Fréttablaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 84
11. ágúst 2012 LAUGARDAGUR40
Hvenær byrjaðir þú að æfa
íþróttir? „Ég byrjaði 10 ára að
æfa frjálsar og var líka í glímu
í smá tíma þegar ég var yngri
sem var frekar sérstakt og
skemmtilegt.“
Stundar þú margar íþrótta-
greinar? „Ég var alltaf bara í
kúluvarpi en svo fór ég að fara
á kringlukastsæfingar fyrir
um tveimur árum og nú er ég
hætt í kúlunni og er bara alfar-
ið í kringlunni. Þetta er einhver
sérviska í mér að vilja ekki vera
í kúlunni lengur, ég gæti eflaust
grýtt henni langt ef ég vildi en
kringlan á hug minn allan.“
Er aldrei einmanalegt að æfa
frjálsar? „Stundum, ef ég þarf
að vakna klukkan sex á morgn-
ana til að fara á æfingu áður
en skólinn byrjar þá vildi ég
kannski hafa einhvern með
mér, en ég læt mig hafa það.“
Hvað er næst á dagskránni hjá
þér? „Það eru mörg mót á næst-
unni. Bikarkeppni FRÍ fyrir 15
ára og yngri og Bikarkeppni
fullorðinna standa kannski
hæst en svo eru mörg önnur
minni mót sem ég keppi á líka.“
Fylgist þú mikið með íþrótta-
fréttum? „Já ég geri það og sér-
staklega núna þegar Ólympíu-
leikarnir standa yfir.“
Stefnir þú á Ólympíuleika? „Já,
það er auðvitað draumurinn að
komast á Ólympíuleikana ein-
hvern daginn.“
Áttu þér eftirlætisíþrótta-
stjörnu? „Mér finnst Ólafur
Stefánsson handboltamaður
flottastur.“
Er kraftafólk í fjölskyldunni
þinni? „Afi minn, hann Stein-
ólfur Lárusson, var talinn
heljarmenni og líka systur-
synir pabba, þeir Stefán Sölvi
og Úlfur Orri. Þeir eru í svona
kraftasporti og Stebbi varð
m.a. 4. sterkasti maður heims
árið 2010 og varð 10. í fyrra.“
Ertu eina Ísdísin á landinu?
„Já, svo ég viti til. Mömmu og
pabba langaði að gefa mér eitt-
hvað alveg sérstakt nafn sem
ég ætti bara ein og þeim datt
Ísdís í hug og fengu leyfi fyrir
því.“
Hver eru framtíðaráformin?
„Halda áfram að æfa og æfa,
keppa eins og ég get og standa
mig vel. Ef allt gengur vel þá von-
ast ég til þess að sjá Íslandsmet
kvenna falla eftir nokkur ár.“
Hvað heitir þú fullu nafni?
Sólon Nói Sindrason.
Hvað ertu gamall? 12 ára.
Lestu mikið? Já, talsvert mikið.
Hvenær lærðir þú að lesa? 6
ára. Lærði að lesa í Ártúnsskóla
og heima.
Hvað er skemmtilegt við að
lesa bækur? Það er svo margt.
Persónurnar, sagan, umhverfið
eða heimurinn sem sagan gerist
í. Það er svolítið mismunandi
eftir því hvað ég er að lesa.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
Sokki og Bokki, ég kunni hana
utan að þegar ég var þriggja ára.
Eftir að ég byrjaði að lesa sjálfur
voru Kafteinn Ofurbrók og svo
Harry Potter í uppáhaldi.
Hvers lags bækur þykja þér
skemmtilegastar? Ævintýrabækur
og spennusögur.
Hvaða bók lastu síðast og
hvernig var hún? Eldar kvikna, að
vísu í annað skipti. Hún var mjög
góð og ég er mjög spenntur fyrir
næstu bók.
Í hvaða hverfi býrð þú? Ártúns-
holtinu.
Í hvaða skóla gengur þú?
Ártúnsskóla.
Hvaða námsgrein er skemmti-
legust? Stærðfræði og leikfimi, en
þær eru flestallar skemmtilegar.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Handbolti, fótbolti, lestur, útivist og
ferðalög.
krakkar@frettabladid.is
40
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Fíll og mús voru á leiðinni yfir
brú:
Fíllinn: „Mikið svakalega
brakar í þessari brú. Ég held
að hún sé hreinlega við það
að brotna.“
Músin: „Það er nú engin furða
þegar við erum bæði á henni
í einu!“
Maurinn Emil var á gangi
einn daginn þegar fíllinn Egill
kúkaði á hann. Þá sagði Emil:
„Ái, beint í augað.“
Hvers vegna var tannlæknir-
inn rekinn úr vinnunni?
- Hann reif svo mikinn kjaft!
Tveir bóndar voru á spjalli:
- Hvað átt þú margar kindur?
- Ég veit það ekki, ég sofna
alltaf þegar ég reyni að telja
þær!
Bókaormur vikunnar
DRAUMURINN AÐ KEPPA
Á ÓLYMPÍULEIKUM
Hin 14 ára Jófríður Ísdís Skaftadóttir setti nýtt landsmótsmet í kringlukasti um
síðustu helgi er hún kastaði 43,06 metra á landsmóti UMFÍ. Hún keppti þá fyrir
Ungmennafélagið Skipaskaga en keppir annars stundum undir merkjum FH.
JÓFRÍÐUR ÍSDÍS Foreldra hennar langaði að gefa henni sérstakt nafn sem enginn
ætti nema hún sjálf.
RÚMLEGA FJÖRUTÍU kínversk börn á aldrinum 9 til 17 ára syngja, dansa
og leika á hljóðfæri í Hörpu á morgun, sunnudag, á milli klukkan 15 og 17.
Krakkarnir tilheyra Yip’s-barnakórnum sem er staddur hér á landi til að heim-
sækja Stúlknakór Reykjavíkur. Aðgangur er ókeypis.