Fréttablaðið - 28.07.2012, Side 70
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR42
„Við erum svo klisjukenndir að
það hálfa væri nóg, en það þarf
smá pung til að þora þetta,“ segir
Bjarni Egill Ögmundsson, eða
Bebbi Diamond eins og hann kall-
ar sig, trommari glysrokkbandsins
Diamond Thunder.
Hljómsveitin er skipuð fimm
mönnum og búin að vera starfandi
frá því í febrúar. „Það er erfitt að
finna svona frábæra gaura sem
þora að skella á sig ælæner, fara í
spandex og láta eins og vitleysingar
uppi á sviði, svo það er algjör snilld
að við höfum náð saman,“ segir
Bjarni. Að því er hann best veit er
Diamond Thunder eina glysrokk-
band landsins og segir hann þá æsta
í að kynna nýja kynslóð fyrir þess-
ari frábæru tónlist. „Það vilja allir
koma og sjá okkur enda erum við
ljónharðir og skelfilega skemmti-
legir. Stemningin er líka alltaf ban-
eitruð því við erum svo asnalegir og
bjánalegir að fólki finnst það mega
haga sér þannig líka,“ segir Bjarni.
Hljómsveitin hefur dundað sér
við að semja eigin lög en stefn-
ir þó ekki á neina útgáfu strax.
„Ef manni liggur of mikið á verð-
ur þetta erfitt og leiðinlegt og um
leið og við hættum að hafa gaman
af þessu fellur þetta um sjálft sig,“
segir Bjarni og bætir við að þeir
stefni ekki á neina heimsfrægð, þó
heimsyfirráð séu reyndar á döf-
inni. „Ég held að versta hugmynd
sem nokkrum hefur dottið í hug
sé að ætla að græða peninga á tón-
list. Þetta á bara að vera ógeðslega
gaman og ef maður græðir á þessu
er það bara ógeðslega gaman líka.
Við erum ekkert að sækjast eftir
því að komast í Séð og Heyrt með
fráskilnaðarsögur þó eflaust séu
flestir mjög áhugasamir um líf
okkar, sérstaklega ástarlíf,“ segir
hann.
Hliðarsjálf fimmmenninganna,
Don Joey, Atli Power, Ingo Poison,
Anthony Thunder og Bebbi Dia-
mond koma í ljós þegar í spandex-
ið er komið og þá er allt leyfilegt
en þeir skilja karakterinn þó eftir í
búningnum. „Maður verður að fíla
sig til að geta gert svona stórkost-
lega hluti. Við erum samt ekkert að
fara að mæta í þeim gír í 10-11 fyrir
hádegi á miðvikudegi. Þá værum
við bara flokkaðir sem leiðinlegir
fávitar og enginn myndi nenna að
tala við okkur,“ segir Bjarni eitur-
hress. tinnaros@frettabladid.is
PERSÓNAN
„Ég mundi eftir hamborgarakryddinu en
ekki miðunum,“ segir körfuboltakonan
Andrea Ösp Pálsdóttir hlæjandi en hún
lagði upp í níu tíma svaðilför ásamt vinkonu
sinni Unni Hauksdóttur í gær til Borgar-
fjarðar eystri á tónlistarhátíðina Bræðsl-
una. Þegar komið var á áfangastað klukkan
tvö aðfaranótt föstudags uppgötvuðu þær
sér til mikillar skelfingar að miðana vant-
aði.
„Ekki nóg með það heldur gleymdum við
að taka bensín á Egilsstöðum. Við pissuðum
einhvers staðar þarna, keyrðum svo fram
hjá og vorum á seinustu lítrunum í hlutlaus-
um niður brekkuna hingað,“ segir hún um
hasar ferðarinnar. „Síðan var svartaþoka á
heiðinni og við rétt náðum að komast. Viss-
um ekkert hvert við vorum að fara.“
En hvernig ætla stöllurnar að bjarga
málunum? „Ég bað bróður minn um að
brjótast inn heima hjá mér, ná í miðana
og senda þá með flugvél til Egilsstaða.
