridur@frettabladid.is
SKEMMTILEGAST AÐ
VEIÐA Í BLIKADALSÁ
Veiðiáhuginn hjá Einari Braga Aðalsteinssyni kviknaði þegar hann var þriggja ára
gamall en maríulaxinn veiddi hann á eftirlætisveiðistaðnum sínum, Blikadalsá.
EINAR BRAGI AÐALSTEINSSON „Maður verður svo stoltur af því að veiða fisk, það er
svo gaman að draga inn og sjá hvernig fengurinn lítur út.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETURDrengurinn: „Mamma, Þú
verður að vekja hann afa?“
Mamman: „Af hverju, góði
minn?“
Drengurinn: „Hann gleymdi að
taka svefntöflurnar sínar.“
„Eru ekki allar tærnar á mér
jafngamlar, mamma?“ spurði
Símon litli.
„Jú, að sjálfsögðu, væni
minn,“ svaraði mamma.
„Hvernig stendur þá á því að
þær eru ekki allar jafnstórar?“
Kennarinn: „Í hvaða orðflokki
er kjúklingur?“
Sigrún: „Kjúklingur er nafn-
orð.“
Kennarinn: „Í hvaða kyni?“
Sigrún: „Ja, ef hann fer að
gala þegar hann stækkar þá er
hann karlkyn.“
BARNADAGUR Í VIÐEY Trúðar heimsækja Viðey á morgun, líka Lalli töframað-
ur, Sveppi og Villi. Barnamessa verður í kirkjunni, villiblómavandarkeppni verður háð
og leitað að fjársjóðum í flæðarmálinu. Því er gott að taka sigti eða háf með.
Á Vísi er hægt að horfa á
mynd skreyttan upp lestur
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl enska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.