Fréttablaðið - 11.08.2012, Page 32
KYNNING − AUGLÝSINGCrossFit LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, s: 512 5432, tp.: sverrirbs@365.is.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Gazpacho er köld tómatsúpa,
spænskur þjóðarréttur sem búinn
var til í Andalúsíu. Súpuna er upp-
lagt að hafa á heitum sólardög-
um, enda er hún hressandi. Súpan
er þar fyrir utan afar heilsusamleg
og næringarrík. Hana er því gott
að borða þegar fólk er í æfingum.
Tómatar eru afar góðir um þessar
mundir og því upplagt að nota þá
nýja í þessa súpu.
Í súpuna má nota mismunandi
grænmeti en tómötum má ekki
sleppa. Súpan er maukuð í mat-
vinnsluvél áður en hún er borin
fram.
Það sem þarf
1 agúrka
1 rauð paprika
½ rauður chili-pipar
4 hvítlauksrif
900 g tómatar, skornir í báta og
fræhreinsaðir
1 tsk. tómatpuré
1 tsk. pipar
1 tsk. salt
5 dl ískalt vatn
3 msk. rauðvínsedik
2 msk. ólífuolía
Skreyting:
1 gul paprika
fersk basilíka
2 msk. ólífuolía
Skolið grænmeti og skerið í litla bita.
Fínhakkið chili-pipar og hvítlauk.
Léttsteikið hvítlauk og chili í ólífu-
olíu. Bætið grænmetinu, tómötum
og tómatpuré saman við á pönnuna.
Látið allt malla smá stund. Maukið
súpuna með töfrasprota eða í mat-
vinnsluvél og bætið köldu vatni smám
saman við. Bragðbætið súpuna með
salti, pipar og ediki.
Berið súpuna fram kalda og setjið
smátt skorna gula papriku, basil og
ólífuolíu ofan á hana.
Köld tómatsúpa að
hætti Spánverja
Köld tómatsúpa er full af vítamínum og afar bragðgóð.
Heimsmeistarinn Annie Mist hóf að stunda cross-fit árið 2009 og hefur náð
á toppinn á mjög skömmum
tíma. Hún stundaði ýmsar íþrótt-
ir á yngri árum, til dæmis stang-
arstökk og dans, en þó lengstum
fimleika sem hún stundaði frá sjö
ára aldri. „Mig vantaði eitthvað
nýtt eftir að ég hætti að stunda
fimleika sextán ára gömul. Vinur
minn, Evert Víglundsson, skráði
mig í fyrstu crossfit-keppnina sem
haldin var hér á landi árið 2009. Ég
ákvað að taka þátt og vann keppn-
ina. Þannig öðlaðist ég keppnisrétt
á heimsmeistaramótinu sama ár.
Þar sem ég var nýbúin að kynnast
íþróttinni þurfti ég að eyða næstu
tveimur mánuðum í að læra cross-
fit betur.“ Annie segist ekkert hafa
vitað hverju hún átti von á þegar
hún tók þátt í heimsmeistara-
mótinu í fyrsta skiptið. „Þetta var
algjört ævintýri og ég var hepp-
in með greinarnar fyrsta árið. Ég
fór eiginlega út með því hugarfari
að gera mitt besta og sjá til hvað
myndi gerast.“ Annie endaði í ell-
efta sæti af 50 keppendum og hefur
síðan gert fátt annað en að keppa,
kynna og þjálfa crossfit.
Fjölbreytileikinn í crossfit er það
sem hefur alltaf heillað Annie
mest. Um er að ræða mismunandi
samsettar æfingar og ólíkar út-
færslur af hverri æfingu fyrir sig.
„Mér hefur ekki enn tekist að fá
leið á neinni æfingunni enda eru
þær mjög fjölbreyttar. Við erum
að tala um ólympískar lyfting-
ar, kraftlyftingar, hlaup, æfingar
með ketilbjöllum og margt fleira.
crossfit er líka frábær valkostur
fyrir fólk sem til dæmis finnur sig
ekki í hefðbundnum íþróttagrein-
um eða vill nýja áskorun á miðjum
aldri. Síðan ertu umkringdur svo
skemmtilegu fólki þegar þú stund-
ar crossfit. Allir svitna vel saman
og ganga í gegnum sömu æfing-
arnar saman.“
Fólk á öllum aldri stundar cross-
fit hérlendis, frá unglingum upp í
ellilífeyrisþega. Annie segir þó
fjölmennustu hópana vera annars
vegar ungt fólk á framhaldsskóla-
og háskólaaldri og hins vegar fólk
á miðjum aldri. „Foreldrar mínir
stunda til dæmis crossfit og stór
vinahópur þeirra. Elsti iðkand-
inn í stöðinni okkar nálgast bráð-
um áttrætt.“
Vinsældir crossfit hafa auk-
ist mjög mikið síðustu árin. Sem
heimsmeistari hefur Annie ferðast
um heiminn undanfarið ár og
kynnt íþróttina, meðal annars í
Suður-Kóreu og Suður-Ameríku.
