Fréttablaðið - 11.08.2012, Qupperneq 20
11. ágúst 2012 LAUGARDAGUR20
Þ
egar blaðamaður
hittir þá Andra
Ólafsson og Stein-
grím Karl Teague
úr hljómsveitinni
Moses Hightower
yfir kaffibolla er einungis lið-
inn um stundarfjórðungur síðan
íslenska handknattleikslandsliðið
féll úr leik á Ólympíuleikunum í
London.
Andri, sem leikur á bassa og
syngur, og Karl, sem er hljóm-
borðsleikari og þenur raddböndin
einnig, voru þó ekki meðal þeirra
fjölmörgu sem sátu sveittir og
gargandi yfir leiknum við Ung-
verja sem lauk svo miður far-
sællega enda gaf sveitin út sína
aðra breiðskífu á fimmtudaginn
og því mikið um að vera. „Við
heyrðum blálokin á lýsingunni
á leiknum í bílnum,“ segir Andri
og bætir við að allur gangur sé á
því hvort meðlimir Moses High-
tower fylgist með íþróttum eður
ei. „Sjálfur er ég dálítill skyldu-
áhorfs-íþróttaáhugamaður en hef
reyndar mjög gaman af frjálsum
íþróttum, þar sem bræður mínir
þrír eru allir frjálsíþróttanöttar-
ar og einn þeirra meira að segja
formaður frjálsíþróttadeildar
Ármanns.“
Þá er töluvert um áhuga á
NBA-körfuboltadeildinni banda-
rísku í kringum sveitina, eins og
Steingrímur útskýrir. „Maggi
trommari [Magnús Tryggva-
son Eliassen] er með gríðarlegt
blæti fyrir „vintage“ NBA-fatn-
aði og á það til að koma fram á
tónleikum í Charlotte Hornets-
alklæðnaði.“ Blaðamaður bend-
ir á að þetta ákveðna félag hafi
flutt sig um set fyrir allmörgum
árum og leiki nú undir nafninu
New Orleans Hornets. „Já, en
Charlotte Hornets lifir í Magga,“
segir Steingrímur. „Danni [Daní-
el Friðrik Böðvarsson gítarleik-
ari] er líka íþrótta fíkill en talar
minna um það.“
Allir á landinu
Nýja platan ykkar, Önnur Móse-
bók, kom út á fimmtudaginn
og hefur hlotið fyrirtaks dóma.
Fylgir því ekki mikið annríki að
standa í slíkri útgáfu?
Steingrímur: „Þetta kemur
í hryðjum. Núna erum við til
dæmis allir á landinu, sem er
afar sjaldgæft. Andri er að læra
á kontrabassa í Amsterdam og
Danni stundar gítarnám í Berl-
ín.“
Andri: „Maggi trommari er
líka duglegur við að fara til
útlanda og spila og tekur skrep-
pitúra til ólíklegustu landa. Hann
spilar auðvitað með mun fleiri
hljómsveitum en Moses High-
tower, til dæmis Tilbury, Sin
Fang, ADHD, Amiinu og Borko.“
Steingrímur: „Það er orðið
dálítið erfitt að átta sig á þessu.
Ég geri yfirleitt ráð fyrir því að
Maggi sé í öllum hljómsveitum
þangað til annað kemur í ljós.
Ég starfa sjálfstætt sem þýðandi
og er líka í reggísveitinni Ojba
Rasta, sem er að gefa út plötu
á næstunni. Þegar Danni er á
landinu starfar hann með nánast
öllum hljómsveitum á Íslandi og
Andri er með swingband í Hol-
landi.“
Andri: „Já, og swingband-
ið mitt spilar einmitt á Íslandi
í ágúst í samstarfi við gríðar-
sterka lindíhoppsenu landsins.
Ég dansa reyndar ekki sjálfur
heldur læt konuna mína um það.“
Steingrímur: „Ég veit ekki
hversu oft ég hef komið í heim-
sókn til ykkar og konan þín hefur
verið að horfa á einhver úrkynj-
uð Youtube-myndbönd af fólki að
taka heljarstökk.“
Þannig að væntanlega þarf
samstillt átak til að ná ykkur
öllum saman í eigin persónu. Þið
hafið líka haldið fremur fáa tón-
leika, í það minnsta miðað við
marga aðra, frá því fyrsta plat-
an ykkar, Búum til börn, kom út
fyrir tveimur árum og meðlimir
Þurfum að hafa fyrir hlutunum
Sálarpoppsveitin Moses Hightower sendi í vikunni frá sér sína aðra breiðskífu, sem ber titilinn Önnur Mósebók, og heldur útgáfu-
tónleika í Iðnó á fimmtudag. Kjartan Guðmundsson ræddi við Andra Ólafsson og Steingrím Karl Teague, meðlimi sveitarinnar.
MOSES HIGHTOWER Sveitin heldur útgáfutónleika í Iðnó fimmtudaginn 16. ágúst og nokkrir fleiri tónleikar fylgja í kjölfarið. Frá vinstri: Daníel Friðrik Böðvarsson gítarleikari, Andri Ólafsson, bassaleikari og söngvari,
Magnús Tryggvason Eliassen trommari og Steingrímur Karl Teague, hljómborðsleikari og söngvari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SJALDGÆF SJÓN Afar sjaldgæft er að allir meðlimir Moses Hightower séu í einu á landinu.
Við vorum varla orðnir að hljómsveit þegar fyrsta platan
okkar kom út fyrir tveimur árum. Við höfðum reyndar
spilað mikið saman en komumst að því hvað við vorum
að gera um leið og við gerðum það. Á nýju plötunni mótuðum við
ákveðnari stefnu, þar á meðal að reyna að gera ekki sömu plötuna
aftur, en auðvitað heyrist vel að þetta er sama bandið.