Maður gerir allt fyrir Bræðsluna,“ segir
hún yfir sig spennt enda fyrsta skipti
vinkvennanna á Bræðslunni. Þær vona
innilega að miðarnir skili sér í tæka tíð
svo þær nái tónleikum hátíðarinnar en
Kiriyama Family og Tilbury spiluðu
meðal annarra í gær og Mugison, Fjalla-
bræður og fleiri halda uppi stuðinu í
dag.
Áætluð lending miðans var klukkan
fimm í gær og stefndu hressu vinkon-
urnar á Egilsstaði. „Maður tekur bara
einn sundsprett, nær í miðana og svo er
fjandinn laus,“ segir Andrea. - hþt
Miðalausar eftir níu tíma ferðalag
GLEYMDU MIÐUNUM Andrea Ösp og Unnur dóu ekki ráðalausar
þegar þær uppgötvuðu eftir níu tíma keyrslu til Borgarfjarðar
eystri að miðana vantaði heldur fengu þá senda með flugvél til
Egilsstaða.
BJARNI EGILL: STEFNUM EKKI Á HEIMSFRÆGÐ, BARA HEIMSYFIRRÁÐ
Allt leyfilegt þegar menn
eru komnir í spandexið
LJÓNHARÐIR DEMANTAR Bjarni segir þurfa pung í að þora að koma á svið í glysgallanum og fíla sig vel. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Óli Valur Þrastarson
Aldur: 29 ára.
Starf: Eigandi
Ofur hljóðkerfa,
plötusnúður og
hljóðmaður.
Foreldrar:
Hin nýfimm-
tuga Sigríður
Guðlaug Ólafs-
dóttir, kennari, og
Þröstur Einarsson,
verkstjóri hjá HB
Granda.
Fjölskylda: Ofboðslega trúlofaður
Valdísi Helgu Þorgeirsdóttur.
Búseta: 108.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Óli trúlofaði sig á LungA.
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CC Flax
Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum
aldri og einkennum breytingaskeiðs
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið
lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg
minni fitumassa en þær konur sem skortir
eða hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Krónunni.
www.celsus.is
Slegið í gegn í vinsældum,
frábær árangur !
Mulin hörfræ – Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir,
ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur
sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér
allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.
„Við erum með mjög skothelt lið og
það kemur ekki annað til greina en
að fara með sigur af hólmi annað
árið í röð,“ segir Bjarki Már Elísson,
landsliðsmaður í handbolta og fyrir-
liði strandhandboltaliðsins Elítan.
Elítan keppir á Strandhandbolta-
mótinu í Nauthólsvík í dag ásamt
15 öðrum liðum sem flest eru skip-
uð handboltamönnum og -konum.
„Þarna verða Íslandsmeistararnir
í karla og kvennaflokki N1 deild-
arinnar og annað handboltafólk úr
öllum áttum samankomið. Það er
opin skráning á mótið en það er mest
handboltafólk sem rottar sig saman
og tekur þátt,“ segir Haraldur Þor-
varðarson sem er einn skipuleggj-
enda mótsins. Undanfarin ár hefur
búningakeppni orðið hluti af mótinu
og segir Haraldur hana verða veiga-
meiri með hverju árinu. „Valsstelp-
urnar kalla sig til dæmis Strump-
ana svo þær verða þá væntanlega
klæddar eins og strumpar,“ segir
hann. Bjarki Már segir þá drengi
leggja meira upp úr því að sigra
mótið en að sigra búningakeppn-
ina. „Við erum aðeins búnir að vera
að sníða, en ég get ekkert gefið upp
um búningana okkar að svo stöddu,“
segir hann. Hann segir Elítufélaga
ekki þurfa á því að halda að múta
dómurunum í keppninni, en gæti þó
trúað að önnur lið muni reyna það til
að eiga möguleika á sigri. „Ég efast
samt um að það gangi þar sem einn
af okkar liðsmeðlimum er að dæma
mótið,“ segir hann.
Mótið stendur yfir frá 9 til 17 í
dag og er öllum velkomið að koma
og horfa á. Verðlaunaafhending og
lokahóf er svo á Úrillu górillunni í
kvöld klukkan 21. - trs
Spila handbolta í sandinum
HIN EINA SANNA ELÍTA Bjarki Már og félagar í strandhandboltaliðinu Elítunni ætla
sér að fara með sigur af hólmi á mótinu, annað árið í röð.