Hún segir íþróttina hafa verið vin-
sæla í Bandaríkjunum í mörg ár en
nú sé að verða algjör sprenging í
Evrópu. Einnig séu vinsældir henn-
ar að aukast mikið í Suður-Ameríku
og víða í Asíu. „Ég kenndi á þjálf-
aranámskeiðum í Evrópu í fyrra.
Fyrst um sinn vorum við með eitt
til tvö námskeið í mánuði en undir
lokin vorum við að halda jafnvel tvö
námskeið hverja helgi. Margir sem
sækja námskeiðin stofna seinna
meir eigin crossfit-stöðvar. Í dag
eru um 4.000 stöðvar starfræktar í
heiminum og þeim fjölgar stöðugt.
Vinsældirnar aukast svona hratt
því fólk hefur svo rosalega gaman
af þessari íþrótt.“
Árið í ár verður sem fyrr við-
burðaríkt hjá Annie. Hún held-
ur áfram að ferðast um heiminn
og kynna íþróttina auk þess sem
hún þjálfar í CrossFit Reykjavík en
hún festi kaup á hlut í stöðinni fyrr
á árinu. „Svo stefni ég auðvitað á
að verja titilinn á heimsmeistara-
mótinu á næstu árum. Sjálfsagt
mun ég stunda keppni næstu árin
áður en ég dreg mig í hlé. Kannski
sný ég svo aftur og keppi í eldri ald-
ursflokkum eftir það, hver veit.“
Frábær valkostur fyrir flest fólk
Annie Mist hefur stundað crossfit í rúm þrjú ár og unnið tvo heimsmeistaratitla. Nú ferðast hún um heiminn og kynnir íþróttina auk
þess sem hún þjálfar í CrossFit Reykjavík. Vinsældir íþróttarinnar hafa vaxið mikið undanfarin ár.
Fjölbreytileikinn í crossfit er það sem heillar Annie Mist mest við íþróttina. MYND/GVA
CrossFit Hafnarfjörður er lítil og persónuleg crossfit-stöð á Melabraut 17 í Hafnarfirði. „Hjá okkur ríkir mjög góður andi og liðsheild. Fólk
er fljótt að kynnast hvert öðru og félagsskapurinn er
mikilvægur þáttur í starfsemi okkar. Við erum með
þéttan hóp og höfum haldið árshátíð og grillpartí,“
segir Helga Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og
eigandi CrossFit Hafnarfjarðar.
Crossfit Hafnarfjörður hefur starfað í rúm tvö ár en
flutningar eru í kortunum því aðsókn í stöðina hefur
aukist svo mikið undanfarið ár að finna þarf hent-
ugra húsnæði. Í CrossFit Hafnarfirði er gerð krafa um
að fólk fari fyrst á grunnnámskeið þegar það byrjar
að æfa crossfit. „Við leggjum mikla áherslu á að fólk
læri æfingarnar og geri þær á réttan hátt. Það er í boði
að fara á fjögurra vikna grunnnámskeið eða á hrað-
námskeið sem tekur eina helgi. Einkatímar eru líka
í boði í grunnþjálfun fyrir einstaklinga eða smærri
hópa sem eru í ágætis formi.“
Í CrossFit Hafnarfirði er boðið upp á crossfit fyrir
börn og unglinga. „Við erum búin að sækja sérstök
námskeið í crossfit fyrir krakka. Þar eru hlutirnir ein-
faldaðir og æfingar til dæmis kallaðar öðrum nöfn-
um og reynt að vísa í eitthvað sem börnin þekkja. Til
dæmis er talað um að lyfta leysibyssunum þegar lyfta
á olnbogunum í ákveðnum æfingum. Við reynum að
hafa allar æfingar skemmtilegar og krökkunum á að
finnast gaman að æfa hjá okkur.”
Helga segir crossfit vera bæði skemmtilegt og ár-
angursríkt. „Við viljum hafa ákveðin gæði í æfing-
unum hjá okkur og þetta snýst fyrst og fremst um að
bæta eigin árangur. Crossfit snýst ekki um kílóatölu
eða fituprósentu. Hér er ekki einblínt á útlit heldur
lögð áhersla á hreysti. Markmiðið er að byggja upp
þol og styrk og allir miða að því að ná árangri í æfing-
unum. Við skráum allan árangur á vefsíðu þar sem
fólk getur séð hversu mikið það hefur bætt sig þegar
það tekur sömu æfingu aftur einhverjum vikum eða
mánuðum síðar. Þetta tekur tíma en fólk nær alltaf
að bæta sig eitthvað. Árangurinn kemur hraðar í ljós
í crossfit en í flestum öðrum íþróttum. Svo er það líka
svo fjölbreytt og skemmtilegt.“
Nánari upplýsingar um CrossFit Hafnarfjörð má
finna á heimasíðunni cfh.is.
Árangurinn skiptir
mestu máli
CrossFit Hafnarfjörður er persónuleg líkamsræktarstöð þar sem áhersla er
lögð á að ná að bæta sjálfan sig en ekki einblínt á kíló eða fituprósentu.
Helga Guðmundsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri CrossFit
Hafnarfjarðar, segir crossfit-íþróttina eiga vaxandi vinsældum að
fagna. MYND/ÚR EINKASAFNI